Fréttablaðið - 07.02.2009, Blaðsíða 22
22 7. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
og áhangendum standa til boða fleiri
leiðir til að nálgast tónlistarmanninn
og öfugt. En MySpace hefur að mörgu
leyti ekki sama vægi og áður og tónlist-
armarkaðurinn er að breytast. Með því
myndast mikið af sóknartækifærum á
netinu. Það eru mjög spennandi tímar
fram undan.“ Haukur viðurkennir að
síðan sé auðvitað aðallega fyrir þá sem
eru haldnir mikilli tónlistarástríðu.
„Þarna getur fólk farið inn og fundið
ákveðin bönd sem þeir hafa áhuga á og
þá bendum við líka á aðra tónlist sem
fólk gæti haft áhuga á út frá því. Svo
er þetta líka verslun, þar sem þú ert
með innkaupakörfu og getur keypt þér
þau lög og þær plötur sem þú vilt. Auk
þessa verður tímarit inni á vefnum þar
sem hægt verður að finna greinar og
viðtöl við hljómsveitir. Stefna okkar er
sú að verða með mikla breidd tónlistar
og þar verði að finna alls kyns stefnur
fyrir alla.“ Haukur segir að hlutirnir
séu hægt og rólega að breytast frá sölu
á geisladiskum yfir í sölu á stafrænni
tónlist. „Ég hugsa að geisladiskurinn
verði fyrir rest meira eins og vínyll-
inn er orðinn, að fólk kaupi sér þá til
þess að hafa undir höndum eitthvað
sérstakt og eigulegt. Það eru nýjar
kynslóðir tónlistarneytenda sem hafa
aldrei keypt sér geisladisk heldur eru
með tónlist á i-podinum sínum, síman-
um og tölvunni.“
Sérstakt hlýtur að teljast að vera
með fyrirtæki í fullri sókn á meðan
að önnur hrynja á tímum mikillar
kreppu. „Þetta er búinn að vera gíf-
urlegur rússibani frá því að við stofn-
uðum fyrirtækið,“ útskýrir Haukur.
„Fyrir ári var krónan sterk og erfitt
var að finna gott fólk á lausu í hugbún-
aðarvinnu og forritun. Við leituðum því
út fyrir landsteinana, alla leið til Ind-
lands. Svo hafa hlutirnir gersamlega
umturnast. En ég held að ástæðan fyrir
því að þetta er farið að ganga svona vel
hjá okkur er óbilandi trú okkar allra á
konseptinu. Við erum þess fullviss um
að við séum að skapa eitthvað skemmti-
legt, eitthvað sem eigi framtíðina fyrir
sér.“ Að sögn Maríu var það ákveðið
aðdráttarafl í byrjun fyrir útlendinga
að gogoyoko væri íslenskt fyrirtæki en
þegar bankahrunið átti sér stað höfðu
þau áhyggjur af ímynd Íslands. „Sem
betur fer virðist Ísland jafn svalt eftir
sem áður hvað tónlist varðar. Það eina
sem gerðist þegar hrunið átti sér stað
að útlendingar höfðu samband og buð-
ust til að senda þyrlur til að bjarga
okkur eða henda í okkur matarpökk-
um,“ segir hún og hlær.
Eldar bætir við að það sé ákveðinn
meðvindur með gogoyoko um þessar
mundir en að þau séu enn í skotgröf-
unum við að vinna þetta. „Við erum í
eilífri baráttu, það þarf margt að ganga
upp en við erum gífurlega metnaðar-
full og viljum að gogoyoko vaxi og
dafni.“ Á krepputímum er talað um að
sprotafyrirtæki eins og gogoyoko verði
sóknarfæri Íslendinga og Haukur tekur
undir það. „Hugvit og menning eru þeir
geirar sem Íslendingar hafa alltaf stað-
ið sig vel í og við eigum að einblína á.
Listir eru eitt það mikilvægasta sem
mannskepnan á og ég tel okkur Íslend-
inga vera mjög framarlega hvað sköp-
unarkraft varðar, allt frá þeim tíma
sem Íslendingasögurnar voru skrifað-
ar. Við erum með menningu á heims-
klassa þó að við höfum ekki staðið
okkur vel í fjármálageiranum. Þetta er
það sem Íslendingar ættu að einblína
á.“ Næsta stóra skref hjá gogoyoko
verður þegar vefurinn verður opnað-
ur fyrir heiminum. „En þangað til geta
tónlistarmenn og tónlistaráhugamenn
sótt um aðgang og eftir því sem kerfið
ber fleri notendur bætum við fleirum
inn,“ útskýrir Eldar. Haukur bætir við
með brosi á vör: „Til allra þeirra sem
hafa ekki enn komist inn þá biðjum við
fólk að sýna þolinmæði! Takk fyrir að
bíða!“ Haukur segist vonast til þess að
hugmyndafræðin á bak við gogoyoko
heilli fólk nóg til þess að orðið berist.
„Íslendingar, látið orðspor gogoyoko
ganga!“ bætir hann við og hlær.
N
ýtt skrifstofuhúsnæði
gogoyoko er bjart og
rúmgott og einmitt eins
og maður ímyndar sér
skapandi og skemmti-
legan vinnustað. Mál-
verk prýða veggi og í eldhúsinu er að
finna alls kyns hljóðfæri og bongó-
trommur. Mennirnir tveir sem standa
að baki gogoyoko eru báðir tónlist-
armenn og þekkja harkið sem fylgir
tónlistinni af eigin raun. „Pétur hafði
samband við mig í byrjun september
2007 með hugmynd um að stofna nýtt
útgáfufyrirtæki,“ útskýrir Haukur
Magnússon, sem var kenndur við raf-
hljómsveitina Funk Harmony Park, en
Pétur Einarsson, félagi hans, var best
þekktur fyrir hljómsveitina Pornopop.
„Ég hafði reynslu af að vera með lítið
útgáfufyrirtæki og var með samning
við dreifingaraðila í Bretlandi. Í kjöl-
farið byrjuðum við að spá og spekúl-
era og ákváðum að við vildum búa til
draumavettvang fyrir tónlistarmenn
og forða þeim frá þessum eilífa höfuð-
verk sem fylgir útgáfu og kynningar-
málum. Að sjálfsögðu eru tónlistar-
menn með vefinn MySpace þar sem
þeir fá ákveðna kynningu og geta sett
nokkur lög inn fyrir fólk til að hlusta
á, en þar endar dæmið.“ Haukur segir
þá félaga ekki hafa séð neitt því til
fyrirstöðu að það gæti skapast öflug-
ur vettvangur á netinu þar sem tónlist-
armenn gætu selt tónlist beint til sinna
aðdáenda. „Við ákváðum að fara alla
leið með hugmyndina. Að hún myndi
einkennast af gæðum, að slík síða yrði
verulega glæsileg og notendavæn.
Einnig gerðum við okkur grein fyrir
því að ef slík hugmynd yrði að veru-
leika yrði það afar stórt skref og að
henni myndi fylgja gífurleg vinna.“
Ferlið hófst þegar þeir hittu Reyni
Harðarson hjá hugbúnaðarfyrirtæk-
inu CCP og þar fékk hugmyndin líf. Að
sögn Hauks kom nafnið gogoyoko upp
í kollinn á þeim strax í upphafi. „Við
erum með nokkuð margar skýringar á
því hvaðan nafnið kemur en aðalástæð-
an fyrir valinu var sú að orðið hljómar
vel. Nöfn þurfa ekkert endilega að þýða
margt, geta jafnvel verið algjört bull,
það mikilvæga er að þau nái að fest-
ast í minni fólks. Margir spyrja hvort
nafnið tengist ekkju Johns Lennon,
Yoko Ono, en það gerði það nú ekki í
byrjun. Hins vegar er bara heiður ef
fólk tengir okkur við Yoko Ono á ein-
hvern hátt, hún er flott manneskja sem
hefur gert flotta hluti.“ Í mars á síðasta
ári fór svo vinnsla á vefnum í gang, en
um tíu manns vinna við forritun hans
á Indlandi og ellefu manns vinna hjá
gogoyoko á Íslandi í fullu starfi. Meðal
starfskrafta er fólk úr hinum ýmsu
geirum, þar á meðal Eldar Ástþórsson,
sem er þekktastur fyrir störf sín hjá
tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves,
Gylfi Blöndal, meðlimur hljómsveit-
arinnar Kimono, en hann sá einnig
um tónleikahald á Organ, og mynd-
listarmaðurinn Hafsteinn Michael
Guðmundsson, sem einnig spilar með
hljómsveitinni The Way Down.
Skapað af tónlistarmönnum fyrir
tónlistarmenn
Vefsvæði gogoyoko svipar til Myspace
að því leyti til að þar getur fólk stofn-
að sinn eigin reikning, eða síðu. „Þar
geta listamenn selt tónlistina sína, birt
upplýsingar um tónleika og selt miða
á tónleika. Einnig geta þeir hlaðið inn
tónlistarmyndböndum, sett inn plötu-
umslög og átt í samskiptum við sína
aðdáendur. Það einstaka við vefinn er
að við segjum ekkert tónlistarmönnum
hvað þeir eiga að gera nákvæmlega.
