Fréttablaðið - 07.02.2009, Blaðsíða 66
I BLS. 6 + Bókaðu á www.icelandair.is
LONDON
Flug til London gefur 2.500–8.000 Vildarpunkta.
Flug og gisting í 2 nætur frá 46.900 kr.
á mann í tvíbýli á K West Hotel & Spa ****
Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar,
gisting og morgunverður.
Vildarklúbbur
Það verður bara að horfast í augu við
þá staðreynd að nú er nauðsynlegt
að spara eins og hægt er. Í London
er hægt að gera ýmislegt sér til
afþreyingar fyrir lítinn pening eða
jafnvel fyrir ekki neitt, fara á tónleika,
kvikmyndir, glens-sýningar og margt
fleira. Hér eru nokkur dæmi um hvað
hægt er að gera.
Ókeypis tónlist í London
Í „Djanogly Concert Pitch“ í and-
dyrinu í Þjóðleikhúsinu á Suðurbakk-
anum eru ókeypis tónleikar í á að
giska klukkustund mánudaga til
laugardaga kl. 17:45 og á laugar-
dögum kl. 13:00; jass og önnur
tónlist héðan og þaðan úr veröldinni.
Í Octave við Covent Garden má
hlusta á jasstónlist ókeypis á kvöldin
á mánudögum, þriðju- og miðviku-
dögum (gestir þurfa hugsanlega að
leggja út fyrir lítilli flösku af vatni fyrir
hvern mann).
Í hverjum mánuði eru einstaka
sinnum ókeypis hádegistónleikar í
Royal Opera House. Kynnið ykkur
dagskrána á netinu.
Í National Portrait Gallery eru ókeypis
tónleikar að heita má á hverjum
föstudegi kl. 18:30.
Í kirkjunum í London er oftar en ekki
hægt að njóta næðis fyrir innan
steinda glugga og hlusta á tónlist. Í
hádeginu eru alltaf ókeypis tónleikar í
St. Martin-in-the-Fields hjá Trafalgar-
torgi.
Á fallegum sumardegi getur svo verið
tilvalið að bregða sér á Covent
Garden þar sem hljóðfæraleikarar af
öllum gerðum eiga það til að spila
fyrir vegfarendur, sumir þeirra fjandi
góðir þó að þeir hafi ekki, einhverra
hluta vegna, lagt undir sig hljómleika-
sali heimsins.
IMPERIAL WAR MUSEUM www.iwm.org.uk
VICTORIA & ALBERT MUSEUM www.vam.ac.uk
NATURAL HISTORY MUSEUM www.nhm.ac.uk
SCIENCE MUSEUM www.sciencemuseum.org.uk
MUSEUM OF LONDON www.museumoflondon.org.uk
NATIONAL MARITIME MUSEUM www.nmm.ac.uk
QUEEN'S HOUSE www.nmm.ac.uk
ROYAL OBSERVATORY GREENWICH www.nmm.ac.uk
THEATRE MUSEUM www.theatremuseum.org
TATE MODERN www.tate.org.uk/modern
TATE BRITAIN www.tate.org.uk
BRITISH MUSEUM www.britishmuseum.org
BRITISH LIBRARY www.bl.uk
RAF MUSEUM www.rafmuseum.com
NATIONAL GALLERY www.nationalgallery.org.uk
NATIONAL PORTRAIT GALLERY www.npg.org.uk
London er tilvalin verslunarborg fyrir
þá sem þurfa að vera hagsýnir en
gætu samt hugsað sér að nota tæki-
færið til að bæta einni eða tveimur
nýjum tískuflíkum í fataskápinn. Við
helstu verslunargötur í London eru
margar frábærar búðir þar sem hægt
er að gera góð kaup ef fólk hefur
augun hjá sér. Svo má heldur ekki
gleyma því að oft bjóðast tækifæri til
að ná í merkjavörufatnað á niðursettu
verði; þess vegna er þjóðráð að
fylgjast á netinu með útsölum og
lagersölum með merkjavöru.
