Fréttablaðið - 07.02.2009, Blaðsíða 88
56 7. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
HESTAR Eyjólfur Þorsteinsson og
Stúfur frá Miðkoti báru sigur úr
býtum á fyrsta móti Meistara-
deildar VÍS, Smala, sem fram fór
í Ölfushöllinni.
Þeir félagar fóru á kostum og
án refsistiga í gegnum brautina.
Gamla brýnið Sigurbjörn Bárð-
arson varð annar á Lýsu frá
Steinnesi og Ísleifur Jónasson
varð þriðji á Bjarka frá Sunnu-
hvoli.
Meistaradeild VÍS:
Eyjólfur vann
fyrsta mótið
Á FULLRI FERÐ Glæsileg tilþrif sáust í
Ölfushöllinni. MYND/JENS EINARSSON
MEISTARADEILD VÍS
Knapi hestur
1. Eyjólfur Þorsteinsson
Stúfur frá Miðkoti
2. Sigurbjörn Bárðarson
Lýsa frá Steinnesi
3. Ísleifur Jónasson
Bjarki frá Sunnuhvoli
4. Daníel Ingi Smárason
Sjöstjarna frá Svignaskarði
5. Viðar Ingólfsson Bragi frá Glóru
6. Sigurður Vignir Matthíasson
Gyðja frá Kaðlastöðum
7. Camilla Petra Sigurðardóttir
Glampi frá Hemlu
8. Halldór Guðjónsson
Nóta frá Margrétarhofi
9. Ragnar Tómasson Selja frá Miðkoti
10. Ólafur Ásgeirsson
Hrafn frá Miðkoti
> Verða Haukakonur deildarmeistarar?
Haukakonur geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn í Iceland
Express-deild kvenna í körfubolta og heimavallarrétt út
alla úrslitakeppnina með sigri á Keflavík á Ásvöllum klukk-
an 19.15 á sunnudagskvöldið. Haukar eru með sex stiga
forskot á Keflavík þegar fjórar umferðir eru
eftir og Keflavík verður því að vinna leikinn til
þess að eiga möguleika á deildarmeistaratitl-
inum annað árið í röð. Haukar hafa unnið
báða deildarleiki liðanna í vetur, fyrst
65-60 í Keflavík og svo 80-77. Keflavík
vann aftur á móti fyrsta leik liðanna á
tímabilinu, undanúrslitaleik liðanna í
Powerade-bikarnum í haust.
FÓTBOLTI Rússinn Andrey Arshav-
in gæti þreytt frumraun sína með
Arsenal á sunnudaginn þegar
liðið sækir Tottenham heim á
White Hart Lane.
„Hann er ekki í góðu formi sem
stendur og ég hef mínar efasemd-
ir um að láta hann spila í svona
kappsmiklum leik. Ég mun sjá
í hvaða standi hann er í dag-
inn fyrir leik og taka ákvörðun
í kjölfarið,“ sagði Arsene Weng-
er, stjóri Arsenal, en breskir fjöl-
miðlar telja líklegt að hann verði
í leikmannahópi Arsenal og fái
líklega einhverjar mínútur.
Robbie Keane mun einnig spila
sinn fyrsta leik með Tottenham
eftir endurkomuna frá Liverpool
og það sem fyrirliði. - hbg
Lundúnaslagur af bestu gerð á White Hart Lane:
Fær Arshavin að spila?
ANDREY ARSHAVIN Fær kannski að
sprikla á morgun. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
Laugardagur:
Man. City - Middlesbrough 12.45
Blackburn - Aston Villa 15.00
Chelsea - Hull 15.00
Everton - Bolton 15.00
Sunderland - Stoke 15.00
WBA - Newcastle 15.00
Wigan - Fulham 15.00
Portsmouth - Liverpool 17.30
Sunnudagur:
Tottenham - Arsenal 13.30
West Ham - Man. Utd 16.00
Eimskipsbikar karla:
Selfoss-Grótta 30-31
Mörk Selfoss: Atli Kristinsson 7, Michal Dostalik
7, Guðmundur Ólafsson 5, Ragnar Jóhannsson 5
Bjarki Elíasson 3, Ramunas Mikalonis 3.
