Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 46
46 20. desember 2008 LAUGARDAGUR
Hver er ykkar fyrsta minning hvors
um annan?
Siggi Stormur: Það er eitthvað
tengt bókum – það liggur alveg
fyrir. Eflaust eitthvað tengt Iðunni
þar sem hann var sjálfsagt hlaup-
andi inn og út þegar hann var
yngri. Svo kom hann sér fljótlega á
kortið sem ráðandi aðili í bóka-
heiminum.
Jóhann Páll: Ég tók fyrst virkilega
eftir Sigga í veðurfréttunum á Stöð
2 þegar hann hafði kvöldið áður
spáð stórfenglegri hitabylgju.
Hitabylgjan gekk ekki eftir en
þjóðin var öll komin út á götu í Dr.
Gunna-skyrtum og stuttbuxum því
Siggi hafði sagt svo glaðbeittur að
ekki bara ætti hitabylgjan að
standa næsta dag heldur út vik-
una. Kvöldið eftir voru flestir
komnir með kvef, enda enginn gáð
til veðurs heldur bara treyst
spánni.
Siggi átti alveg ógeðslega bágt
og reyndi að skýla sér á bak við
það að hitabylgjan hefði bara taf-
ist aðeins á leiðinni. En ég held hún
hafi aldrei komið! Þetta var sér-
staklega slæmt því þú skynjar það
þegar Siggi Stormur er að segja
veðurfréttirnar – að hann er þessi
manngerð sem vill færa okkur góð
tíðindi – þannig að það er alveg
hroðalegt fyrir hann að lenda í
svona.
Siggi Stormur: Haha. Jú, ég reyni,
ef ég mögulega get, að vera á
jákvæðari nótunum. Það er bara
nóg af öðrum vandamálum fyrir
þótt ég sé ekki að mála þetta svart-
ara en það er.
Jóhann Páll: Siggi er að spá á alveg
kolvitlausum stað á plánetunni.
Þetta eru í raun hrikaleg örlög – að
vilja svo mikið gleðja fólk með
góðu veðri og vera veðurspámaður
á Íslandi! Þetta er algjör klikkun.
Þér væri nær að vera veðurfræð-
ingur á Spáni.
Langar að taka upp samtal Ingólfs
Arnarssonar
Byrjum á máli vikunnar. Leynileg-
um hljóðupptökum og manninum
með hattinn. Hvaða samtal
Íslandssögunnar mynduð þið vilja
heyra?
Siggi Stormur: Mig langar mikið
til að heyra hljóðupptökur af sam-
tölum Geirs Haarde og Davíðs
Oddssonar síðustu vikur og mán-
uði. Þar hefur ýmislegt verið sagt
sem þarf að koma upp á yfirborð-
ið. Þarna er einhver tenging á milli
þeirra sem mér hugnast ekki og
við erum sannarlega ekki að heyra
það sem skiptir máli.
Það er búið að búa til einhverja
mynd af þessum samskiptum út á
við sem við eigum að halda að sé í
lagi en hún er ekki í lagi. Ímynd
Geirs hefur veikst í gegnum þetta
allt og fyrst og fremst vegna þess
að maður veit að það er annar
þarna á bak við sem stýrir.
Jóhann Páll: Ég myndi vilja heyra
þessi samtöl líka. Maður hefur oft
spurt sig, og líka fyrir hrunið, hvað
fari eiginlega á milli Davíðs og
Geirs. Það hefur eiginlega verið
alveg sama að hverju fjölmiðlar
hafa spurt Geir – hvort verið sé að
ræða búfjárrækt eða annað – í
hverju viðtali þurfti hann alltaf að
nefna það svona í leiðinni hvað það
væri nú verið að vinna gott verk í
Seðlabankanum.
Hvers vegna þurfti Geir ævin-
lega að nikka til Davíðs og minna
þjóðina á Davíðs „góðu verk“.
Þessi viðbrögð hans eru á allan
hátt fullkomlega óeðlileg og eiga
sér einhverja skýringu. Hvort það
er það að Davíð eigi mynd af Geir
á Goldfinger eða annað þá er það í
það minnsta eitthvað sem við
vitum ekki. Svo myndi ég vilja
fara aftur til sirka ársins 870. Hvað
var það eiginlega sem Ingólfur
Arnarsson sagði við félaga sína
þegar hann var að telja þeim trú
um að þetta væri góður staður
fyrir landnám. Hvað var það eigin-
lega sem hann sagði sem fékk þá
til að setjast að á þessum útnára?
Stórtækir jólasveinar
Nú eru jólin á næsta leyti og jóla-
sveinarnir farnir að gefa gott í skó-
inn. Hvað mynduð þið gefa hvor
öðrum í skóinn ef þið fengjuð að
vera jólasveinn?
Jóhann Páll: Ég myndi gefa Sigga
barómet og kjöthitamæli í skóinn.