Primark
Þessar lágvöruverðsverslanir eru
vinsælar hjá þeim sem vilja klæðast
samkvæmt nýjustu tísku. Hvað gæðin
varðar má einfaldlega orða það svo
að kaupandinn fær það sem hann
borgar fyrir. En þeir sem ætla sér
aðeins að nota tiltekna flík í nokkur
skipti eða hugsa sér ekki að eiga
hana lengi, geta svo sannarlega gert
kjarakaup í Primark. Á fataslánum má
oft finna klæðnað sem er sniðinn eftir
nýjustu verkum kunnra tískuhönnuða.
Það er sífellt verið að skipta út
birgðum hjá Primark svo að það
borgar sig að kaupa strax ef maður
sér eitthvað sem mann langar í.
Topshop – Zara
Þetta eru verslanir sem við þekkjum
hér heima á Íslandi. Stærsta verslun
Topshop í London er við Oxford
Circus þar sem hægt er að gramsa í
ótrúlegu vöruúrvali á fjórum hæðum.
Bretar líta svo á að Zara sé í dýrari
kantinum í flokki lágvöruverðs-
verslana en þar er samt hægt að
gera góð kaup.
New Look
Þeir sem eru á höttunum eftir nýjustu
tísku á viðráðanlegu verði ættu að líta
inn í New Look. Þar er gott úrval af
gallabuxum og peysum og skór og
stígvél samkvæmt nýjustu tísku eru
sögð á mjög hagstæðu verði.
Aðalverslun New Look í London er
við Marble Arch, með nútímalegum
innréttingum, stáli, krómi og speglum.
TK Maxx
Þeir sem láta ekki deigan síga með-
fram nær endalausum fataslánum í TK
Maxx geta verð vissir um að finna
eitthvað á fínu verði. Mottóið hjá TK
Maxx er að bjóða þekkt merki á lægra
verði, allt frá fatnaði til alls konar
húsbúnaðar. Látið ekki gríðarlegt
vöruframboðið slá ykkur út af laginu;
haldið bara áfram að skoða. Treystið
ekki á að stærðin sem gefin er upp á
herðatrénu eða verðmiðanum sé rétt.
Ef ykkur langar í einhverja flík og haldið
að hún passi nokkurn veginn skuluð
þið máta hana. Hjá TK Maxx er komið
inn með fullt af nýjum vörum á næstum
hverjum degi svo að það getur borgað
sig að líta þar inn aftur og aftur.
H&M
Vöruúrval hjá H&M er, eins og hjá
öðrum vinsælum stórverslunum í
London, alltaf að breytast og
vöruúrvalið getur verið misjafnt í
einstökum verslunum hjá H&M. H&M
hefur fengið kunna hönnuði til liðs við
fyrirtækið, Stellu McCartney og Viktor
& Rolf svo að dæmi séu nefnd, og
Madonna hannaði nýlega fatnað fyrir
H&M.
Uniqlo
Uniqlo eru stórfínar verslanir fyrir þá
sem vilja einfaldan en óvenjulegan og
smartan grunnfatnað. Sankið að
ykkur toppum, notalega hlýjum flís-
jökkum í nýjustu tískulitunum eða
stingið í körfuna nokkrum æðislega
flottum T-bolum. Þeir sem sækjast
eftir þægilegum en „fönkí“ hvers-
dagsflíkum gera margt vitlausara en
að droppa inn í Uniqlo.
Hönnuðamerki
með afslætti og útsölur
Þeir sem hafa áhuga á að eignast
merkjaflíkur á hagstæðu verði ættu
að hafa London á bak við eyrað.
Farið inn á www.designersales.co.uk
til að fá nánari upplýsingar um þessar
útsölur sem eru fimm til sex sinnum á
ári og verða í ár í lok febrúar, apríl,
júní, september, október og í
nóvember/ desember. Lagersölur á
merkjavöru (warehouse sales) eru
tólf sinnum á ári og standa yfirleitt í
þrjá daga.
FATNAÐUR
fyrir lítinn pening
AFÞREYING
fyrir lítinn pening
Reykjavík – London
frá 14.900 kr.
Flug aðra leiðina með
flugvallarsköttum.
Flogið er tvisvar sinnum á dag,
kvölds og morgna .
Fyrir þá sem eru hagsýnir