Fréttablaðið - 20.12.2008, Síða 12
12 20. desember 2008 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL Athugasemdum Sam-
fylkingarinnar vegna draga að
siðareglum þingmanna hefur enn
ekki verið skilað til forsætisnefnd-
ar, en Lúðvík Bergvinsson þing-
flokksformaður býst við að þær
verði afgreiddar á næsta þing-
flokksfundi.
„Við höfum í raun afgreitt þetta,
en svo hefur ekki gefist tími til að
senda þetta frá okkur,“ segir hann.
Drögin fjalla meðal annars um
að þingmenn upplýsi hér eftir um
eignir sínar, launuð störf og helstu
hagsmunatengsl. VG og Framsókn
skiluðu inn sínum athugasemdum
við drögin í haust.
Málið hefur nú velkst um þing-
sali í um tuttugu mánuði. - kóþ
Siðareglur þingmanna:
Samfylkingin skilar
bráðum siðareglum
LÚÐVÍK
BERGVINSSON
ALÞINGI Við upphaf þingfundar í
gær kvaddi Kristinn H. Gunnars-
son, Frjálslynda flokknum, sér
hljóðs vegna auglýsingar frá ASÍ
og BSRB sem birtist í Fréttablað-
inu í gær. Í auglýsingunni, sem
bar yfirskriftina Afnemum for-
réttindin, lýstu samtökin yfir and-
stöðu við frumvarp oddvita ríkis-
stjórnarflokkanna um breytingar
á eftirlaunalögum ráðherra og
þingmanna.
Kristinn spurði Ögmund Jónas-
son, þingmann VG og formann
BSRB, út í auglýsinguna og vildi
vita til hvaða forréttinda væri
verið að vísa. Hvort það væru rétt-
indi BSRB-félaga fram yfir ASÍ-
félaga.
Í svari sínu sagði Ögmundur
Kristin vera sérstakan kapítula í
þingsögunni. Nú hafi hann tekið
að sér að tala máli oddvita ríkis-
stjórnarinnar fyrir sérréttindum í
lífeyrismálum. Sagði hann frum-
varpið skapa þingmönnum og ráð-
herrum meiri réttindi er gerist
almennt. Kristinn væri að reyna
að reka fleyg inn í verkalýðshreyf-
inguna.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
Sjálfstæðisflokki, blandaði sér í
umræðurnar og sagðist ofbjóða að
launþegasamtökin blönduðu sér í
umræðu um þingmál með því að
birta auglýsingu í dagblaði.
Siv Friðleifsdóttir, Framsóknar-
flokki, sagði kostulegt að fylgjast
með umræðunni og vildi koma á
framfæri hver vilji framsóknar-
manna í málinu væri. Hann stæði
til að þingmenn væru í A-deild Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
Það væri gegnsætt og einfalt og
með því væri tómt mál að tala um
að þingmenn nytu sérréttinda.
Kristinn hafði ekki sagt sitt síð-
asta og sagði það hafa dregist upp
úr Ögmundi að þau forréttindi
sem hann vill að verði afnumin
felist í að samkvæmt frumvarpinu
njóti þingmenn betri kjara en þeir
sem greiði í A-deildina. Það sé
hins vegar ekki rétt. „Hann veit að
hann er að segja ósatt,“ sagði
Kristinn og tók til við að bera
saman tölur máli sínu til stuðn-
ings. Niðurstaðan væri sú að líf-
eyrisgreiðslur þingmanna skertust
ef þeir nytu annarra tekna um
leið. Slíkt eigi ekki við um þá sem
greiða í A-deildina. „Af hverju á
ekki hið sama að gilda um alþing-
ismenn að þessu leyti og alla aðra
í þjóðfélaginu?“ spurði Kristinn
og sagði Ögmund fara með ósann-
indi í þinginu tvo daga í röð. „Hann
er í þeim pólitíska leik að reyna að
breiða út ósannindi um kjör alþing-
ismanna af því að hann heldur sig
hafa einhvern ávinning af því að
tala niður stöðu alþingismanna,“
sagði hann. Fleiri gerðu slíkt hið
sama, þeir ættu að hætta því og
fara að segja satt og hætta að
skrökva.
Ögmundur brást við með að
segja margt hægt að læra af
Kristni en ekki að fara rétt með
sannleikann. „Það lærum við ekki
af honum,“ sagði Ögmundur og
vísaði þannig orðum hans á bug.
bjorn@frettabladid.is
Brigslað um
skrök á þingi
Kristinn H. Gunnarsson bað Ögmund Jónasson um
að hætta að skrökva á Alþingi í gær. Líflegar um-
ræður spunnust um eftirlaunakjör þingmanna.
KRISTINN sagði Ögmund skrökva á
Alþingi í gær. Ögmundur sagði ekki
hægt að læra af Kristni að fara rétt með
sannleikann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SIMBABVE, AP Utanríkis-
ráðherrar Norðurland-
anna fimm − Íslands,
Noregs, Svíþjóðar,
Finnlands og Danmerkur
− hafa sent frá sér
sameiginlega yfirlýsingu
þar sem þeir segja að
þeim „blöskri hin
grafalvarlega staða
mannúðarmála“ í
Simbabve og hvetja til
þess að „óstjórn“ Roberts
Mugabe forseta taki tafarlaust
enda.
Ráðherrarnir taka fram
að lönd þeirra haldi áfram
að veita íbúum Simbabve
mannúðaraðstoð. En þeir
vísa jafnframt ábyrgðinni
á hörmungarástandinu í
landinu alfarið til stjórn-
valda þar. Talsmenn SÞ
segja 1.123 manns hafa
dáið úr kólerufaraldri.
Mugabe, sem hefur
verið við völd í 28 ár, vís-
aði á bug erlendri gagn-
rýni og sagði að Simbabve myndi
„aldrei hrynja“. - aa
Ástandið í Simbabve:
Harðorðir ráðherrar
ROBERT MUGABE
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
U
T
I
44
21
0
11
.2
00
8
2.990
6.990
11.990
Nike sportfatnaður
Bolir frá
Buxur frá
Jakkar frá
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500