Mörk Gróttu: Finnur Stefánsson 12, Zoltan Bel-
anyi 7, Davíð Hlöðversson 3, Arnar Theodórsson
3, Atli Steinþórsson 2, Jóhann Jóhannesson 2,
Brynjar Árnason 1, Ægir Jónsson 1.
Iceland Express-deild karla:
Keflavík-Snæfell 73-81 (40-33)
Stig Keflavíkur: Hörður Axel Vilhjálmsson 17 (12
stoðs.), Jón Norðdal Hafsteinsson 16 (15 frák.),
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14 (4 varin),
Gunnar Einarsson 11, Þröstur Leó Jóhannsson 8,
Sverrir Þór Sverrisson 5, Gunnar Stefánsson 2.
Stig Snæfells: Lucious Wagner 18 (10 frák.),
Slobodan Subasic 14, Sigurður Þorvaldsson
14, Hlynur Bæringsson 12 (13 frák., 4 stoðs.),
Jón Ólafur Jónsson 12, Magni Hafsteinsson 8,
Skallagrímur-Stjarnan 74-102
Stig Skallagríms: Landon Quick 19, Igor Beljanski
17 (12 frák.), Sveinn Davíðsson 16, Sigurður
Þórarinsson 8, Trausti Eiríksson 3.
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 24, Kjartan Atli
Kjartansson 17, Jovan Zdravevski 16, Ólafur
Sigurðsson 13, Fannar Helgason 11, Guðjón
Lárusson 9, Hjörleifur Sumarliðason 6,
FÓTBOLTI Þróttarar urðu fyrir
áfalli í gær þegar í ljós kom að
kantmaðurinn sterki, Sigmundur
Kristjánsson, mun ekki leika með
liðinu á næstu leiktíð.
Sigmundur er á leið utan til
Danmerkur þar sem hann hyggst
setjast á skólabekk ásamt því að
spila knattspyrnu. - hbg
Áfall fyrir Þróttara:
Sigmundur til
Danmerkur
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson,
landsliðsþjálfari í knattspyrnu,
hefur kallað á þá Sölva Geir Otte-
sen og Garðar Jóhannsson inn í
hópinn fyrir vináttulandsleik á
móti Liechtenstein á La Manga á
miðvikudaginn. Þeir taka stöðu
Kristjáns Arnar Sigurðssonar
og Heiðars Helgusonar sem eru
báðir meiddir.
Þeir Garðar og Sölvi voru báðir
með í síðasta landsleik, 1-0 sigri
á Möltu í vináttuleik í nóvember.
Garðar lék þá sinn fyrsta lands-
leik en Sölvi sinn fyrsta landsleik
í þrjú ár, eða síðan 2005. - óój
Landsleikur við Liechtenstein:
Sölvi og Garðar
inn í hópinn
FÓTBOLTI Sannkölluð stórsókn
hefur staðið yfir hjá Eiði Smára
Guðjohnsen og félögum í Barce-
lona á þessu tímabili enda vantar
liðið aðeins eitt mark til að skora
hundrað mörk á tímabilinu.
Barcelona hefur skorað 99
mörk í 36 leikjum eða 2,75 að
meðaltali í leik. Liðið hefur skor-
að 65 mörk í 21 deildarleik (3,1)
og 22 mörk í 8 leikjum í Meistara-
deildinni (2,75).
Eiður Smári Guðjohnsen, sem
lék sinn 100. leik fyrir Barcelona
í vikunni, hefur skorað fjögur af
þessum 99 mörkum en marka-
hæstir eru Lionel Messi (22
mörk), Samuel Eto’o (22) og Thi-
erry Henry (15). - óój
Barcelona-liðið sókndjarft:
Næsta mark er
númer 100 í ár
KÖRFUBOLTI Snæfellingar unnu dýr-
mætan útisigur á Keflvíkingum í
lykilleik í baráttunni um 3. sætið í
Iceland Express deild karla í gær.
Snæfellingar þurftu að vinna með
meira en fimm stigum til að taka
þriðja sætið af heimamönnum og
það tókst þrátt fyrir að Hólmar-
ar hafi klikkað á sex vítaskotum á
lokamínútu leiksins.
