Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 102
74 20. desember 2008 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
> ÓSKALÖG Í BRÚÐKAUP
Leikkonan Anne Hathaway hefur sett
saman óskalagalista fyrir brúðkaup sitt
þrátt fyrir að hún hafi ekki enn fund-
ið hinn eina rétta. Á listanum eru
lögin Maps með Yeah Yeah Yeahs,
Walken með Wilco og You Are the
Best Thing eftir Ray Lamontagne.
„Það á eftir að verða aðalbrúð-
kaupslagið næstu 25 árin,“ segir
hún um síðastnefnda lagið.
Gítarleikari rokksveitarinnar Queen og
góðvinur Nylon-flokksins, Brian May,
hefur stigið fram með merkilegar
upplýsingar. Hann segist nefnilega
aldrei hafa grunað að Freddie
Mercury væri hommi. Freddie hafi
nefnilega átt urmulinn allan af
kærustum. May og Mercury voru
ákaflega nánir félagar á upphafsárum
hljómsveitarinnar og May hafði ekki
hugmynd um að félagi hans og vinur
væri fyrir stráka. „Ég meina, ég
deildi herbergjum með Freddy á
tónleikaferðum og kynntist mörgum
af hans kærustum og hann átti svo
sannarlega enga kærasta,“ segir May
í samtali við Daily Express.
May segir jafnframt að eftir að
Mercury áttaði sig á samkynhneigð
sinni þá hafi hann farið mjög leynt
með hana á opinberum vettvangi. „Hann
viðurkenndi aldrei bókstaflega að hann
væri samkynhneigður heldur sneri sig
út úr spurningum um það efni. Freddie
var enginn asni,“ segir May og bætir
því við að þeir sem sjái sögu Freddie
Mercury eingöngu í ljósi samkynhneigð-
ar séu á villigötum. „Freddie elskaði
bara tónlist og hann vildi ekki að neitt
gæti stoppað hann í þeirri ástríðu sinni,“
segir May.
Grunaði ekki að Freddie væri hommi
GÓÐIR VINIR Freddie Mercury og Brian May
voru góðir vinir á meðan Freddie lifði en hann
dó úr alnæmi 1991. May segist aldrei hafa grun-
að að vinur sinn væri samkynhneigður.
Íslenska leikkonan Anita
Briem var meðal boðsgesta
þegar hinn glæsilegi stað-
ur, The Conga Room, var
enduropnaður eftir miklar
breytingar fyrr í þessum
mánuði.
Meðal eigenda The Conga Room
eru sjónvarpsleikarinn Jimmy
Smiths sem áhorfendur Skjáseins
kannast við úr Caine, söng-og leik-
konan Jennifer Lopez og körfu-
boltahetjan Baron Davis. Enginn
hörgull var á stórstjörnum í partí-
inu en meðal þeirra sem skemmtu
sér konunglega voru leikkonurnar
Eva Longoria og Jessica Alba. Þá
skorti ekkert upp á smástirnin
sem þrífast á mannfögnuðum á
borð við þennan en þeirra á meðal
var fyrrum Boston Legal-stjarnan
Dylan McDermot.
Kvikmynd Anitu, Journey 3-D,
mæltist vel fyrir og fékk ágætis
viðtökur í bandarískum kvik-
myndahúsum. Leikur hennar í
annarri seríu af The Tudors hefur
einnig vakið mikla athygli og sam-
kvæmt síðustu fréttum mun Anita
leika eitt aðalhlutverkanna í kvik-
myndinni The Storyteller á móti
Idol-stjörnunni Katherine
McPhee.
The Conga Room er á besta stað
í Los Angeles, beint á móti Staple
Center, heimavelli Los Angeles
Lakers. The Conga Room var upp-
haflega hugsað til að koma tónlist-
armönnum frá Suður-Ameríku á
framfæri og var starfræktur á
árunum 1997 til 2006. Nýir eigend-
ur staðarins hafa í hyggju að færa
aðeins út kvíarnar og bjóða upp á
aðeins „almennari“ skemmti-
atriði.
freyrgigja@frettabladid.is
Anita Briem í stjörnupartíi
Í FYLGD MEÐ FRÆGUM Meðal gesta við opnun The Conga Room voru auk Anitu, Eva
Longoria, Jessica Alba, Andy Garcia og fyrrum Boston Legal-hetjan Dylan McDermott
og October Road-leikkonan Laura Prepon. Eigendurnir Baron Davis og Jimmy Smiths
voru að sjálfsögðu meðal gesta en lítið sást til Jennifer Lopez sem á víst í hjóna-
bandsvandræðum um þessar mundir. NORDICPHOTOS/GETTY
JIMMY SMITHS OG FRÚJESSICA ALBA OG BYRON DAVIS EVA LONGORIA OG AMAURY NOLASCO
Sunnudagur 21. desember
Þjóðmenningarhúsið – The Culture House
National Centre for Cultural Heritage
Hverfi sgötu 15 · 101 Reykjavík
Sími 545 1400 · www.thjodmenning.is
Sýningar - leiðsögn - verslun
Sýningarnar Handritin, Surtsey og Ljós-
myndir Hall dórs Lax ness eru opnar alla
daga frá kl. 11 til 17.
Veitingastofan er opin á sama tíma
á virkum dögum.
Þjóðmenningarhúsið verður opið frá
kl. 9 til 12 á aðfangadag og gamlársdag.
Lokað á jóladag og nýársdag.
Bækur, tónlist, kerti og spil og annar
fallegur varningur í verslun.
Sala Kærleikskúlunnar stendur frá
5.–19. desember.
AÐVENTUDAGSKRÁ Í
ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU
Ókeypis aðgangur
Brúðuleiksýning, bókakynning og samvera við jólatréð:
Kl. 14: Brúðuleiksýningin Jesúbarnið. Sögusvuntan fl ytur hugljúfa
sögu byggða á jólaævintýri eftir Leo Tolstoy. Hentar börnum í
kringum 5–6 ára aldur.
Kl. 15: Jón Baldur Hlíðberg og Sigurður Ægisson kynna bók sína
Kynjaskepnur. Myndskreytingar úr henni eru til sýnis í móttöku og
veitingastofu Þjóðmenningarhússins. Hentar allri fjölskyldunni.
Kl. 16: Samverustund við jólatréð í samvinnu við Alþjóðahúsið.
©
F
jö
ls
ky
ld
a
H
al
ld
ór
s
La
xn
es
s
Í dag, laugardaginn 20. desember
Tónleikar við jólatréð:
Kl. 16: Gissur Páll Gissurarson, tenórsöngvari,
og Nýi-kvartettinn fl ytja sígild jólalög, innlend og erlend.
ESKIMOS