Fréttablaðið - 10.07.2008, Page 49
FIMMTUDAGUR 10. júlí 2008 29
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál-
efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn orð. Ein göngu
er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari
leið bein ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi
eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt-
inga og til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Sigurvin Jónsson og Sunna
Dóra Möller svara grein Teits
Atlasonar
Hinn 16. júní síðastliðinn birtist opnulöng grein í
Fréttablaðinu eftir Teit Atlason
er ber yfirskriftina „Trúlausi
guðfræðingurinn“. Í greininni
gagnrýnir höfundur guðfræði-
deildina, sem hann segir gallaða
stofnun, og tiltekur m.a. eftirfarandi rök fyrir því:
„Í mínum huga eiga að vera skýr skil á milli hinnar
trúarlegu innrætingar og hinnar fræðilegu kennslu.
Það vantar einnig ýtarlegri biblíugagnrýni,
kenningar um hinn sögulega Jesú, kynningu á
trúarlegu umhverfi þegar Biblían er rituð, trú
Egypta, kynningu á [sic] betri kynningu á gnóstísk-
um ritum. Svo ekki sé talað um Júdasarguðspjall
sem er merkilegasti fornleifafundur síðustu
árhundruða.“
Gagnrýni höfundar á guðfræðideildina snýr m.a.
að kennslu á sviði biblíufræða og þá sérstaklega
nýjatestamentisfræði sem undirrituð hafa valið að
sérsviði. Prófessor í nýjatestamentisfræði er dr.
Jón Ma. Ásgeirsson en hann er menntaður frá
Claremont háskóla í BNA og er þekktur á alþjóða-
vísu sem fræðimaður á þessu fræðasviði. Til að
sækja framhaldsnámskeið í nýjatestamentisfræð-
um þurfa nemendur að hafa lokið grunnnámskeið-
um í samtíðarsögu, inngangsfræði og guðfræði
Nýja testamentisins auk 10 eininga í forn-grísku.
Venja er að nemendur sæki framhaldsnámskeið í
nýjatestamentisfræðum á þriðja til fimmta ári
náms en ekki á BA stigi. Fjallað verður nú sérstak-
lega um þau sex atriði sem að Teitur nefnir í þessu
samhengi.
Ítarleg biblíurýni
Ítarleg biblíurýni á sér stað í framhaldsnámskeiðum
sem kallast ritskýring, en þar eru tekin fyrir
einstaka rit Gamla og Nýja testamentisins. Í
inngangsnámskeiðum nýjatestamentisfræða er eðli
málsins samkvæmt farið nokkuð hratt yfir sögu en í
ritskýringarnámskeiðum gefst rými til ítarlegri
umfjöllunar. Biblíutextarnir eru settir í samhengi
við rannsóknir á sviði biblíuvísinda og er reynt að
gefa fjölbreyttum sjónarmiðum gaum. Nýjatesta-
mentisfræðin er þverfagleg fræðigrein sem
notfærir sér þekkingu og rannsóknir á sviði
fjölmargra fræðigreina til að varpa ljósi á texta
Nýja testamentisins.
Kenningar um hinn sögulega
Jesú eiga langa hefð í umfjöllun
um Nýja testamentið og persóna
Jesú hefur heillað trúaða jafnt
sem efasemdamenn öldum
saman. Nútíma rannsóknir
byggja á grunni nákvæmra
textarannsókna og heimildarýni.
Í guðfræðideild Háskóla Íslands
eru kenningar um hinn sögulega
Jesú kynntar í inngangsnám-
skeiðum og í framhaldsnám-
skeiðum takast nemendur á við
slíkar kenningar með því að
rannsaka þær frumheimildir sem fyrir hendi eru.
Trúarlegt umhverfi á ritunartíma biblíunnar er
viðfangsefni inngangsnámskeiða og liggur til
grundvallar allri ritskýringu. Þar fá nemendur
innsýn í fjölbreytilegt efni sem tekur til jafnt
stjórnmálasögu, hugmyndafræði og trúarbragða í
umhverfi Nýja testamentisins. Í inngangsfræði Nýja
testamentisins er farið yfir bókmenntasögu alls
Nýja testamentisins ásamt kynningu á ýmsum
skyldum ritum.
Þekking á trú Egypta er mikilvæg í samhengi
Nýja testamentisins vegna þess samruna grískrar
og austrænnar menningar sem átti sér stað eftir
tíma Alexanders mikla á þessu landsvæði og lögð er
mikil áhersla á að textarnir séu lesnir í því sam-
hengi.
Hvað snertir gnóstísk rit hefur prófessor Jón Ma.
komið að rannsóknum og þýðingum rita af þeim
flokki. Leggur hann áherslu á í kennslu sinni að
nemendur kynnist m.a. ritum Nag Hammadi
safnsins, flokki gnóstískra rita sem fundust í
Egyptalandi 1945.
Júdasarguðspjall hefur vakið mikla athygli vegna
þess að eintak þess komst nýlega í hendur fræði-
manna, illa farið eftir langa og sorglega meðferð
forngripabraskara. Jón Ma. greindi frá þessari
atburðarás ítarlega í erindi á Hugvísindaþingi haust-
ið 2006 og fór þar yfir rannsóknarsögu Júdasarguð-
spjalls. Þess má geta að í haust er í boði námskeið í
guðfræðideild um apókrýf guðspjöll, m.a. Júdasar-
guðspjall.