Þeir geta ráðið því hvort þeir vilja bara
kynna tónlistina, selja hana og á hvaða
verði,“ útskýrir Eldar. „Listamennirn-
ir hafa því fulla stjórn á síðunni sinni
og þeir gætu til dæmis sett inn klukku-
tíma gamla tónsmíði og tekið hana út
strax daginn eftir ef þeir óska þess.“
Það sérstaka við gogoyoko er að lista-
menn fá allan ágóða af sölu tónlistar
sinnar fyrir utan færslukostnað vegna
greiðslugáttakerfisins og lagalegum
skyldum. „Tekjur okkar byggjast því
á auglýsingum og svo út frá ákveðinni
þjónustu sem við munum veita tón-
listarfólki og tónlistaráhugamönnum,
þar á meðal söluvarning ýmiss konar
og miðasölu.“ Í byrjun árs var geng-
ið frá samningum fjárfestingarfélags
í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
og Vilhjálms Þorsteinssonar, stjórnar-
formanns CCP, við gogoyoko um fjár-
mögnun fyrirtækisins en hún nemur
100 milljónum króna. „Þetta veitir
okkur tækifæri til þess að klára það
sem við erum að vinna að,“ útskýr-
ir Haukur. „Aðaltakmark okkar er að
við viljum gera þetta í fullu samstarfi
við listamennina. Við lítum á það mjög
skýrum augum að við erum banda-
menn þeirra. Gogoyoko verður aldrei
að neinu nema listamennirnir upplifi
sig sem hluta af gogoyoko-hugmynd-
inni. Við náttúrlega komum úr þessari
senu og það má segja að gogoyoko sé
gert af tónlistarmönnum fyrir tónlist-
armenn.“
Fleiri nýstárlegar hugmyndir koma
við sögu hjá fyrirtækinu en tíu prósent
af auglýsingatekjum renna til góðgerð-
armála. Að sögn Maríu Rutar Reynis-
dóttur hvetur fyrirtækið líka lista-
menn til þes að gefa einnig tíu prósent
af sinni sölu. „Það er líka hægt að fara
bara beint inn á síðuna okkar og gefa
beint til þeirra góðgerðarsamtaka sem
við erum í samstarfi við. Við erum eins
og er samstarfsaðilar Unicef, Lækna
án landamæra og vefsíðunnar kiva.org
en þau síðarnefndu eru öflug samtök
þar sem frumkvöðlar í þróunarlöndum
geta skráð sína starfsemi og aðrir geta
styrkt hana. Við erum í viðræðum við
fleiri alþjóðleg góðgerðarsamtök og
sjáum fyrir okkur að það geti orðið
töluvert mikill peningur sem renni til
góðgerðarstarfsemi, og sé öflug leið
fyrir venjulegt fólk til að hafa áhrif á
ástandið í heiminum.“ Haukur bætir
við að það hafi alltaf ríkt sterk tengsl
á milli góðgerðarmálefna og tónlist-
ar. „Okkur Pétri finnst reyndar að öll
21. aldar viðskipti eigi að ganga svona
fyrir sig. Að það sé ákveðin „húman-
ísk“ rétthugsun í gangi, að maður gefi
eitthvað til baka.“ Þess má geta að tón-
listarmenn á gogoyoko-síðunni ráða því
sjálfir hvort og hvenær þeir vilja gefa
pening til góðgerðarmála og hvaða
málefni þeir vilja styðja.
Hugvit og menning er það sem Íslend-
ingar ættu að einblína á
Stefna hópsins á bakvið gogoyoko er að
vefsvæðið verði í raun heilt samfélag
tónlistarmanna og tónlistaráhugafólks
sem muni vonandi öðlast sjálfstætt líf
á veraldarvefnum. „Við höfum skapað
rammann en það er fólkið sem notar
hann sem vonandi heldur þessu á lofti,“
útskýrir Eldar. „Landamærin á milli
tónlistarmanna og tónlistaráhuga-
manna eru ekki eins og þau voru áður
BJARTSÝNN HÓPUR „Aðaltakmark okkar er að við viljum gera þetta í fullu samstarfi við listamennina. Við lítum á það mjög skýrum augum að við erum bandamenn
þeirra. Gogoyoko verður aldrei að neinu nema að listamennirnir upplifi sig sem hluta af gogoyoko-hugmyndinni.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Stefnumótavefur fyrir tónlist
Á krepputímum sækir nýtt íslenskt fyrirtæki í sig veðrið. Tónlistarvefurinn gogoyoko opnar dyr sínar fyrir heiminum innan
skamms. Anna Margrét Björnsson hitti bjartsýnan hóp fólks sem stendur á bakvið litla hugmynd og ætlar sér stóra hluti.
Hugvit og
menning eru
þeir geirar
sem Íslend-
ingar hafa
alltaf staðið
sig vel í og
við eigum að
einblína á.
Gogoyoko er að finna á www.gogoyoko.com og www.blog.
gogoyoko.com. Einnig er hægt að finna Facebook hóp ef
Gogoyoko er slegið inn.