Tíminn - 31.12.1982, Síða 8

Tíminn - 31.12.1982, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli Magnusson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Eiríkur St. Eiríksson, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Sigurður Helgason (iþróttir), Jónas Guðmundsson, Jón Guðni Kristjánsson, Kristín Leifsdóttir, Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Elín Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavik. Sfmi: 86300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsfmar: 86387 og 86392. Verð í lausasölu 11.00, en 15.00 um helgar. Áskrift á mánuði: kr. 150.00. Setning: Tæknidelld Timans. Prentun: Blaðaprent hf. Áræði og úthald ■ Bandaríska vikublaðið „Time“ birti fyrir nokkru Efnahagsbandalagi Evrópu og gat jafnframt um ástand og horfur í Vestur-Evrópu yfirleitt. Samkvæmt þessu yfirliti „Time“, hefur verðbólgan. í Vestur-Evrópu verið til jafnaðar um 8.6% meiri í árslokin nú en hún var í lok síðasta ^rs (1981). Þessi tala gefur til kynna, að verðbólguvandinn hér er mörgum sinnum meiri en í öðrum löndum Evrópu, þótt hann sé að vísu misjafn þar eftir löndum og framangreind tala sé aðeins meðaltal. Reyndar er þetta ekki nýtt, því að á tímum viðreisnarstjórnarinnar svonefndu varð verðbólgan oftast þrisvar til fjórum sinnum meira hér en í öðrum löndum Vestur-Evrópu. Sá samanburður breytir ekki því, að verðbólgan hér er mikið vandamál, sem taka þarf fastari tökum en gert hefur verið um skeið. Af framangreindri tölu mætti draga þá ályktun, að efnahagsástandið væri mörgum sinnum betra annars staðar í Vestur-Evrópu en hér. Þetta er þó ekki staðreyndin. í „Time“ birtist önnur tala, sem er ekki minna athyglisverð. Þessi tala sýnir, að nú um áramótin eru þrettán menn af hverju hundraði vinnufærra manna atvinnu- lausir í Vestur-Evrópu. Flestir þeirra njóta atvinnu- leysisstyrkja. Þetta kostar hið opinbera gífurlegt fé. Það er þó ekki þyngsti bagginn. Miklu þyngri baggi er hið margvíslega böl, sem er fylgifiskur atvinnu- leysisins. í þessum efnum stendur ísland mörgum sinnum betur. Hér er ekkert atvinnuleysi. Fegar það er tekið með í reikninginn, verður efnahagsvandinn, annars staðar í Vestur-Evrópu sízt minni en hér. Það breytir hins vegar ekki þeirri staðreynd, að verðbólgan hér er á góðum vegi að sliga svo atvinnuvegina, að mikill samdráttur þeirra er fram- undan, ef fylgifiskur hans verður atvinnuleysi. Hér getur fljótlega orðið mikið atvinnuleysi, ef ekki er tekið fljótlega og sterklega í taumana. En er hægt að ráða við verðbólguna? Hefur það ekki hingað til mistekizt öllum íslenzkum ríkisstjórn- um? Því miður verður að i játa það. Einstök dæmi sýna þó, að þetta er hægt, ef ekki skortir áræði og úthald. Niðurfærslan, sem ráðizt var í um næst síðustu áramót, gaf góða raun. Hefði þannig verið haldið áfram í áföngum, væri efnahagsástandið nú annað og betra. En samstarfsaðila Framsóknar- flokksins brast úthald. Því er eins ástatt í dag og raun ber vitni. Það er hægt að ráða við verðbólguvandann. En það verður ekki gert í einu stóru stökki - eða leiftursókn. Það verður ekki gert, án atvinnuleysis, nema í áföngum. Vandinn við þá leið, er hins vegar sá, að hann útheimtir festu og umfram allt úthald og þrautseigju. Megi nýja árið færa þjóðinni áræði og úthald til að glíma við verðbólguna með æskilegum árangri. Þ.Þ. eftirminnilegustu atburðir lidins árs ■ Séra DaUa Þórðardóttir „Skemmtilegt að koma heim full af hugmyndum“ - Segir sr. Dalla Þóröardóttir ■ „Ferð mín til Þýskalands á vegum kirkjunnar, sem fulltrúi Íslands er mér einna efst í huga. Það var verið að undirbúa heimsfund Alkirkjuráðsins sem haldinn verður í Kanada á næsta ári“, sagði sr. Dalla Þórðardóttir sóknar- prestur á Bíldudal. „Við fengum m.a. að ferðast um og skoða kirkjulíf í Þýskalandi. Það er alltaf gott að sjá hvernig aðrir fara að og auðvitað mjög skemmtilegt að koma heim full af hugmyndum. Þetta stappar í mann stálinu að reyna að hrinda einhverju nýju í framkvæmd hér heima í sókn- inni“, sagði Dalla. Hún var þegar byrjuð. Eftir heimkomuna fór hún að efna til bænastunda í kirkjunni og biblíulestra. „Nýja árið? - Fyrst og fremst er maður bjartsýnn á nýtt ár, eins og á lífið sjálft. Nýtt ár gefur ótæmandi möguleika á að reyna eitthvað nýtt eða betrumbæta annað sem maður veit af reynslunni að hægt er að gera betur. Og svo er það svo skemmtilegt að vita ekki að hverju maður gengur - það kryddar tilveruna. “ - HEI „Sýndi hverju lítil þjóð fær til leiðar komið“ - Segir Friöjón Guðröðarson, sýslumaður ■ „Heimavettvangurinn vill löngum verða næst manni. Á þessu ári lukum við t.d. við að stækka Elli- og hjúkrunar- heimili sýslunnar, svo að þar rúmast nú 40 vistmenn í stað 25 áður“, sagði Friðjón Guðröðarson sýslumaður á Höfn spurður markverðra og minnis- stæðraatburðaáárinu 1981 íhanshuga. „Þá var mjög ánægjulegt fyrir okkur Skaftfellinga að fá í fyrsta skipti að taka á móti forseta íslands ásamt Ingiríði ekkjudrottningu af Danaveldi er var í fylgd með henni. M.a. var þetta ánægju- legt vegna þess að gestir þessir nutu greinilega þess sem þeir heyrðu og sáu auk þess að vera afskaplega þægilegar manneskjur sem sameina látleysi og virðuleika þannig að allt verður óþving- að í návist þeirra. Með framkomu sinni á erlendri grund hefur forseti vor að mínu mati verið mikill og góður „good- will ambassador“. Undirritun Hafréttarsáttmálans þótti ■ Kjartan Jóhannsson, formaður Al- þýðuflokksins þegar hópur sem ég var í, fann fyrir tilviljun sex hollenskar stúlkur sem höfðu verið skildar eftir í reiðileysi og bjargar- leysi í fjallaskúr á öræfum Islands, eftir miklar hrakningar. Ég lít til þess með gleði, hversu ánægðar þær urðu á endanum, þegar tókst að greiða úr þeirra málum. í öðru lagi er mér minnisstætt hve setning seinasta fokks- þings Alþýðuflokksins var glæsileg og í þriðja lagi viðræður sem ég lenti í við Arbatov, einn af sérfræðingum Sovét- ríkjanna í utanríkismálum og snérust upp í kappræður, en þessi maður er reyndar talinn mjög handgenginn And- ropov, sem nú er kominn til æðstu valda í Sovétríkjunum, „sagði Kjartan Jó- hannsson, formaður Alþýðuflokksins. Jafnframt sagði Kjartan: „Annars er mér efst í huga það stjórmálalega öngþveiti og þær stjórnaraðgerðir sem hér hefur verið beitt í efnahagsmálum mörg undanfarin ár, og hafa náð hámarki á þessu ári, séu nú gjörsamlega komnar í þrot. Mér finnst líka að á árinu hafi sannast hversu miklu betur við stæðum nú, ef að stefnumörkun Alþýðu- flokksins hefði verið fylgt. - AB Dr. Gunnar Thoroddsen, forsætrisráðherra. „Verulegur brestur í þorsk- og loðnuveiðum“ „Það voru alvarlegustu tíðindin fyrir íslendinga í ár, þegar ljóst varð að ofan á heimskreppuna, sem kemur þungt niður á þjóðinni, bætist verulegur brest- ur í þorsk- og loðnuveiðum," sagði dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra, þegar hann var að því spurður hvað honum væri efst í huga á þessu ári sem nú er að líða. - AB Leifur Breiðfjörð myndlistarmaður: Ég hef haft næg verkefni að vinna að Ég hef fengið ýmis skemmtileg verk- efni að vinna að á þessu ári, sagði Leifur Breiðfjörð myndlistarmaður, en hann fæst einkum við glerlist og glugga- skreytingar,-núna sunnudaginn annan janúar verður vígður eftir mig 30 fermetra gluggi sem ég hef verið að vinna að fyrir Fossvogskapellu, sömu- ■ Ingi Tryggvason, formaður Stéttar- sambands bænda ■ Friðjón Guðröðarson, sýslumaður mér líka mjög merkilegur atburður, ekki síst þar sem við íslendingar höfðum mótandi áhrif á gerð hans, undir skeleggri forystu Hans G. Andersen. Sýndi það hverju lítil þjóð fær til leiðar komið hafi hún hæfa menn í sinni þjónustu", sagði Friðjón. Á nýja árinu óttast Friðjón kreppu- tíma. Samdrátt t.d. í verklegum fram- kvæmdum hins opinbera, og jafnvel almennan, og atvinnuleysisvofuna í dyragættinni. „Ný ríkisstjórn þyrfti að vera þannig saman sett að hún verði fær um að stjórna þjóðinni með styrkri hendi - hún vill það. Við Islendingar þurfum líka að hverfa frá þessari bruðl- og eyðslustefnu sem hér hefur ríkt á öllum sviðum þjóðlífsins - bæði hjá ríki, sveitarfélögum og heimilum. Skera þarf niður ýmsan óþarfa og lúxus og lifa sem mest af því sem landið,, gefur, þ.e. að búa að sínu“, sagði Friðjón. - HEI Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins: „Sigur Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosning- unu“ ■ „Auðvitað er mér efst í huga, á þessu ári sem nú er að líða, sú þróun í stjómmálunum, sem kom fram í sveit- arstjórnarkosningunum, þegar Sjálfstæðisflokkurinn vann mikinn sigur og endurheimti meirihluta sinn í borg- arstjórn Reykjavíkur að nýju,“ sagði Geir Hallgrímsson. Hann sagði jafnframt: “{tengslum við þá þróun, eftir upplausnarstjórn margra flokka í vinstrimeirihluta í Reykjavík, hefur komið staðfesta og stjómmálaleg forystu, hins nýja borgarstjómarmeiri- hluta. Þá er það og ofarlega í huga, á næsta ári, þegar gengið verður til alþingiskosninga, að samskonar breyting eigi sér stað - að í stað vinstri stjórnar, sem hefur létt okkur í ógöngur, komi traust stjórn, sem beri gæfu til að leiða okkur út úr þeim ógöngum." - AB Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins: „Stjórnmálalegt öngþveiti“ „Mér sýnist að þrír atburðir séu mér minnisstæðastir frá árinu. f fyrsta lagi ■ Geir Hallgrímsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins ■ Gunnar Thoroddsen. forsætisráð- herra

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.