Fréttablaðið - 07.06.2008, Síða 88

Fréttablaðið - 07.06.2008, Síða 88
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar Héraðsdómur Reykjavíkur skar úr um í vikunni að umfjöllun tímaritsins Ísafoldar um Geira á Goldfinger hefði vegið að æru hans. Ekki hefðu verið færðar sönnur á ásakanir um að á Goldfin- ger færi fram mansal og vændi. Geiri fékk milljón til að jafna sig. AUÐVITAÐ er það sjálfsögð krafa að færð séu sterk rök fyrir ávirð- ingum á borð við þær sem bornar voru á Geira í Ísafold. Hafi það ekki verið gert á dómstóll að dæma ummælin dauð og ómerk. Mér er hins vegar fyrirmunað að skilja hvernig í ósköpunum héraðsdómi tókst að komast að þeirri niður- stöðu að æra Geira beðið slíka hnekki að það kosti ekki undir milljón að rétta hana við. Ef orð- spor Geira væri alþjóðlegur gjald- miðill væri það íslenska krónan: verðlaust, til trafala og of hátt skráð. ÞAÐ er nefnilega þannig að um nokkurt skeið hefur Geiri unnið ötullega að því að skapa sér ímynd ógeðfellds nektarbúllueigenda með óhreint mjöl í pokahorninu sem vílar fátt fyrir sér til að ná sínu fram. Tveggja ára gamlar fréttir af handtöku Geira, eftir að hann rudd- ist inn á Bóhem við fimmta mann og hélt þar fólki nauðugu, benda til að þessi ímynd sé ekki fullkomlega innistæðulaus. Hvort sem ásakanir Ísafoldar eru sannar eða ekki, eru þær í fullu samræmi við þann orð- stír sem Geiri á Goldfinger hefur leynt og ljóst getið sér. EKKI er útskýrt í dómnum hvað liggur að baki upphæðinni sem Geira var dæmd, hvernig tjón hans var metið. Mögulega töldu dómar- arnir að ásakanirnar hefðu kostað Geira viðskipti. Eflaust væri það gild röksemd ef Geiri væri eigandi Heklu eða Kaffitárs. En Geiri selur ekki bíla eða kaffi heldur hefur atvinnu af því að höfða til lægstu hvata mannsins. Eitthvað segir mér að fastagestunum á Goldfin- ger þyki brigslyrði um vændi og mansal engin sérstök fyrirstaða fyrir því að venja komur sínar þangað. DÓMURINN er líka enn eitt dæmið um snarhækkandi miska- bætur í meiðyrðamálum, meðan bætur til þolenda kynferðisbrota standa í stað. Það er eins og dómar- ar hafi einhvern tímann orðið ásátt- ir um að þolendur kynferðisbrota skyldi bættur skaðinn með andvirði notaðs fellihýsis og við það sitji. Nú er hins vegar lag fyrir réttarkerfið að koma skikk á skaðabótamatið með því að búa til sérstakan gull- fót, eða réttara sagt gullfingur; fastan ærustuðul Geira á Gold- finger sem allar miskabætur tækju mið af. Í nauðgunarmálum þyrfti bara að slá tuttugu prósent af. Æran hans Geira Í dag er laugardagurinn 7. júní, 160. dagur ársins. 3.09 13.26 23.46 3.07 13.27 23.48 © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 8 www.IKEA.is Opið virka daga Opið laugardaga Opið sunnudaga 10.00 - 20.00 10.00 - 18. 00 12.00 - 18.00 Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun ...ég sá það á visir.is Segir grafhýsi Kleópötru fundið Myndir berast frá Mars Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett Býst við minni verðbólgu MEST LESIÐ:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.