Fréttablaðið - 07.02.2009, Qupperneq 32
I BLS. 4 + Bókaðu á www.icelandair.is
MÍN
TORONTO
Flug til Toronto gefur 3.500–11.200 Vildarpunkta
Reykjavík – Toronto
frá 25.400 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallar-
sköttum. Flogið er allt að
6 sinnum í viku.
Vildarklúbbur
The Distillery
Þetta er gömul bruggverksmiðja sem
hefur verið gerð upp og hýsir nú fjöl-
breytt listalíf. Hér er að finna leiklist,
myndlist, tónlist, verslanir, veitinga-
staði og líka eitt besta bakaríið í
borginni. Svo er „algjört möst“ að
kíkja á Mill Street pöbbinn, þar sem
hinn eini sanni Mill Street bjór er
bruggaður eftir kúnstarinnar reglum,
og bragða á framleiðslunni.
The Rex
The Rex er helsti og þekktasti jazz-
staður Toronto. Í gegnum árin hafa
ýmsir þekktir jassgeggjarar spilað hér
eins og t.d. Harry Connick Jr., Kurt
Elling og Chris Potter. Á hverju kvöldi
troða þar upp að minnsta kosti tvær
jasssveitir svo það er alltaf gaman að
líta við á The Rex og láta koma sér á
óvart.
Queen Street West
Allar borgir sem Íslendingar heim-
sækja fá tilnefndan sinn „Laugaveg“. Í
Toronto heitir Laugavegurinn „Queen
Street“ og er í vestur frá University
Avenue. Þar er frábært að kíkja í búðir
og sjá mannlífið í leiðinni. Auk hinna
heimsþekktu verslanakeðja má finna
þar alls kyns skranbúðir, listagallerí
og ágætis kaffihús. Eftir búðarrápið er
tilvalið að enda daginn með því að fá
sér í svanginn á The Very Trendy
Gladstone eða Drake hótelinu.
BATA
„The BATA museum“ er safn sem
hýsir skó frá öllum heimshornum og
tímabilum mannkynssögunnar.
Ótrúlega merkilegt safn og auðvelt að
eyða nokkrum klukkustundum í að
skoða skótau sem markað hefur spor
forfeðra okkar. Ég hef sjálf verið að
pæla í hvort ekki mætti finna handa
þeim íslenska sauðskinnsskó til að
bæta í safnið.
Greek Town – Danforth
Þar sem Bloor Street breytist í
Danforth er að finna gríska hverfið
sem var einn aðaltökustaður myndar-
innar My Big Fat Greek Wedding. Þar
er notalegt umhverfi sem morar í
góðum grískum veitingastöðum.
Þangað er gaman að bregða sér á
kvöldin og upplifa gríska gestrisni
eins og hún gerist best. Sleppið ekki
einstæðu tækifæri til að gæða ykkur á
ekta grísku „souvlaki“.
High Park
High Park er stærsti almennings-
garðurinn í Toronto. Hingað er
dásamlegt að koma með nesti og
teppi til að horfa á leikrit eftir Shake-
speare úti undir berum himni. Maður
borgar eftir efnum og ástæðum og er
yfirleitt mælt með ákveðinni upphæð.
Gott er að að vera kominn tímanlega
til að ná sem bestu plássi og vera
búinn að njóta fyrstu bitanna af
nestinu áður en sýningin hefst.
Kensington Market
Í felum á bak við Kínahverfið er gamla
hippahverfið, Kensington Market.
Skemmtilegt mannlíf, prúttmarkaðir
og „fönkí-retró“ kaffihús. Gott verðlag,
gott fólk og skemmtileg stemning.
Sá staður sem þið megið síst missa
af í Toronto!
Canada's Wonderland
Spennufíkillinn í mér kemst ekki hjá
því að minnast á eins og eitt tívolí.
„Undraland Kanada“ er hluti af
Paramount skemmtigarðakeðjunni og
er stærsta tívolíið í Ontario. Fullt af
rússíbönum, vatnsleikjagarður og
hringekjur. Nýbúið að bæta við
rússíbana sem er sagður vera sá
næststærsti í heimi.
Honest Ed's
og Markham Street
Á Bloor Street milli Bathurst og
Markham Street er stórmerkileg búð
sem nú er orðin einn af minnisvörðum
Toronto og heitir Honest Ed's. Hún er
ein af fáum verslunargersemum
miðrar 20. aldar sem hefur verið rekin
nær óbreytt frá því að hún var opnuð
árið 1948. Þó að maður fari ekki
beinlínis þangað til þess að versla er
gaman að líta inn til að skoða. Ég
mæli sérstaklega með því að fara
þegar dimmt er úti og búið er að
kveikja á 28.000 perum á ljósa-
skiltunum. Svo er hægt að setjast
niður og fá sér drykk á einhverjum af
stöðunum rétt handan við hornið á
Markham Street.
Yorkville
Fína hverfið. Merkjavara, fínir veitinga-
staðir og snyrtilegt umhverfi. Kíki hér
stundum inn á Nervosa Cafe í
hádegisverð en það er líka fínt að
taka með sér kaffi í lokuðu plastmáli
á röltið.
Toronto Island
Á góðum sumardegi er alveg tilvalið
að taka ferjuna yfir á eyjuna hér úti í
Ontario-vatni og njóta þess að sleikja
sólina á ströndinni. Maður verður að
muna að taka með sér sundföt og
handklæði ef á að stinga sér til sunds
við Hamlan’s Point. Svo er hægt að
leigja hjólabíla og hjóla um eyjuna
eða fara með yngri kynslóðina í
leiktæki líkt og í fjölskyldugarðinum
heima og fá sér ekta kanadíska
„funnel cake” með öllu á.
Edda Kristinsdóttir
Bonjour Brioche
Franskt kaffihús/bakarí
þangað sem mjög vinsælt er að fara í
hádegisárbít (brunch) um helgar.
Notalegur „heimafílingur“ og angan af
nýbökuðu brauði berst á móti manni
um leið og stigið er inn úr dyrunum.
Yndislegt að byrja daginn hér.
Mezas
Fjölskyldurekinn, grískur
veitingastaður í hjarta gríska
hverfisins. Lambakjötið hérna er
næstum eins gott og heima hjá
mömmu. Annars mæli ég eindregið
með ídýfuplattanum hjá þeim.
Ki
Mitt í fjármálahverfinu er þessi
frábæri sushi-staður. Flott húsakynni
og frábær verönd til að nota á sumrin.
Ég elska að koma hingað með
vinkonum mínum, sitja á veröndinni,
borða gott sushi og drekka hvítvín.
Oftar en ekki kíkjum við svo út á lífið á
eftir enda er staðurinn tiltölulega
nálægt líflegasta næturlífinu.
Canoe
Canoe er gamalgróinn
veitingastaður í einu af háhýsum
miðborgarinnar. Einn af þessum
klassísku stöðum þar sem maður er
öruggur um gæðin þegar á að fara
fínt út að borða. Frábær matur og
þjónusta en það sem setur punktinn
yfir i-ið er útsýnið. Verið viðbúin því að
þurfa að losa um beltið í miðri máltíð.
VEITINGASTAÐIR
01 03
04
02
Flug og gisting í 2 nætur frá 56.900 kr.
á mann í tvíbýli á Bond Place ***
Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting.