Fréttablaðið - 07.06.2008, Side 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Héraðsdómur Reykjavíkur skar úr um í vikunni að umfjöllun
tímaritsins Ísafoldar um Geira á
Goldfinger hefði vegið að æru
hans. Ekki hefðu verið færðar
sönnur á ásakanir um að á Goldfin-
ger færi fram mansal og vændi.
Geiri fékk milljón til að jafna sig.
AUÐVITAÐ er það sjálfsögð krafa
að færð séu sterk rök fyrir ávirð-
ingum á borð við þær sem bornar
voru á Geira í Ísafold. Hafi það
ekki verið gert á dómstóll að dæma
ummælin dauð og ómerk. Mér er
hins vegar fyrirmunað að skilja
hvernig í ósköpunum héraðsdómi
tókst að komast að þeirri niður-
stöðu að æra Geira beðið slíka
hnekki að það kosti ekki undir
milljón að rétta hana við. Ef orð-
spor Geira væri alþjóðlegur gjald-
miðill væri það íslenska krónan:
verðlaust, til trafala og of hátt
skráð.
ÞAÐ er nefnilega þannig að um
nokkurt skeið hefur Geiri unnið
ötullega að því að skapa sér ímynd
ógeðfellds nektarbúllueigenda með
óhreint mjöl í pokahorninu sem
vílar fátt fyrir sér til að ná sínu
fram. Tveggja ára gamlar fréttir af
handtöku Geira, eftir að hann rudd-
ist inn á Bóhem við fimmta mann
og hélt þar fólki nauðugu, benda til
að þessi ímynd sé ekki fullkomlega
innistæðulaus. Hvort sem ásakanir
Ísafoldar eru sannar eða ekki, eru
þær í fullu samræmi við þann orð-
stír sem Geiri á Goldfinger hefur
leynt og ljóst getið sér.
EKKI er útskýrt í dómnum hvað
liggur að baki upphæðinni sem
Geira var dæmd, hvernig tjón hans
var metið. Mögulega töldu dómar-
arnir að ásakanirnar hefðu kostað
Geira viðskipti. Eflaust væri það
gild röksemd ef Geiri væri eigandi
Heklu eða Kaffitárs. En Geiri selur
ekki bíla eða kaffi heldur hefur
atvinnu af því að höfða til lægstu
hvata mannsins. Eitthvað segir
mér að fastagestunum á Goldfin-
ger þyki brigslyrði um vændi og
mansal engin sérstök fyrirstaða
fyrir því að venja komur sínar
þangað.
DÓMURINN er líka enn eitt
dæmið um snarhækkandi miska-
bætur í meiðyrðamálum, meðan
bætur til þolenda kynferðisbrota
standa í stað. Það er eins og dómar-
ar hafi einhvern tímann orðið ásátt-
ir um að þolendur kynferðisbrota
skyldi bættur skaðinn með andvirði
notaðs fellihýsis og við það sitji. Nú
er hins vegar lag fyrir réttarkerfið
að koma skikk á skaðabótamatið
með því að búa til sérstakan gull-
fót, eða réttara sagt gullfingur;
fastan ærustuðul Geira á Gold-
finger sem allar miskabætur tækju
mið af. Í nauðgunarmálum þyrfti
bara að slá tuttugu prósent af.
Æran hans Geira
Í dag er laugardagurinn 7. júní,
160. dagur ársins.
3.09 13.26 23.46
3.07 13.27 23.48
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18. 00
12.00 - 18.00
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
...ég sá það á visir.is
Segir grafhýsi Kleópötru fundið
Myndir berast frá Mars
Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett
Býst við minni verðbólgu
MEST LESIÐ: