Fréttablaðið - 07.02.2009, Blaðsíða 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI7. febrúar 2009 — 34. tölublað — 9. árgangur
Bankarnir féllu,
hvað fellur á okkur?
FRÉTTASKÝRING 26
TÓNLIST 22
YFIRHEYRSLA 44
TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG
H
ugmynd almennings nú á
dögum um fyrirbærið Flóka
er bundin við verk hans,
penna og kolateikningar
sem eru víða til á íslenskum
heimilum. Sú ímynd sem hann skóp af
sjálfum sér í blaðaviðtölum og opinberri
framgöngu er enn í minnum höfð: orð-
snjall, fyndinn, sjálfhælinn og einstakur
var hann í ímyndarsköpun sinni á opin-
berum vettvangi. Í persónulegri við-
kynningu var allt þetta líka en þar fór
einstaklega ljúfur drengur, tryggur
vinum sínum, sjálfstæður maður með
djúpa þekkingu á menningu álfunnar
með rætur aftur í borgir Evrópu sem
mátti ekkert aumt sjá og vildi öllum vel.
Gæska hans var á skjön við þann dulda
heim grimmdar, losta og lystisemda sem
hann átti svo auðvelt með að skissa upp í
formfastri byggingu flatarins sem var
akurinn sem hann pældi ár og síð með
hvíldarárum á sumum skikanna.
Borgarselskapurinn sem Flóki var
sprottinn úr var eftirstríðsárafyrir-
bæri, sama menningardeildin og Jökull
Jakobsson dró upp á sviðið og vann úr:
stórisar, útsaumaðir púðar, þröngsýni
í flestum efnum með tilheyrandi bæl-
ingu og brotum. Flóki elskaði að storka
þessari settlegu veröld, sat á ystu nöf
og hló dátt, hátt og í hljóði eftir því sem
færi gafst: gat það verið að þessi pass-
íuklippti snyrtipinni byggi með tveim-
ur konum og nyti Þeirra beggja – jafn-
vel í senn? Magabeltakynslóðin hryllti
sig undir gullrömmuðum landslagsmál-
verkunum og lagði Moggann sinn frá sér
með höfuðið fullt af ósiðlegum lostarík-
um órum þegar hann bjó þá skyndimynd
til. Þá mynd dró Flóki upp í hugum betra
selskapsins í henni Reykjavík skömmu
eftir 1960 og hló að dáralega.
Hláturinn var enda hans helsta lífs-
magn. Fáir menn voru skemmtilegri en
hann og því var hann vinamargur, svo
ólíkur sem sá söfnuður var sem sótti
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
menning
febrúar 2009
DAGUR Í LÍFI RASSHÁRS
Dr. Gunni fór að sjá Sannleika
Péturs Jóhanns Bls. 6
Framhald á bls. 2
Elsku DRENGURINN MINN
Án titils, blek á pappír,1987.
Á fi mmtudagskvöld opnaði Listasafn
Reykjavíkur stóra sýningu í Hafnarhús-
inu sem gefur yfi rlit yfi r feril Alfreðs
Flóka myndlistarmanns. Sýningarstjóri
er Sjón sem á unglingsárum settist við
fótskör meistarans og endurgeldur nú
gamla skuld en Flóki var forgöngumað-
ur um súrrealisma og mystík í íslenskri
myndlist.
MYNDLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
Sjálfsmynd, rauðkrít , 1958.
VELKOMIN
HEIM
Sýning Íslenska dans-
flokksins er rokkkonsert
með gógódönsurum
Bls. 4
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
Vildi fylgjast með
Chaplin að störfum
Ragnheiður Axel og
Úrsúla Örk búa til
Bento-box í skólann
NESTI SEM
FÆR BÖRN
TIL AÐ BROSA
Gogoyoko
fer brátt í
loftið
Mín Borg ferðablað
Icelandair fylgir með
Fréttablaðinu í dag.
GEYMIÐ BLAÐIÐ
HEILSA 42
MIKIL
VIÐBRÖGÐ
VIÐ PISTLUM
VIÐTAL 28
Opið 10–18
Götumarkaður
EFNAHAGSMÁL Lagt er til að „eitr-
aðar eignir“ nýju bankanna verði
færðar undir sérstakt eigna-
umsýslufélag. Þetta kemur fram
í skýrslu Mats Josefsson, sænsks
bankasérfræðings sem forsætis-
ráðuneytið kallaði til verka í
desember. Verið er að leggja loka-
hönd á skýrsluna.