Siggi Stormur: Barómet er einmitt
á jólagjafalistanum mínum! Ég
myndi gefa Jóhanni farmiða til
Kúbu. Fáguð en framandi menn-
ing. Einmitt að hans smekk.
Jóhann Páll: Nú er ég gapandi
hissa. Siggi gæti ekki hafa fundið
betri skógjöf fyrir mig. Kúba er
einn áhugaverðasti staður sem ég
hef komið til og ekkert gæti glatt
mig meira. Ég hef venjulega farið
erlendis eftir jólatörnina til að
komast aftur til sjálfs míns en er
núna algjörlega miður mín að ég
sé ekki að ég komist neitt í almenni-
legt loftslag því það er jú auðvitað
hreinlega siðlaust að kaupa gjald-
eyri á þessu verði.
En ég ætla bara rétt að vona að
Siggi gefi mér þetta í skóinn því þá
get ég kannski réttlætt ferðina.
Hunda- og kattamatur á listanum
Það er óhjákvæmilegt að ræða
kreppu. Margir hafa hamstrað.
Hafið þið hamstrað eitthvað? Og ef
þið ættuð að hamstra einhverjar
þrjár vörur – hvaða vörur yrðu fyrir
valinu?
Jóhann Páll: Nei. Eða jú! Ég hef
hamstrað nikótín-nefúða. Ég hætti
að reykja fyrir mörgum árum og
ætlaði að taka þetta með öllum
þeim fráhvarfseinkennum sem
fylgja: Cold turkey og því. Þá sagði
góður lungnalæknir við mig: Allt í
lagi, Jóhann minn, ef þú hefur tíma
til að vera þunglyndur mánuðum
saman þá skaltu bara gera þetta
eins og þú vilt. Hann þurfti ekki að
segja meira.
En ég er háður þessu á nákvæm-
lega sama hátt og tóbakinu nema
þetta er ekki skaðlegt eins og það.
En ég sem sagt rauk hér á milli
apóteka og prúttaði um verð á
þessu og það er búið að gera mig
útlægan úr mörgum apótekum og
ég er ekki að ljúga þessu. Mér
nefnilega gekk prúttið vel til að
byrja með og hef gjarnan fengið
eins og tíu til fimmtán prósenta
afslátt þegar ég hef verið að kaupa
einhverja tíu brúsa í einu.
Svo hefur yfirleitt verið kallað á
yfirmann í viðkomandi apóteki
þegar ég er að standa í svona miklu
prútti. Svo hefur mér verið til-
kynnt að næst þegar ég kæmi yrði
afslátturinn mun minni, svo næst
þegar ég kem endar það ævinlega
Ætla að hamstra blóðþrýstingslyf
og sefandi geðlyf fyrir rithöfunda
Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi hefur verið gerður útlægur úr nokkrum apótekum eftir að hafa hamstrað nikótín-
nefúða. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, þekktur sem Siggi Stormur, hamstraði evrur en ætlar sér jafnvel að hamstra
hundamat. Júlía Margrét Alexandersdóttir fékk að heyra hvar þeir vilja helst stinga leynilegu upptökutæki um þessar mundir.
Á RÖKSTÓLUM
JÓHANN PÁLL OG SIGGI Jóhann Páll Valdimarsson segist yfirleitt vera orðinn úttaugaður þegar kemur að því að reyna að skreyta jólatréð og myndi því einfaldlega spreyja tréð
hans Sigga með úðabrúsa. Siggi er á því að Jóhann Páll sé afar rómantískur og myndi því hengja rauða hjartalaga sælgætispoka á tréð hans Jóhanns. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jóhann Páll: Siggi er að spá á alveg kolvitlausum stað á plánetunni. Þetta eru í
raun hrikaleg örlög – að vilja svo mikið gleðja fólk með góðu veðri og vera veður-
spámaður á Íslandi! Þetta er algjör klikkun. Þér væri nær að vera veðurfræðingur
á Spáni.
➜ VISSIR ÞÚ?
...Siggi Stormur sefur yfirleitt á bakinu en
Jóhann Páll getur bara sofið í fósturstell-
ingunni.
...Siggi Stormur á hunda
... Jóhann Páll á ketti
...Jóhann Páll sogast að Armani-fötum
og á fullan fataskáp af vönduðum flíkum.
Fæstar þeirra notar hann þó.
...Siggi stormur hefur hins vegar dálæti á
flottum jeppum og er í jeppaklúbbi NFS.
Hann segir þó jeppana fyrsta til að fjúka
af lúxuslistanum ef kreppir að.
...ef Siggi ætti að passa kettina hans
Jóhanns Páls meðan Jóhann Páll færi
á bókamessu í Þýskalandi myndi hann
grilla handa þeim skötusel með hvítlauk
og gefa þeim hvítvín út í vatnið.