Fréttablaðið - 07.02.2009, Blaðsíða 38
● Forsíðumynd: Odd Stefán Þórisson tók mynd á eigin
heimili Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105
Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@
frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is
Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlits-
hönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
● heimili&hönnun
S
egja má að umskipti hafi orðið á hugsunarhætti íslensku þjóðar-
innar í kjölfar bankahrunsins á síðasta ári. Þegar fyrir lá að
sukk útrásarvíkinga og sofandaháttur stjórnmálamanna hafði
dregið þjóðina ofan í skuldafen varð uppi fótur og fit og í kjöl-
farið allsherjar naflaskoðun sem leiddi meðal annars til endurmats á
fyrri gildum.
Þeir stæra sig nú mest sem þeir mega sem ekki tóku himinhá lán
fyrir lúxusvillum, einkaþotum, innflutningi á afdönkuðum poppurum
eða annarri endemis vitleysu sem þótti orðið mælikvarði á íslenskan
lifistandard á meðan góðærið gekk yfir landið eins og fárviðri. Hinir
sem létu glepjast af gylliboðum nýfrjálshyggjunnar sjá sér nú þann
kost vænstan að geyma Range Roverana þar sem erfiðast er að rispa
þá og draga svo fyrir glugga svo ekki glitti í íburðinn. Ríkmannlega
búin heimili í svörtu og hvítu sem áður var ekki þverfótað fyrir í um-
ræðu um lífsstíl, hafa í einni andrá orðið birtingarmynd glórulausrar
neyslu og gufað upp eins og dögg fyrir sólu úr
sjónvarpi og tímaritum.
Þannig virðist sem íslenska þjóðin hafi á
einni nóttu snúið baki við fínheitunum sem
þóttu viðtekin meðan ákveðinn hluti hennar
hafði eða taldi sig hafa nóg á milli handanna.
Glansgallanum hefur verið skipt út fyrir hippa-
átfittið. Enda virðast landsmenn seint ætla
að læra að feta milliveginn í þessum efnum
sem öðrum. Annaðhvort er eytt úr hófi fram
meðan okkur er talið trú um að það sé í
lagi eða skorið svo hressilega við nögl að það blæðir.
Hvað er þá í stöðunni? Hafna tengslum við Alvar Aalto og
félaga. Stilla upp beygluðum mótmælapottum, meðan börnin
rispa borðstofusettið og betri helmingurinn hylur Le Corbusi-
er-bekkinn með útsaumuðum púðum frá ömmu. Sem gæti
orðið dýrkeypt þar sem viðbúið er að hippa-
sælan verði skammvinn, og Aalto fyrr en
varir búinn að velta ömmu aftur úr sessi.
Eða hætta bara þessari endalausu
meðvirkni og hlaupa ekki hugsunar-
laust á eftir nýjasta æðinu; fylgja eigin
sannfæringu og halda í það sem manni
þykir bæði flott og ekki síður kært. Amma
og Aalto geta hæglega deilt heiðurssessi á
heimilinu.
Aalto og amma gamla
Ríkmannlega búin
heimili í svörtu og
hvítu sem áður var
ekki þverfótað fyrir í
umræðu um lífsstíl,
hafa í einni andrá
orðið birtingarmynd
hóflausrar neyslu
HEIMILISHALD
ROALD EYVINDSSON
„Þetta er stórsigur fyrir mig þar
sem ég hef farið eigin leiðir í þess-
um bransa og tengi mig sem slíka
ekki við neinn sérstakan hóp held-
ur vinn á miklu breiðara sviði með
sköpunina eina að leiðarljósi,“ sagði
Katrín Ólína Pétursdóttir hönnuður
að sigri loknum á Forum AID 2009,
þar sem hún vann til verðlauna í
flokknum innanhússarkitektúr.
Verðlaunaafhendingin fór fram við
hátíðlega athöfn í Rival-leikhúsinu
í Stokkhólmi á þriðjudag.
Hönnunartímaritið Forum AID
efnir til keppninnar ár hvert þar
sem hönnuðir og arkitektar frá
Norðurlöndunum takast á. Keppt
er í flokkunum arkitektúr, innan-
hússarkitektúr, vöruhönnun og
nemendaverk. Íslenskir hönnuð-
ir voru tilnefndir í öllum fjórum
flokkum í ár, en þetta er í áttunda
sinn sem keppnin fer fram.
Katrín Ólína var tilnefnd bæði
fyrir bestu vöruhönnunina og
eins innanhússarkitektúr og sigr-
aði í síðarnefnda flokknum eins
og áður sagði fyrir hönnun sína á
Cristal Bar í Hong Kong. Í niður-
stöðu dómnefndar er þess sérstak-
lega getið að notkun hennar á tví-
víðri grafík sem aðaláherslu í þrí-
víðu umhverfi sé áhugaverð og
skapi draumkennt alltumlykjandi
umhverfi. En hvaða þýðingu hefur
sigurinn fyrir Katrínu Ólínu?
„Auðvitað er gaman að geta
tengst Skandinavíu eftir að hafa
unnið í Asíu öll þessi ár. Verðlaun-
in eru hvatning fyrir mig til að
halda áfram með að þróa þessa
veröld mína. Ég vonast til að geta
sinnt þessari rannsókn á draumn-
um af enn meiri krafti í framhald-
inu,“ sagði Katrín Ólína og bætti
við að mikill áhugi sé á íslenskri
hönnun í Skandinavíu vegna þess
hversu frábrugðin hún þyki. „Við
þykjum að ýmsu leyti öðruvísi en
aðrar Norðurlandaþjóðir, ekki síst
hvað sköpun varðar.“ - rve
Áhrifamikil hönnun
● Katrín Ólína Pétursdóttir varð hlutskörpust í flokki innanhúsarkitektúrs á Forum AID 2009.
Daninn Bjarke Ingels, stofnandi BIG, vann í flokki arkitektúrs fyrir Mountain Dwellings.
Subconscious Effect of
Daylight eftir Norðmanninn
Daniel Rybakken var besta
nemaverkið.
Plopp stólar frá Hay eftir Danann Osckar Zieta þóttu
flottastir í flokknum Besta vöruhönnunin. MYND/HAY
Katrín Ólína er ánægð með viðtökurnar
en hönnun hennar þótti áhrifamikil.
Cristal Bar í Hong Kong eftir Katrínu
Ólínu. MYND/KATRÍN ÓLÍNA PÉTURSDÓTTIR
M
YN
D
/BIG
M
YN
D
/D
A
N
IEL RYBA
KKEN
Útsala
25 - 70 % afsl.
af öllum vörum
Baðdeild Álfaborgar
Skútuvogi 4 - sími: 525 0800
Sturtuklefar - Baðinnréttingar
Hreinlætistæki - Blöndunartæki
Baðker ofl.
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
7. FEBRÚAR 2009 LAUGARDAGUR2