Samkvæmt heimildum blaðsins
er horft til þess að styrkja stöðu
nýju bankanna með því að færa
undan þeim eignir sem óvissa er
um heimtur á. Yfir í eignaumsýslu-
félagið verði svo jafnframt færð
langtímalán úr bönkunum, sem
„eitruðu eignirnar“ eru líklegar til
að standa undir afborgunum af.
Með þessu fengist meiri stöðug-
leiki í rekstur nýju bankanna sem
á einu bretti myndu losna við mörg
erfið mál og gætu einbeitt sér að
grunnstarfsemi hér heima, útlána-
þjónustu til almennings og fyrir-
tækja. Þá væri unninn tími til að
bjarga verðmætum og selja eitr-
uðu eignirnar þegar aðstæður til
þess eru hagfelldari á mörkuðum.
Mat sérfræðinga er að nokkuð
mörg fyrirtæki hér gætu fallið í
þennan flokk „eitraðra eigna“. Það
gæti til dæmis átt við um helstu
fjárfestingafélög, fyrirtæki í bygg-
ingariðnaði, sem og fyrirtæki í
innflutningi bifreiða.
Leið þessi er frábrugðin svo-
nefndri „bad bank“-leið sem stjórn-
völd í Bandaríkjunum og Bretlandi
hugleiða í því að þar eru „eitruðu
eignirnar“ keyptar út úr bönk-
um með peningagreiðslu. Þá er
sá munur á að hér hafa bankarnir
þegar verið teknir yfir og því ekki
verið að kaupa eignir út úr einka-
fyrirtækjum.
Þá er talið líklegt að í tillögum
sænska sérfræðingsins sé mælst
til þess að ríkið stofni eignarhalds-
félag til að fara með eign þess í
nýju ríkisbönkunum, setja þeim
stefnu og annast sölu þeirra þegar
aðstæður hafa batnað á mörkuð-
um, en það væri í samræmi við
svokallaða „sænska leið“ við upp-
byggingu á bankakerfi eftir hrun.
Mats Josefsson starfaði síðustu
13 ár hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um, áður var hann hjá sænska
fjármálaeftirlitinu og þar á undan
í sænska seðlabankanum. - óká
Vandræðafyrirtæki
fari í sérstakt félag
Unnið er að lokafrágangi skýrslu Mats Josefsson, sænska bankasérfræðingsins
sem í desemberbyrjun var ráðinn til að vinna að uppbyggingu bankakerfisins.
FERÐIR Dagsferð með óvæntum
ferðafélögum virðist heilbrigð
leið til að finna betri helminginn.
„Gönguferðir eru tilvalinn
vettvangur til að kynnast nýju
fólki, en hátt í helmingur ferða-
langa koma einir. Við höfum því
oft séð upphaf fallegrar vináttu,
ekki síður en ástarsambönd sem
kvikna,“ segir Bjarney Sigurjóns-
dóttir hjá Útivist, aðspurð um
algengi Amorsörva milli ferða-
langa félagsins. Í dagslöngum
gönguferðum fái fólk með sam-
eiginlegan áhuga á útivist nægan
tíma til að kynnast. Þá njóti rað-
göngur vinsælda, þar sem fólk
fer í fleiri en eina ferð með sama
hópi, sem skapar enn betra færi á
myndun vináttu og ástar.
- þlg / sjá allt
Á faraldsfæti með Útivist:
Ást á fjöllum
STJÓRNMÁL Skerpa þarf á skipt-
ingu valds milli stjórnarstofnana
þannig að þær veiti gagnkvæmt
aðhald, að mati
Sigurðar Líndal
lagaprófessors.
Sigurður
segir að and-
stætt því sem
stefnt var að
hafi fram-
kvæmdavaldið
vaxið löggjafar-
valdinu yfir
höfuð. Ráð-
herravald-
ið seilist einnig til áhrifa innan
dómsvaldsins.
Þá spyr Sigurður hvort sú
valdasamþjöppun sem orðið
hefur á ráðherravaldinu hafi
hamlað eðlilegri markaðsstjórn
og átt nokkurn þátt í efnahags-
hruninu.
- bs/ sjá síðu 18
Sigurður Líndal lagaprófessor:
Skerpa þarf á
skiptingu valds
SIGURÐUR LÍNDAL
PRÓFESSOR
DULARFULLA KÁPUHVARFIÐ Uppi varð fótur og fit þegar yfirhöfn dómsmálaráðherra hvarf að loknum ríkisstjórnarfundi í Ráð-
herrabústaðnum í gær. Starfsmenn ríkislögreglustjóra brugðu hart við og í ljós kom að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
hafði numið kápu Rögnu Árndóttur á brott með sér í misgripum. Sjá síðu 62 FRÉTTABLAÐIÐ/GVA