Fréttablaðið - 20.12.2008, Side 120
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Guðmundar
Steingrímssonar
11.22 13.25 15.29
11.38 13.10 14.42
Í dag er laugardagurinn 20.
desember 355. dagur ársins.
Þegar mótmælendur fóru að birt-ast hér á landi í eftirleik banka-
hrunsins með lambhúshettur á
höfði, óþekkjanlegir, hafði vinur
minn á orði að þetta væri hið besta
mál. Lambhúshetturnar gerðu
nefnilega óánægðum stjórnarþing-
mönnum og hugsanlega fólki í
ábyrgðarstöðum í embættismanna-
kerfinu kleift að mótmæla án þess
að þekkjast.
NÚ gæti fólk sem alla jafna þyfti
annars að segja sem minnst, vera
rólynt og yfirvegað, fengið útrás
fyrir reiði sína út af kreppunni,
dregið lambhúshettuna niður, steytt
hnefann, arkað af stað og látið und-
ursamleg og frelsandi ókvæðisorð-
in dynja á kerfinu. Lambhúshettan
er hér fullkomið lykilatriði, en einn-
ig er mikilvægt fyrir fólk sem er
mjög þekkt að breyta röddinni
þegar öskrað er.
AUÐVITAÐ er talsverð áhætta í
þessu fólgin. Ekki vill grandvar
millistjórnandi í opinberri fjár-
málastofnun eða í einhverju ráðu-
neytanna láta afhjúpa sig með egg í
lófa og heldur væri það neyðarlegt
fyrir, segjum, stjórnarþingmann ef
lambhúshettan yrði dregin af
honum í miðju hrópi, frammi fyrir
sjónvarpsmyndavélum. Þá held ég
að yrði athyglisvert Kastljósið um
kvöldið og margur Simminn og
Seljan setti í brýrnar. Fyrir hinn
afhjúpaða yrði þó líklega einna erf-
iðast að ákveða hvenær væri besti
tímapunkturinn til að hætta að
breyta röddinni.
VISSULEGA fela þessar pælingar í
sér einungis kæruleysislegt grín í
dumbungslegu skammdegi, en í
þessari spegulasjón um gildi lamb-
húshettunnar í hinni bagalegu stöðu
sem upp er komin, felast þó ákveðn-
ir bitastæðir hlutir. Það eru nefni-
lega fleiri reiðir í samfélaginu en
bara mótmælendur úti á götu, þeir
sem brjóta rúður eða kasta eggjum.
Fólk sem situr bak við skrifborðin
eða við fundarborðin í húsunum sem
fá eggin á sig er ekki síður reitt.
MIG grunar að einhverjir séu alla
vega búnir að kaupa lambhúshettu,
hvað sem síðar verður. Kannski er
hún geymd í skrifborðsskúffunni.
Ef hún finnst er viðkomandi hugs-
anlega búinn að koma sér upp
afsökun í huganum. Maður gæti jú
þurft lambhúshettu ef maður
ákveður að skreppa skyndilega á
rjúpu, eða eitthvað.
REIÐIN er víða og hún beinist í
nokkuð margar áttir. Reiði mót-
mælenda er skiljanleg og verður
fólki á viðeigandi stöðum vonandi
hvatning til aðgerða. En fyrir þjóð-
félagið til langs tíma væri synd ef
reiðin yrði niðurrifsafl, svo hér
syði allt í reiði. Við þurfum ekki
keppni í reiði. Það er nóg samt. Við
þurfum keppni í snilli, raunsæi,
góðum hugmyndum og framsýni.
Lambhúshetta
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is