Fréttablaðið - 20.12.2008, Side 90

Fréttablaðið - 20.12.2008, Side 90
62 20. desember 2008 LAUGARDAGUR JOHN STEINBECK RITHÖFUNDUR LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1968. „Hugmyndir eru eins og kanínur. Þú færð nokkr- ar og lærir að stjórna þeim og áður en þú veist af ertu búinn að fá 12 nýjar hug- myndir.“ John Steinbeck fékk Nóbels- verðlaun í bókmenntum árið 1962. Frægastur er hann fyrir skáldsögurnar Mýs og menn og Þrúgur reiðinnar. Ríkisútvarpið var formlega stofnað 20. desember 1930. Fyrsti út- varpssjóri var Jónas Þorbergsson og fyrsti fréttamaður Ásgeir Magnússon. Ári síðar tók séra Sig- urður Einarsson til starfa þar og sá um erlendu fréttirnar. Afnotagjald útvarspins var 30 krónur á ári í upphafi og hélst það til 1943. Algengustu útvarpstæk- in voru tveggja lampa Phillips og þriggja lampa Telefunken og kost- uðu þau um 200 krónur sem var nálægt mánaðarlaunum verkamanns í Reykjavík. Það var því ekki á færi allra að kaupa þau. Enda var aðeins eitt tæki skráð á hverja 28 íbúa í lok fyrsta starfsárs Ríkisútvarpsins, eða 3.880 tæki. Mikill áhugi var samt á útvarpinu og hópaðist fólk á kvöld- in heim til þeirra sem áttu tæki og hlustuðu þar. Útvarpstækjum fjölgaði fljótt eftir því sem árunum leið og árið 1938 voru tækin orðin 15.543 eða eitt á hverja sjö íbúa. Heimild/Nýjustu fréttir/Guðjón Friðriksson ÞETTA GERÐIST: 21. DESEMBER 1930 Ríkisútvarpið stofnað timamot@frettabladid.is Okkar bestu þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför ástkærs föður, tengda- föður, afa, langafa og frænda, Hilmars Friðþórssonar, vélstjóra, Dalbæ, Dalvík. Þökkum starfsfólki Dalbæjar fyrir góða umönnun og hlýhug. Magnús Þór Hilmarsson Anna Þ. Ingólfsdóttir Gunnar Jón Hilmarsson Hildur I. Sölvadóttir barnabörn, barnabarnabörn, frændfólk og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, Guðmundur Páll Þorvaldsson Furuvöllum 14, Hafnarfirði, sem lést laugardaginn 13. desember, verður jarðsung- inn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 22. desember kl. 13.00. Helga Aðalbjörg Þórðardóttir Þóra Dröfn Guðmundsdóttir Þórður Rafn Guðmundsson Jakob Darri Markús Blær og aðrir aðstandendur. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, Sigurðar Guðmundssonar Funafold 75, Reykjavík. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks Landspítala - háskólasjúkrahúss fyrir einstaka alúð og umhyggju. Bergþóra Skúladóttir Trausti Sigurðsson Hanna Björk Ragnarsdóttir Stefanía Hrönn Sigurðardóttir Erla Sigurðardóttir Margrét, Snædís og Sólrún Traustadætur. Okkar ástkæri, Björgvin Jósteinsson kennari, Grandavegi 45, Reykjavík, lést á Landakotsspítala aðfaranótt 18. desember. Guðrún Steingrímsdóttir Dóra Björgvinsdóttir Ingi Steinn Björgvinsson Vera Buus-Nilsen Dagný Björgvinsdóttir Jóhann S. Bogason Bryndís Björgvinsdóttir Brjánn Ingason og barnabörn. Ástkær faðir minn, sonur, bróðir, mágur, frændi og vinur, Þór Rúnar Baker Hafnarbraut 21, Höfn í Hornafirði, sem lést af slysförum í Berufirði, sunnudaginn 7. desember síðastliðinn, verður jarðsunginn í Fossvogskirkju mánudaginn 22. desember kl. 13.00. Marteinn Steinar Þórsson Elín Sigríður Markúsdóttir Guðleif Bender & Guðmundur Aðalsteinn Gunnarsson Friðrik Örn Guðmundsson Eva Dögg Guðmundsdóttir Brynjar Freyr Guðmundsson Pálína Sighvatsdóttir Okkar bestu þakkir til allra þeirra fjöl- mörgu sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, afa og langafa, Trausta Guðjónssonar frá Skaftafelli í Vestmannaeyjum, síðast til heimilis á Hjúkrunarheimilinu Grund. