Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 66
38 7. júní 2008 LAUGARDAGUR
RÚSSLAND
Kostir: Sovétríkin voru sannkallað knattspyrnustórveldi. Rússland er risastórt land
sem hefur beðið lengi eftir árangri. Það er því ljóst að margir munu kætast ef þeir
vinna, sér í lagi gamlir kommar. Þjálfarinn Guus Hiddink hefur mikla náðargáfu.
Gallar: Rússar stóðu sig vel í undankeppninni, en
þá fengu þeir að spila á gervigrasi. Liðið er kallað
„rússneski björninn“. Eins og atburðir síðustu
daga bera vitni um eru birnir ekkert hættulegir í
hugum fólks, heldur hvítir og krúttlegir.
SVÍÞJÓÐ
Kostir: Svíar eru frændur okkar.
Samkvæmt Eurovision-reglum ættum
við að styðja þá sem næst okkur búa og eru líkastir
okkur í háttum. Svíar eiga líka Henke Larsson, besta
knattspyrnumann Skandinavíu síðan Mikael Laudrup
var og hét.
Gallar: Fátt er spennandi í fari Svía, og helst að
einstaka bók eftir Astrid Lindgren veki áhuga manns. Þeir eru svo hryllilega
skipulagðir að ef þeir ynnu keppnina yrði líklega lítið um fagnaðarlæti hjá
þjóðinni. Þeir þyrftu, jú, að mæta í vinnuna daginn eftir.
FRAKKLAND
Kostir: Frakkar hafa á að skipa þrautreyndu
liði sem kann að vinna titla. Einnig rennur
franskt blóð í æðum fjölmargra Íslendinga,
þótt þeir viti ekki endilega af því. Lágvaxnir
og dökkhærðir Frónbúar ættu því að taka sénsinn og
styðja Les Bleus.
Gallar: Þeir sem vilja síður að helstu hetjur liðsins
síns séu skallandi fólk í bringuna hægri vinstri úti um allan völl ættu að
halda sig fjarri Frökkum. Frakkar búa yfir miklum hæfileikum, en knattspyrnan sem þeir leika ber því
of sjaldan vitni.
C-RIÐILL
ÍTALÍA
Kostir: Liðið er feiknasterkt og líklegur
sigurvegari mótsins. Leikmenn höfða
gjarnan til kvenpeningsins, sem kann að
meta dökksleikt hár og ástríðuþrunginn skaphita. Svo
má ekki gleyma stærstu gjöf Ítalíu til umheimsins,
pitsunni.
Gallar: Það loðir spillingarfnykur við ítalska knattspyrnu. Liðinu hefur verið lýst
sem hrútleiðinlegum svindlurum, og virðist gangast fúslega við þeirri nafngift.
Ítalar eru sem sagt heiðarlegir í óheiðarleika sínum, en mættu minnka magnið af geli í hárinu.
HOLLAND:
Kostir: Hollenskir áhorfend-
ur missa iðulega vitið í kring-
um stórmót. Það er stuð að
fylgjast með appelsínugulu
hárkollunum og gervinefjun-
um, sem þeir skarta af fullri
einlægni. Nöfn leikmanna eins og Van Helsing
of Goorooijer vekja kátínu.
Gallar: Hollenska þjóðin leikur gjarnan tveimur
skjöldum. Hún vill vera umburðarlyndust allra,
en ræður ekki við það þegar allt kemur til alls.
Svipaða sögu er að segja af landsliðinu. Ekki
kæmi á óvart ef liðið ynni Ítala 7-0 en tapaði
svo fyrir Rúmeníu.
RÚMENÍA
Kostir: Fáir búast
við miklu af Rúm-
enum í náriðlin-
um svokallaða.
Sú tilhneiging að
styðja þá sem
minna mega sín á
því vel við hér. Rúmenar eiga
líka snjalla götutónlistarmenn
sem hafa látið til sín taka fyrir
utan íslenskar verslunarmiðstöðvar.
Gallar: Ímynd Rúmeníu er fremur neikvæð
eftir ráðatíma Ceausescus. Eins er ólíklegt að
frægasti sonur Rúmeníu, Drakúla greifi, sé
mikill hvati til að
styðja liðið til dáða.
Búningar liðsins eru
líka páskaunga-gulir,
sem er allt annað en
svalt.
GRIKKLAND
Kostir: Á síðasta EM
voru Grikkir blautur
draumur þeirra sem
styðja þá sem minna
mega sín. Þeir gætu
aftur komið á óvart í
ár. Þá geta þeir sem
voru ungir á níunda áratugnum troðið í sig feta-
osti og hugsað með söknuði til góðra stunda á
Ródos og Krít.
Gallar: Stærsti gallinn er sá að þeir séu með í
keppninni. Liðið er þrautleiðinlegt og styður þá
skoðun margra að fótbolti sé álíka spennandi
og að horfa á máln-
ingu þorna. Auk þess
munu lýsend-
ur eiga erfitt
með nöfn eins
og Papadiam-
antopoulos.
D-RIÐILL
SPÁNN
Kostir: Á Spáni er
vissulega gott að
djamma og djúsa,
og Íslendingar
skulda Spán-
verjum enn þá
feitan greiða fyrir
Spánarvínin. Þeir
leika oft og tíðum
gullfallegan bolta og státa af Fernando Torres,
heitasta framherja Evrópu í dag.
Gallar: Að halda að Spánn
vinni EM er álíka mikil
bjartsýni og að trúa því að
David Beckham breytist einn
góðan veðurdag í karlmann.
Þeir halda ávallt fast í þjóð-
arhefðina og taka sér góða
síestu í kringum mitt mót.
Alls ekki traustvekjandi.
Gildir til 24. júní eða á meðan birgðir endast.
3í pakkanærbuxur Vönduð TAI
nærföt á tilboðsverði
2.499kr/pk.
verð áður 3.299
Flottar, þægilegar og sniðnar að þér