Veist að guðfræðideild
Í greininni „Trúlausi guðfræðingurinn“ er vegið að
kennslu á sviði biblíufræða við Háskóla Íslands af
nemanda sem ekki hefur setið framhaldsnámskeið
á sviði nýjatestamentisfræða. Við sem þessa grein
ritum stundum bæði rannsóknir á sviði nýjatesta-
mentisfræða við Háskóla Íslands undir handleiðslu
Jóns Ma. Ásgeirssonar. Við finnum okkur því
knúin til að leiðrétta þá aðför sem í orðum hans
felst. Þeim atriðum kennslu og rannsókna sem
Teitur Atlason kallar eftir eru gerð vegleg skil í
starfi deildarinnar og sitja þar allir nemendur við
sama borð.
Sigurvin Jónsson er guðfræðingur og Sunna Dóra
Möller guðfræðinemi. Lengri útgáfa greinarinnar
birtist á sigurvin.annall.is og sunnadora.blog.is.
Trúlausi guðfræðingurinn og
guðfræðideild Háskóla Íslands
SIGURVIN JÓNSSON SUNNA DÓRA
MÖLLER
Í greininni „Trúlausi guðfræðingurinn“ er vegið
að kennslu á sviði biblíufræða við Háskóla
Íslands af nemanda sem ekki hefur setið fram-
haldsnámskeið á sviði nýjatestamentisfræða.
Drepið á dyr
borgarinnar
UMRÆÐAN
Pétur Markan skrifar
um kjör háskóla-
stúdenta
Ágætur borgarstjóri Reykvíkinga sér
ekki ástæðu til að
sinna stúdentum þessa
dagana. Sjálfsagt
liggja gildar ástæður
þar á baki. Ekki svarar hann
tölvupóstum né upphringingum
en fulltrúar Stúdentaráðs
Háskóla Íslands hafa ítrekað
reynt að ná í hann eftir að ljóst
var að Félagsstofnun stúdenta
þyrfti að taka þá nauðákvörðun
að hækka leigu á stúdentaíbúð-
um, nákvæmlega því sem nemur
þverrandi stuðningi borgaryfir-
valda við FS á síðustu fjórum
árum. FS hefur á sínum snærum
711 íbúðir sem í búa 1.030
manns og verður hækkunin frá
1.309 krónum mánaðarlega í
minnstu einingum til 4.548
króna í þeim stærri, fyrir utan
vísitöluhækkun.
Af þessu má dæma að búið sé
að læsa stúdenta úti, lyklalausa
að Ráðhúsi Reykjavíkur. Á þá
er vart fleiri klyfjum kreppunn-
ar bætandi ef bakið á ekki að
brotna. Þeir sem inni sitja virða
dyrabjölluhringingar að vettugi
og láta sem vindurinn
sé að verki þegar kall-
að er hástöfum inn um
bréfalúguna. Eina
merkið um líf innan-
dyra er blað sem
smokrað er undir hall-
ardyrnar þar sem á
stendur: „Hundrað
daga meirihlutinn
ákvað að styrkurinn
yrði föst upphæð á
hverja íbúð, 500 krón-
ur á mánuði. Við ákváðum að
breyta því ekki. “ Það er í sjálfu
sér jákvætt að borgarfulltrúar
Reykjavíkur skuli vera sam-
mála um eitthvað en það er
ömurlegt til þess að vita að sú
þverpólitíska sátt skuli ríkja
um hagræðingu og niðurskurð á
kostnað og brúsa stúdenta. Þar
er lágt reitt til höggs og ódrengi-
lega.
Það er með ólíkindum að í
jafnhörðu árferði og nú er taki
borgaryfirvöld ákvörðun um að
skera á styrki til Félagsstofnun-
ar stúdenta sem hefur þau
keðjuverkandi áhrif að leigu-
verð á stúdentaíbúðum hækki.
Það er segin saga að á félags-
legri styrkingu er mest þörf
þegar harðnar á dalnum og
minni möguleikar eru fyrir
stúdenta að komast af upp á
sínar eigin spýtur. En ljósi
punkturinn er sá að afglöp og
vondar ákvarðanir þurfa ekki
að standast tímans tönn því þær
má leiðrétta og þær má færa til
betri vegar. Svo herra Ólafur,
það er einlæg ósk að þú kveikir
á símanum, komir til dyra og
ljáir stúdentum eyru þín um
stund. Vormenn Ísland sjá fram
á vosbúðarvetur ef ekkert verð-
ur aðhafst í málinu.
Höfundur er framkvæmdastjóri
stúdentaráðs Háskóla Íslands.
PÉTUR MARKAN
Það er með ólíkindum að í
jafnhörðu árferði og nú er
taki borgaryfirvöld ákvörð-
un um að skera á styrki til
Félagsstofnunar stúdenta
sem hefur þau keðjuverkandi
áhrif að leiguverð á stúdenta-
íbúðum hækki.
TIL LEIGU Í HOLTAGÖRÐUM
LANDIC PROPERTY er eitt stærsta fasteignafélag á Norðurlöndum og sérhæfir sig í útleigu fasteigna til langs tíma. Kringlunni 4–12 | 103 Reykjavík www.landic.is
HOLTAGARÐAR
Höfum til leigu 640 m2 verslunarhúsnæði í Holtagörðum. Í Holtagörðum finnur
þú glæsilega verslunarmiðstöð í alfaraleið, við eina af helstu stofnæðum
borgarinnar, Sæbrautina. Í framtíðinni mun umferð við Holtagarða aukast til
muna þegar Sundabrautin verður lögð.
Í og við Holtagarða eru fjöldi frábærra verslana, aðgengi er til fyrirmyndar og
þar eru yfir 800 bílastæði.
Sjá nánar á landic.is
Nánari upplýsingar fást hjá Ingu Rut Jónsdóttur í síma 660 6828 eða á
irj@landicproperty.is