Fréttablaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Guðmundar
Steingrímssonar
Ég man eftir því sem patti hversu vonbrigðin gátu orðið
gríðarlega mikil þegar íslenska
handboltalandsliðið átti vondan
dag á stórmóti og tapaði fyrir ein-
hverjum austantjaldsrisum eða
Svíum, eins og vanalega, á ósann-
gjarnan hátt auðvitað, svo maður
hljóp með tárin í augunum inn í
herbergi og lokaði að sér, særður
yfir illsku veraldarinnar. Hversu
oft langaði ekki óharðnari æsku
þessa lands, ef ekki almúga öllum,
að senda Staffan nokkrum Olsson
nokkrar kjarnyrtar níðvísur eða
vel orðuð skeyti út af mjög svo
óbilgjörnum sigrum hans og hans
manna, hvað eftir annað, á strák-
unum okkar hér í eina tíð?
EN svo eru líka allar stundirnar,
allt frá barnæsku og upp úr, sem
maður hefur hoppað um eins og
bjáni heima hjá sér aleinn eða með
öðru fólki, í stofum ókunnugra eða
á almannafæri í kjölfar fræki-
legra sigra okkar manna. Þá bros-
ir veröldin. Ég er ekki frá því að
þannig hafi íslenska hand-
boltalandsliðið í gegnum tíðina
kennt þessari veðurbörðu þjóð að
þekkja tilfinningar sínar. Það er
kannski bara allt í lagi að hlæja
saman eða gráta? Maður þarf ekki
alltaf að bera fyrir sig frjókorna-
ofnæmi þegar maður fær tár í
augun.
SJÁLFUR sat ég ásamt unnustu í
bíl á jaðri ítalskrar hraðbrautar í
gær við eina af hinum dásamlegu
ítölsku vegasjoppum Autogrill og
hafði við illan leik náð að tengja
tölvuna við þráðlaust net svo að
upphrópanir hins íslenska íþrótta-
fréttamanns í beinni á Rás 2 gátu
borist okkur eins og úr fjarska. Og
þegar sigurinn var staðreynd, þá
spruttu, jú, fram smá tár, ég verð
að viðurkenna það. Það spruttu
fram tár.
SVO héldum við áfram að keyra.
Stoltir Íslendingar á ferð meðal
þjóðar sem veit líklega ekki hvað
handbolti er. Á Ítalíu sýndu sjón-
varpsstöðvarnar frekar strandfót-
bolta. Hvað er það, spyr ég. Er
keppt í því?
Í hjarta mínu er enginn efi. Nú
tökum við gullið á morgun og ekk-
ert bull. Ekkert krepputal. Engin
árans niðursveifla. Það er bara
eitt sem fólk þarf almennt að
passa: Það yrði dæmigert fyrir
mjög marga að detta rosalega í
það á menningarnótt í kvöld, sofa
yfir sig og missa af leiknum í
fyrramálið. Slíkt myndi leiða til
týpískra íslenskra timburmanna:
Eftir að hafa bókað sigur fyrir-
fram er fagnað rosalega til þess
eins að missa af sjálfum leiknum
og drattast síðan tættur síðdegis
fram í eldhús til þess að spyrja
hvernig fór.
Strákarnir
Í dag er laugardagurinn 23.
ágúst, 236. dagur ársins.
5.44 13.30 21.14
5.21 13.15 21.07
kl. 16:00
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18. 00
12.00 - 18.00
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
KLÁR Í
SKÓLANN?
8.990,-
KARSTEN snúningsstóll
sætishæð 40-52 cm. Svart
FLÖRT askja með loki
28x35x15 cm. Rautt/grátt 695,-
MOTORP tímaritahirslur
Pálmi 1.390,-/2 í pk.
HELMER skúffueining á
hjólum, B28xD43, H69 cm.
Silfurlitað 4.490,-
MÖRKER vinnulampi
25W, H44 cm.
Grátt/bleikt 595,-
BRÄDA stuðningspúði f/fartölvu
B51xD38, H8 cm. Svart/grátt 1.990,-
SPONTAN seglar.
Hvítt/svart
245,-/8 í pk.
JONAS skrifborð m/útdraganlegri plötu
B151xD85/135, H73 cm. Eikarspónn
14.950,-
FLÖRT veski,
ýmsar tegundir.
Ýmsir litir 195,-
2.990,-
MÅLA trönur, B62xD43,
H118 cm. Mjúkviður/hvítt
ANTIFONI vinnulampi
35W, H50 cm. 1.990,-
FLÖRT veski, ýmsar tegundir.
Ýmsir litir 195,-/stk.
FNISS ruslafata, Ø29
H30 cm. Hvítt 250,-
EMU kassar m/loki
1 stk. 18x29x13 cm og
1 stk. 20x36x14 cm.
Tinhúðað 795,-/2 í pk.
LACK bókahilla
B105xD38, H190 cm.
Rautt 12.950,-
STRIPA vegghilla
L79xD9 cm. Ösp 695,-
995,-/2 í pk.
KASSETT DVD box m/loki
21x26x15 cm. Svart
Kryddbakaður lax
með graslaukssósu, kartöum
og grænmeti
665,-245,-