Fréttablaðið - 20.12.2008, Page 2

Fréttablaðið - 20.12.2008, Page 2
2 20. desember 2008 LAUGARDAGUR Sigríður, ertu í skýjunum yfir þessu? „Já, í sjöunda himni.“ Sigríður Klingenberg spákona sló heims- met þegar hún spáði fyrir 198 manns í 37 þúsund feta hæð. SAMFÉLAGSMÁL Löng biðröð myndaðist í gær við hús Fjölskylduhjálpar Íslands í Eskihlíð þegar þriðja og síðasta matarúthlutun fyrir jólin fór fram. Til Fjölskylduhjálparinnar leitar meðal annars fólk úr lágtekjuhópum, öryrkjar, einstæðir foreldr- ar, eldri borgarar og aðrir þeir sem tekst ekki að láta enda ná saman. „Að minnsta kosti þrjú hundruð fjölskyldur fengu úthlutað hjá okkur í dag,“ sagði Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, eftir úthlutun gærdagsins. Í fyrri úthlutunum, 10. og 17. desember, höfðu samtals fimm hundruð manns leitað til samtakanna eftir aðstoð. Samtals þáðu því átta hundruð fjölskyldur aðstoð Fjölskylduhjálpar- innar fyrir þessi jól. Matarskammturinn var vel útilátinn, enda fjöldi fyrirtækja og einstaklinga sem styrkja Fjölskyldu- hjálpina fyrir jólin. Hver fjölskylda fékk hátíðar- mat, eins og hamborgarhrygg, meðlæti, gos, ís, epli og mandarínur, auk annarra matvæla. Ásgerður Jóna segir framlögin gera gæfumuninn. „Þetta var mjög vel útilátið hjá okkur, enda studdu margir vel við bakið á okkur nú fyrir jólin, bæði með matargjöfum og öðrum framlögum.“ - hhs Löng biðröð myndaðist við hús Fjölskylduhjálpar Íslands í gær: Átta hundruð fjölskyldur þáðu aðstoð BEÐIÐ EFTIR MATNUM Um þrjú hundruð fjölskyldur sóttu jólamatinn til Fjölskylduhjálpar Íslands í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VERÐLAUN Stjórn Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins veitti í gær Þórunni Valdimarsdóttur, rithöfundi og sagnfræðingi, viðurkenningu sjóðsins fyrir árið 2008 og 600 þúsund króna verðlaun. Viðurkenning- in hefur verið veitt frá árinu 1956. Kristín Steinsdóttir hlaut hana í fyrra og Jón Kalman Stefánsson árið þar áður. Í stjórn sjóðsins eru Eiríkur Guðmundsson og Jórunn Sigurðar- dóttir frá Ríkisútvarpinu, Pétur Gunnarsson og Kristín Steinsdótt- ir frá Rithöfundasambandinu og formaðurinn Skafti Þ. Halldórsson frá menntamálaráðuneytinu. - sh Útvarpið veitir viðurkenningu: Þórunn verð- launuð af RÚV ÞÓRUNN VALDI- MARSDÓTTIR MATUR Írskur gáda-osthleifur var numinn á brott af heimili sínu í fyrrinótt og skömmu síðar varpað á jörðina. Osturinn, sem staðið hafði á afgreiðsluborði ostaversl- unarinnar Búrsins við Nóatún, komst aftur óskaddaðar í réttar hendur. Eirný Sigurðardóttir, eigandi Búrsins, vann fram eftir í fyrri- nótt og raðaði í gjafakörfur baka- til í búðinni. Þegar nokkuð var liðið fram yfir miðnætti varð hún vör við umgang frammi. Þegar hún kannaði málið sá hún þar mann rogast með stærðar ost út um dyrnar. „Ég hljóp á eftir honum alveg tjúlluð,“ segir Eirný. Þegar út var komið skrikaði þjófnum fótur svo hann missti ostinn. Um var að ræða tólf kílóa gáda- ost frá írskum bóndabæ. Verð- mæti hans er ríflega áttatíu þús- und krónur. „Osturinn slapp,“ segir Eirný. „Hann er ekkert skemmdur.“ Eirný ætlar ekki með málið lengra. „Nei, ekki núna rétt fyrir jól.“ Hún segist hafa áhyggjur af ástandinu fyrst menn séu farnir að brjótast inn til að næla sér í ost í matinn. Eirný hefur þegar uppnefnt þjóf- inn Ostakræki og telur að þar sé á ferð fjórtándi jólasveinninn. - sh Tólf kílóa ostur reyndist þjófi þung byrði þegar hann hljóp af vettvangi glæps: Ostakrækir hnuplar úr Búrinu Í BÚRINU Eirný segist himinlifandi að hafa fengið ostinn aftur, enda mikils virði. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI Piparkökuhúsið féll saman Eitt hús féll saman í jarðskjálftanum sem varð á Skáni nýlega. Það var piparkökuhús í Danmörku. Húsið er nú til sölu á eBay. DANMÖRK LÖGGÆSLUMÁL Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur aug- lýst eftir tuttugu og þremur lög- reglumönnum til starfa. Mikil hagræðingarvinna hefur farið fram innan embættisins og þrátt fyrir aukinn kostnað, svo og nið- urskurð telur hann að dæmið muni ganga upp. Á fimmta tug umsókna hafa borist. Umsóknar- frestur rennur út á Þorláks- messu. Umsóknirnar sem borist hafa eru bæði frá nýútskrifuðum lög- reglumönnum svo og þeim sem hafa hug á að snúa aftur til starfa á höfuðborgarsvæðinu, að sögn Stefáns Eiríkssonar lögreglu- stjóra. „Við miðuðum við þær forsend- ur sem við okkur blasa í fjárlaga- frumvarpinu og gerðum okkur grein fyrir því að við þyrftum að skera niður samkvæmt fyrir- liggjandi kröfum, svo og út af hallarekstri á þessu ári,“ útskýr- ir hann. „Það gerum við meðal annars með því að loka afgreiðslu okkar í Borgartúni og flytja leyfamálin, það er afgreiðslu vegabréfa, ökuskírteina og þess háttar, yfir til sýslumannsins í Kópavogi. Það sparar okkur 10- 20 milljónir.