Fréttablaðið - 20.12.2008, Side 34
34 20. desember 2008 LAUGARDAGUR
Vinnur með arfleifðina
henni og ekki nóg gert í þeim málum
eins og sakir standa. „Það vantar
mikla handmennt í grunnskólana
aftur. Það er svo gott fyrir krakka að
geta tjáð sig með því að teikna og
skapa almennt. Skapandi hugsun er
auðvitað góð fyrir hvern sem er
hvort sem það er viðskiptafólk, lög-
fræðingar eða stjórnmálamenn.“
Lærði að prjóna og sauma hjá ömmu
Sjálf lærði Steinunn að prjóna og
sauma hjá ömmu sinni. „Sjáðu þessa
bók,“ segir hún og dregur fram bók
með sýnishornum af prjónastílum
og útsaumi sem hún gerði í barna-
skóla. „Þessi hefur ferðast með mér
út um allan heim.“ Steinunn segist
sjálf vera gott dæmi um það hvern-
ig þekking á handverki verður að
einhverju meira. „Ég hafði alltaf
mikinn áhuga á að prjóna og sauma.
Mamma var heimavinnandi hús-
móðir og saumaði allt á okkur.
Amma vann á saumastofu, ég kenni
þeim tveimur nú eiginlega um hvar
ég endaði. Ég er alin upp við að mála
og sauma. Það byrjar allt þar,“ segir
Steinunn og hlær.
„Kanntu að prjóna?“ er svo spurn-
ing sem hún dembir skyndilega á
blaðamann sem verður að játa á sig
að vera lítið gefin fyrir hannyrðir.
„Ég er rosalega góð prjónakona, var
alltaf kölluð the „knitting queen“ í
skólanum.“ Og Steinunn upplýsir
hvernig hún hefur ferðast um allan
heim til að kenna prjónaskap. „En
ég neita að kenna fólki að prjóna
eftir uppskrift. Að prjóna er verk-
fræðihugtak fyrir mig sett saman af
sex atriðum, fitja upp, fella af, slétt
og brugðið, auka út í og þrengja, allt
þar á milli er síðan samsetning og
henni getur fólk ráðið,“ segir Stein-
unn sem hefur látið nemendur
prjóna á puttunum með tónlist í eyr-
unum, og þannig látið nemendur
finna fyrir prjónafestu og þeir lært
að prjóna eftir sínum takti. „Það er
svo mikilvægt að brjótast út úr hinu
hefðbundna, það besta sem getur
komið fyrir handverkið er að þú
kunnir það svo vel að þú getir brot-
ist undan því,“ segir Steinunn.
Vanþekking á hönnunarsögu
okkar er mikil og dregur úr tæki-
færum til þess að nota arfleifðina til
að skapa eitthvað nýtt. „Ég er oft í
Þjóðminjasafninu að skoða gamla
hluti og ég held að ég eigi allar þær
myndabækur sem þar hafa verið
gefnar út og vil meina að besta
tískubók sem gefin hefur verið út sé
Til gagns og fegurðar eftir Æsu Sig-
urjónsdóttur,“ segir Steinunn en
tenging hönnunar hennar við
íslenska arfleifð er stór þáttur í
hennar hönnunarferli.
Tilvísanir í sögu og náttúru
Slaufurnar sem hún notar mikið á
flíkurnar sínar eru til dæmis tilvís-
un slifsins í íslenska þjóðbúningn-
um og myndir af fyrirsætum í nýj-
ustu línunni hennar kallast meðvitað
á myndir af íslenskum konum í þjóð-
búningum, uppstilltum hjá ljós-
myndara. En það er ekki alltaf
hlaupið að því að vinna með arfleifð-
ina, þegar hún er ekki vel dókúm-
enteruð. Steinunn minnist þess
þegar hún setti allt á annan endann í
leit sinni að heimildum um gamalt
teppi sem var á hönnunarsýning-
unni „Ómur“. Þetta var vel þekkt
ullarteppi með íslenskum fánalitum
sem hvergi var hægt að finna nein-
ar heimildir um. „Það var síðan eldri
kona sem gat sagt mér nánar frá
þessu teppi sem reyndist vera gam-
alt Álafossteppi frá 1944 og nú má
sjá mynd af því í bókinni Þjóðin,
landið og lýðveldið eftir Vigfús Sig-
urgeirsson. En af hverju er ekki
verið að framleiða það enn þá, ég
bara spyr?“
Fyrir utan að sækja innblástur í
hefðir fær Steinunn sinn megininn-
blástur úr íslenskri náttúru og hún
sækist beinlínis eftir því að ná áferð
landslagsins inn í flíkur sínar; yfir-
borð jökulsins flyst yfir í efni og
verður að flík. Þannig nær hún
eflaust að verða jafn íslensk og raun
ber vitni, þrátt fyrir langa dvöld
erlendis í tískuhúsum þar sem Ísland
nær ekki máli. „Ísland spilar rosa-
lega stóran þátt í fegurðarskyni
okkar Íslendinga og náttúran á stór-
an þátt í því, hún gerir okkur skap-
andi. Þeir sem hafa ferðast mikið
um heiminn vita að við búum á mjög
framandi stað.“
UPPÁBÚNAR Slifsið á þjóðbúningi íslenskra kvenna er innblástur að slaufunum sem eru svo áberandi í hönnun Steinunnar sem sjá má
á hér að ofan og á fyrri síðu. Myndirnar eru úr bókinni Til gagns og fegurðar eftir Æsu Sigurjónsdóttur.
FRAMHALD AF SÍÐU 32
VORIÐ 2009 Íslenskar konur geta hlakkað til þess að Vorlínan 2009 kemur í verslanir í febrúar. MYNDIR/MARY ELLEN MARK.
ÁLAFOSSTEPPIÐ Leiðinlegt er að mati
Steinunnar að teppið sé ekki í fram-
leiðslu lengur. Mynd úr bókinni Þjóðin,
landið og lýðveldið.
það besta sem getur komið fyrir
handverkið er að þú kunnir það svo
vel að þú getir brotist undan því.