Fréttablaðið - 10.07.2008, Qupperneq 10
10. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
ÍRAN, AP Íranska ríkissjónvarpið
segir tilraunir með flugskeyti
hafa verið gerðar beinlínis til að
bregðast við hótunum frá Banda-
ríkjunum og Ísrael.
Í gærmorgun skutu Íranir upp
níu lang- og meðaldrægum flug-
skeytum. Meðal annars var próf-
uð ný tegund flugskeyta af gerð-
inni Shahab-3, sem hægt væri að
skjóta á Ísrael, Tyrkland, Arabíu-
skaga, Afganistan og Pakistan,
teldu íranskir ráðamenn sig hafa
ástæðu til þess.
Hossein Salami, yfirmaður
flugflota íranska hersins, segir
þessum tilraunum ætlað að „sýna
staðfestu okkar og mátt gegn
óvinum sem hafa á síðustu vikum
hótað Írönum með harðskeyttu
orðavali“.
Aðeins daginn áður hafði þó
Mahmoud Ahmadinejad Íransfor-
seti sagt það hótfyndni eina að
Bandaríkjamenn og Ísraelar væru
að undirbúa árásir á Íran.
„Ég fullvissa ykkur um að það
verður ekkert stríð í framtíðinni,“
sagði Ahmadinejad á blaðamanna-
fundi í Malasíu á þriðjudaginn,
þar sem hann var staddur á leið-
togafundi íslamskra þróunar-
ríkja.
Íranar hafa hins vegar hótað
hörðum viðbrögðum ef Banda-
ríkjamenn eða Ísraelar létu verða
af árásum. Meðal annars hafa
Íranar hótað að skjóta flugskeyt-
um á Ísrael og bandarískar her-
stöðvar við Persaflóa. Einnig hafa
þeir hótað að koma í veg fyrir alla
olíuflutninga frá Persaflóa, sem
hefði alvarlegar afleiðingar fyrir
efnahagslífið í Bandaríkjunum og
um heim allan.
Bandaríkin segja flugskeytatil-
raunir Írana hins vegar „alger-
lega á skjön við skyldur Írans
gagnvart umheiminum“, eins og
talsmaður Hvíta hússins orðaði
það. „Með þessu háttalagi gera
írönsk stjórnvöld ekkert annað en
að einangra írönsku þjóðina enn
frekar frá alþjóðasamfélaginu,“
sagði Gordon Johndroe, talsmað-
ur þjóðaröryggisráðs Bandaríkj-
anna. „Þeir ættu að láta frekari
flugskeytatilraunir eiga sig ef
þeir vilja raunverulega endur-
heimta traust umheimsins.“
Bandaríkin hafa verið í forystu
fyrir því að auka þrýsting á Írana
um að hætta við öll kjarnorku á-
form af ótta við að þau gagnist til
smíði kjarnorkuvopna. Íranar
segja hins vegar kjarnorkuáætlun
sína eingöngu til þess ætlaða að
framleiða rafmagn, kjarnorku-
vopnaframleiðsla sé alls ekki á
dagskrá.
gudsteinn@frettabladid.is
Íransstjórn sýnir
hernaðarmátt sinn
Bandaríkin segja flugskeytatilraunir Írana aðeins einangra landið enn frekar á
alþjóðavettvangi. Íranar senda frá sér misvísandi skilaboð.
MAHMOUD AHMADINEJAD
Íransforseti segist hvorki reikna með
árásum frá Bandaríkjunum né Ísrael.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍRANSKT FLUGSKEYTI Íranska sjónvarpið sýndi í gær myndir af flugskeytatilraunum,
sem ráðamenn þar segja viðbrögð við hótunum frá Bandaríkjunum og Ísrael.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SUNKIST ORANGE
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Akureyri - Höfn - Grindavík
...á góðri stundu!
TILBOÐIN GILDA 10. - 13. JÚLÍ
SAFARÍKAR
KJÚKLINGABRINGUR
1.595kr/kg
30%
afsláttur
41%
afsláttur
398kr
HAMBORGARAR
2x175g
79kr/stk
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
568 kr
2.704 kr
499kr/stk
CHICAGO TOWN PIZZUR
OSTAFYLLTUR KANTUR
SVEITARSTJÓRNIR „Í smærri sveitarstjórnum getur
alltaf orðið hreyfing á samstarfi flokka sem helgast
af staðbundnum aðstæðum og persónum á hverjum
stað,“ segir Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hag-
og upplýsingasviðs Sambands sveitarfélaga.
„Hræringarnar í Reykjavík hafa aftur á móti verið
óvenjulegar.“
Samstarfsslit hafa orðið hjá meirihluta í sveitar-
stjórnum nokkurra sveitarfélaga þau tvö ár sem af
er kjörtímabilinu og tvisvar í Reykjavík.
Nú síðast sleit Samfylkingin í Grindavík meiri-
hlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, að hluta til
vegna mála Hitaveitu Suðurnesja.
Fyrr á þessu ári var skipt um meirihluta, fyrst í
Bolungarvík í apríl og síðan Dalabyggð í síðasta
mánuði. Grímur Atlason, sem verið hafði bæjar-
stjóri í Bolungarvík, var nýlega ráðinn sveitarstjóri
í Dalabyggð.
Einnig má segja að meirihlutinn á Akranesi hafi
sprungið í maí þegar Karen Jónsdóttir, fulltrúi F-
lista í bæjarstjórn, gekk til liðs við Sjálfstæðisflokk-
inn.
Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn slitu að auki
samstarfi sínu í Árborg í desember árið 2006 að
sögn vegna deilu um launakjör bæjarfulltrúa.
Í Reykjavík hefur starfandi meirihluti tvisvar
sinnum sprungið, fyrst 11. október árið 2007 og
aftur síðla í janúar rúmum þremur mánuðum síðar.
- ht
Óvenjulegar hræringar í Reykjavík og hreyfing á samstarfi í sveitarstjórnum:
Nýr meirihluti á sex stöðum
NÝR MEIRIHLUTI Tók við störfum í Reykjavík síðla í janúar.
REYKJAVÍK „Þegar ég las tölvupóst-
inn skildi ég þetta eins og búið
væri að fara alla leið í kerfinu
með þetta,“ segir Elín Sigurðar-
dóttir, félags- og kynjafræðingur
og ein þeirra sem sóttu um stöðu
mannréttindastjóra Reykjavíkur.
Í Fréttablaðinu í gær var greint
frá því að umsækjendum um
starf mannréttindastjóra Reykja-
víkur hafði verið tilkynnt í tölvu-
pósti á föstudag að „búið [væri]
að ráða í stöðuna“. Hins vegar er
einungis búið að gera tillögu að
því að Anna Kristinsdóttir verði
ráðin. Endanleg ákvörðun verður
ekki tekin fyrr en á fundi borgar-
ráðs í dag.
Sex af 23 umsækjendum voru
boðaðir í viðtal. Elín var ein
þeirra sem ekki var boðuð í viðtal
en hún er með meistarapróf í
kynjafræði frá Háskólanum í
Lundi.
„Ég tel ekkert óeðlilegt við það
að einhver annar hafi verið ráð-
inn þar sem margir sóttu um og
þar af margir hæfir. Vinnubrögð-
in þykja mér hins vegar undar-
leg,“ segir Elín
„Ég hef sótt um svipaðar stöður
áður og þá voru meiri formleg-
heit í kringum þetta. Mér fannst
snubbótt að fá bara tvær línur í
tölvupósti um að ég fengi ekki
starfið.“ - vsp
Umsækjandi um stöðu mannréttindastjóra finnst svar í tölvupósti snubbótt:
Hélt að búið væri að ráða
ELÍN SIGURÐARDÓTTIR Henni fannst
vinnubrögðin við ráðningu mannrétt-
indastjóra undarleg.