“ Þá verða gerðar breytingar á fyrirkallsdeildinni, einnig í hag- ræðingarskyni, að sögn Stefáns. Hún verður lögð niður í núver- andi mynd. Starfsmenn og verk- efnin færast inn á svæðisstöðv- arnar og í almennu deildina. Þar sparast einnig tugir milljóna. „Síðan erum við að hagræða í launamálunum með því að lækka föst kjör yfirmanna og allra sem eru á einhvers konar fastlauna- samningum, um allt að fimm yfirvinnutíma á mánuði. Einnig að draga úr yfirvinnu almennt séð um sama tímafjölda. Það skil- ar einnig hagræðingu á ársgrund- velli upp á 70 til 80 milljónir. Með þessu móti getum við ráðið inn í þessar rúmlega tutt- ugu stöður um áramótin.“ Stefán segir rekstur lögregl- unnar ekkert sérlega auðveldan á þessum erfiðu tímum. „Það er auðvitað ekki séð hver endanleg niðurstaða verður hjá okkur. Við erum ekki komnir með tryggingu fyrir að við getum ráðið allt þetta fólk. En ef við fáum viðurkenningu á fjárauka- lögum á þeim aukna kostnaði sem við höfum orðið fyrir á þessu ári, bæði vegna verðlagshækkana og viðbúnaðar vegna náttúruham- fara, mótmælaaðgerða og fleira, þá ætti þetta að smella.“ jss@frettabladid.is Hagræðir og ræður tugi lögreglumanna Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Eiríksson, hefur auglýst eftir tuttugu og þremur lögreglumönnum til starfa. Tilfærslur verkefna, svo og lækk- anir á föstum kjörum í hagræðingarskyni, skila embættinu stórum upphæðum. NÝIR LÖGREGLUMENN Hópur nýútskrifaðra nemenda úr Lögregluskóla ríkisins hefur sótt um starf á höfuðborgarsvæðinu. Myndin er frá nýafstaðinni útskrift lögregluskól- ans, þar sem 32 voru brautskráðir. MYND JÚLÍUS SIGURJÓNSSON STEFÁN EIRÍKSSON Ef viðurkenning fæst á auknum kostnaði lögreglu í haust þá smellur dæmið saman. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA OBAMA OG CLINTON Clinton-hjónin hafa ekki fyrr en nú viljað gefa upp hverjir styrkja góðgerðarstofnun forset- ans fyrrverandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BANDARÍKIN, AP Clinton-stofnunin, góðgerðastofnun Bills Clinton fyrr- verandi Bandaríkjaforseta, hefur birt opinberlega lista yfir alla styrktaraðila sína. Það er gert í þeim tilgangi að ljóst verði hvaða fjárhagstengsl gætu hugsanlega haft áhrif á störf Hillary Clinton í embætti utanríkisráðherra Banda- ríkjanna. Samkvæmt upplýsingunum fékk stofnuninni meðal annars fé frá ríkisstjórnum Sádi-Arabíu og Noregs, fyrirtækjum á borð við hið umdeilda öryggisfyrirtæki Blackwater, og frægu fólki á borð við Steven Spielberg. Alls hafa framlög til stofnunar- innar frá upphafi numið 492 milljónum dala, sem samsvarar nærri 60 milljörðum króna samkvæmt gengi gærdagsins. - gb Stofnun Bills Clinton: Fé frá ríkjum og frægu fólki Útiveitingar á Ölstofunni Ölstofa Kormáks og Skjaldar á Vega- mótastíg hefur fengið jákvætt svar frá byggingarfulltrúa við fyrirspurn um það hvort leyfi fáist fyrir útiveitingar með sæti fyrir tólf manns á lóðinni við krána. VEITINGAHÚS LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Blönduósi upprætti fíkniefna- framleiðslu á Skagaströnd í fyrrakvöld. Húsleit var gerð í einbýlishúsi vegna gruns um kannabisræktun. Grunurinn reyndist á rökum reistur og fundust þar um 150 kannabis- plöntur og ýmis tæki og tól til ræktunar. Tveir voru handteknir á staðnum. Þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum. Ræktunin mun hafa verið vel á veg komin en ekki er talið að afrakstur hennar hafi verið kominn í dreifingu. Málið er í rannsókn. - sh Grænir fingur glæpamanna: Kannabisrækt upprætt nyrðra STJÓRNMÁL Innan Samfylkingar hefur verið athugað hvort þingmenn hennar hafi notið sérkjara eða óeðlilegrar fyrir- greiðslu í bankakerfinu. Svo var ekki, segir á heimasíðu flokksins. Með þessu er brugðist við sögum um að meirihluti þingheims hafi fengið lán á öðrum kjörum en almenningur og að skuldir þeirra hafi verið afskrifaðar. „Samfylkingin hvetur til málefnalegrar umræðu um það sem aflaga hefur farið í samfélag- inu og lýsir óbeit sinni á innihalds- lausu slúðri og rógburði,“ segir einnig þar. - kóþ Samfylking kannar þingmenn: Enginn notið sérkjara í banka Newcastle tapar miklu Byggingarsjóður Newcastle býst við að tapa 43 milljónum punda á við- skiptum sínum við íslenska banka. ICESAVE-REIKNINGARNIR SPURNING DAGSINS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.