Fréttablaðið - 10.07.2008, Síða 31
[ ]
Nú þegar sólin skín sem skær-
ast má ekki gleyma að verja
pallana og garðhúsgögnin
okkar fyrir skaðlegum áhrifum
hennar.
Guðjón Rúnarsson, húsasmíða-
meistari og stofnandi Sólpallar.is,
bendir á að sólin fari mun verr
með viðinn en bleyta. „Það er
mikilvægt að bera fljótlega á pall-
inn eftir að hann hefur verið sett-
ur upp. Olían sem notuð er er með
góðri sólarvörn. Viðurinn brenn-
ur nefnilega í sólinni líkt og við,
eini munurinn er sá að hann verð-
ur hvítur en við verðum rauð,“
útskýrir hann.
Að sögn Guðjóns eru margir
sem velja sér litaða olíu til að
koma í veg fyrir að pallurinn
upplitist eða gráni. „Gott er að
nota þannig olíu því í henni er
meiri sólarvörn en í glæru lakki.“
Guðjón mælir með að borið sé á
pallinn á hverju ári en tekur
þó fram að ekki sé nauðsyn- legt að nota litaða olíu í
hvert sinn. „Timbur er lif-
andi efni og þótt það skemm-
ist ekki við litla umhirðu þá
verður það ljótt, upplitast
eða verður grátt,“ útskýrir
hann.
Sömu viðhaldslögmál gilda
ekki um skjólveggi þótt þeir séu
yfirleitt gerðir úr sama efni. „Það
er miklu minna álag á skjólveggj-
um og regnvatn situr ekki á
þeim líkt og á pöllunum. Því er
nóg að bera á skjólvegginn strax
og hann er settur upp og svo á
fjögra til fimm ára fresti.
Hvað garðhúsgögn varðar þá
eru þau yfirleitt úr harðviði og á
hann þarf að bera oftar en hina
gagnvörðu fura því harðviðurinn
drekkur ekki eins vel í sig olíuna.
„Það er misskilningur að harðvið-
urinn sé viðhaldsminni en furan.
Það myndast filmulag á harðvið-
inn þegar borið er á hann sem á
það til að flagna af ef ekki er
borið á hann reglulega,“ útskýrir
Guðjón. klara@frettabladid.is
Viðinn verður að verja
Guðjón Rúnarsson segir sólina skaðlega pöllunum okkar. FRETTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Sundföt eru mikið notuð á sumrin. Þá flykkjast allir í sundlaugarnar í góða
veðrinu til að njóta útiverunnar. Bikiní eru mjög vinsæl hjá ungu kynslóðinni.
GLERÁRDALSHRINGURINN VERÐUR GENGINN ÞANN 12 JÚLÍ NÆSTKOMANDI.
Gengið verður á tuttugu og fjóra tinda sem mynda fjallahringinn kringum
Glerárdal í Eyjafirði, nú á laugardaginn. Lagt verður af stað klukkan 8 um
morguninn frá Skíðahótelinu í Hlíðarjalli og endastöð verður við fjárrétt-
irnar í Glerárdal þar sem boðið verður upp á súpu.
Gangan er um 50 kílómetrar og samanlögð hækkun um 4.000 metr-
ar. Félagið Glerárdalshringurinn 24x24 stendur fyrir göngunni. Þátttöku-
gjald verður í ferðina og hægt er að skrá sig á netfangið glerardalur@gler-
ardalur.is. Undirbúningsfundur verður kvöldið áður að Hjalteyrargötu 12 á
Akureyri.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins, www.glerardalur.is - rat
Gengið á tinda Glerárdals
Gengnir verða 24 tindar í Glerárdalshringn-
um á laugardaginn. MYND/ÓLAFUR SVERRISSON
frá kr. 49.995
Verslunarmannahelgi í Salou!
Costa Dorada ströndin, sem skartar fremstum bæjunum Salou og Pineda, hefur notið mikilla vinsælda
vegna mikils fjölbreytileika svæðisins. Margra kílómetra langar aðgrunnar strendur, hótelgisting sem
hentar jafnt fjölskyldufólki sem öðrum, úrval veitingastaða og afþreyingar, blómstrandi menning og
frábært skemmtanalíf. Bjóðum frábært sértilboð á hinum vinsælu Aqua og Golden íbúðum í Pineda, sem
eru mjög nýlegar, fallegar og rúmgóðar íbúðir með tveimur svefnherbergjum. Bjóðum einnig gistingu
á hinu glæsilega Hotel California Palace í Salou. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu sumarfrísins
á Costa Dorada.
Salou og Pineda
25. júlí og 1. ágúst
49.995
– Aqua & Golden íbúðir
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára í íbúð með 2 svefnher-
bergjum í viku, 25. júlí. Brottför 1. ágúst
kr. 5.000 aukalega. Aukavika kr. 15.000.
Aukalega m.v. 2 í íbúð kr. 10.000.
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000
www.terranova.is · Akureyri, sími: 461 1099
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
69.990
– California Palace ****
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í
viku með morgunverði. Brottför 1. ágúst
kr. 5.000 aukalega.
Frábært fyrir barnafjölskyldur!
Íbúðir með 2 svefnherbergjum
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
Te
rr
a
N
ov
a
ás
ki
lu
r s
ér
ré
tt
ti
l l
ei
ðr
ét
tin
ga
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
Ótrúleg s
értilboð!
Aqua & G
olden íbú
ðir
Hotel Ca
lifornia P
alace
****
krónum lagið
Frá
Fyll'ann takk!
Á Tónlist.is getur þú nálgast yfir 50.000 lög og fyllt
spilarann þinn af topptónlist. Allt efni á Tónlist.is er
ólæst (DRM laust) og kostar frá 79 krónum lagið.
Þannig getur þú fært tónlistina hindrunarlaust á milli
tölvunnar, spilarans og farsímans.
Vertu tilbúinn í sumarfríið!