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Grund. Ragnheiður Jónsdóttir Halldóra Traustadóttir Einar Jónasson Guðjón Traustason Kristín Erlendsdóttir Kornelíus Traustason Elín Pálsdóttir Símon Eðvald Traustason Ingibjörg Jóhannesdóttir Sólveig Traustadóttir Sigurður Wiium Vörður Leví Traustason Ester K. Jacobsen G. Ingveldur Traustadóttir Geir Jón Þórisson barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ágústína Guðrún Ágústsdóttir Fellsmúla 2, Reykjavík, sem lést mánudaginn 8. desember, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 22. desember kl. 15.00. Gísli Baldur Jónsson Kristrún B. Jónsdóttir Magnús Sigurðsson Romeo D. Rosario Ágústína Guðrún Pálmarsdóttir Einar Bergur Pálmarsson Árni Stefán Gylfason Romeo Ágúst Rosario Ágústína Sara Rosario Sverrir Florente Rosario Lydia Guðrún, Bryndís Theresía, Kristrún Ýr og fjölskyldur. „Ég er búinn að vinna við tölvur í 30 ár og fór fljótlega að hafa áhuga á að láta ekki allt glatast sem þeim viðkem- ur því að þróunin í þeim er mjög ör. Því fór ég að stinga til hliðar tölvum sem áttu að fara á haugana og til að hafa eitthvert utanumhald einskorð- aði ég mig við IBM þar sem ég starf- aði um langt árabil hjá því fyrirtæki.“ Þannig lýsir Sigurður Bergsveinsson tölvugúrú tildrögum þess að hann hóf að safna í kringum sig tölvum og á nú orðið hátt í 50 hluti, að jaðartækjum eins og prenturum og skjám meðtöld- um. Svo Sigurður sé rétt titlaður þá er hann framkvæmdastjóri hugbúnað- arfyrirtækisins Vigor sem er hluti af Nýherjasamstæðunni. Hann kann sögu tölvuvæðingar á Íslandi upp á sína tíu fingur og byrjar á að lýsa því að tölvur skiptist í þrjú svið; stórtölvur, miðtölv- ur og örtölvur. „Örtölvur er það sem allir þekkja því þær eru á skrifborðinu hjá hinum almenna notanda,“ útskýrir hann og heldur áfram. „Þær eru með eina vél. Miðtölvur eru fjölgjörva, sem kallað er, og svo eru stórtölvurnar fjöl- gjörvavélar sem þurfa kælda sali til að vinna í. Þær mörkuðu upphafið. Komu fram strax á 6. áratugnum. Síðan tóku miðtölvurnar við. Þetta gekk hægt og rólega fyrstu árin en á síðari hluta 8. áratugarins komu litlar og ódýrar mið- tölvur á markað og þá varð eiginlega sprenging í tölvuvæðingu. Á árunum 1980 til 1988 má segja að flest íslensk fyrirtæki hafi tölvuvæðst.“ Safnið hans Sigurðar er að hluta til í húsnæði Vigor en síðustu vikur hefur það verið almenningi til sýnis í Þjóðar- bókhlöðunni í tilefni af 40 ára afmæli Skýrslutæknifélagsins. Hverja telur hann merkustu gripina í þessu safni? „Ég hef ekki flokkað það en við eigum alla skjái, allar PC-vélar frá upphafi og töluvert af miðtölvum. Það er svo fyrir fólk framtíðarinnar að meta það hvað því finnst merkilegast.“ gun@frettabladid.is SIGURÐUR BERGSVEINSSON: Á SAFN TÖLVA SÍÐUSTU ÞRJÁTÍU ÁRA Fólk framtíðarinnar metur hvað því finnst merkilegast VIÐ TÖLVUSAFNIÐ Sigurður Bergsveinsson situr fyrir framan IBM Portable PC sem er upphaf fartölvunnar því hún er færanleg og stundum kölluð saumavélin að sögn Sigurðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AFMÆLI SUNNA BORG leik- kona er 62 ára í dag. TEITUR ÞORKELSSON FJÖLMIÐLAMAÐUR er 39 ára í dag. FLOSI EIRÍKSSON viðskiptafræðingur er 39 ára í dag.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.