Framan af leik stefndi þó ekki
í Snæfellssigur. Keflavík komst í
20-9 og var 30-19 yfir í öðrum leik-
hluta þegar Snæfellingar skoruðu
átta stig í röð á einni og hálfri mín-
útu og minnkuðu muninn í tvö stig.
Snæfellingar náðu 11-0 spretti í
kringum leikhlutaskiptin í 3. og 4.
leikhluta og komust í fimm stiga
forustu. Snæfell komst mest tólf
stigum yfir en heimamenn sóttu
aðeins að þeim í lokin.
„Við vorum mjög nálægt því að
klúðra stigamuninum í lokin með
því að klúðra endalaust af víta-
skotum en svo á eftir að koma í
ljós hvort þetta verður mikilvæg-
ur sigur. Aðalatriðið er að vera í 4.
sæti eða ofar og vera með heima-
vallarréttinn. Ef við skyldum
mæta þeim seinna meir þá er gott
að vera með heimavöllinn,“ sagði
Hlynur Bæringsson, annar þjálf-
ara Snæfells.
„Ég mjög sáttur við þetta því
mér fannst við vera svo ragir í
fyrri hálfleik. Ég og Siggi getum
tekið það á okkur að við gerðum
rosaleg mistök með því að tvöfalda
á hindrunina upp á toppinum. Þeir
hentu honum alltaf á Sigga sem
rúllaði inn að körfunni og lagði
hann ofan í. Þegar við hættum því
og fórum að loka teignum þá fór
þetta að ganga aðeins betur,“ sagði
Hlynur en Sigurður Gunnar Þor-
steinsson skoraði 8 af 14 stigum
sínum í fyrsta leikhlutanum.
Hlynur er mjög ánægður með
nýja manninni Lucious Wagner.
en Wagner skoraði 16 stig í seinni
hálfleiknum eftir að hafa skorað
aðeins tvö stig í þeim fyrri.
Wagner var mjög góður í seinni
hálfleik hjá Snæfelli, Jón Ólaf-
ur Jónsson lék vel framan af leik,
þjálfararnir Hlynur og Sigurður
Þorvaldsson skiluðu sínu og Slo-
bodan Subasic setti niður mikil-
vægar körfur.
„Vörnin klikkaði hjá okkur og
við fengum of mikið af opnum
skotum á móti svæðinu okkar. Við
vissum alveg að við máttum ekki
tapa með meira en fimm stigum
og við reyndum allt til enda. Við
spiluðum bara mjög illa síðasta
leikhlutann, vorum ekki að sækja
og fórum út úr hlutnum sem við
vorum að gera. Við létum þá ýta
okkur alltof langt út úr okkar leik,“
sagði Jón Norðdal Hafsteinsson,
fyrirliði Keflavíkur.
„Þriðja sætið er ekkert farið því
það er nóg eftir og við náum því,“
sagði Jón sem átti fínan leik með
16 stig og 15 fráköst. Hörður Axel
Vilhjálmsson átti einnig flottan
leik. ooj@frettabladid.is
Snæfell komið í þriðja sæti
Snæfellingar eru með betri árangur úr innbyrðis viðureignum við Keflavík og
komst því upp í þriðja sæti úrvalsdeildar með góðum sigri í Keflavík í gær.
FÍNN LEIKUR Sigurður Þorvaldsson, leikmaður og annar þjálfara Snæfells, átti fínan
leik í Keflavík í gær og skoraði 14 stig. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Grótta varð í gær fyrsta 1. deildarliðið til þess að komast í
úrslit bikarkeppninnar í handbolta er það lagði Selfoss að
velli, 30-31, í fyrri undanúrslitaleik Eimskipsbikarsins á Sel-
fossi. Þetta er einnig í fyrsta skipti sem Grótta kemst í úrslit
bikarsins.
Það var troðfullt hús og mikil stemning í gær. Stemn-
ingin fór vel í heimamenn sem byrjuðu mun betur og
náðu allt að þriggja marka forskoti. Gestunum frá
Seltjarnarnesi óx ásmegin eftir því sem leið á hálf-
leikinn og þeir náðu að jafna, 15-15, þegar nokkrar
sekúndur lifðu af fyrri hálfleik.
Mikil spenna var í síðari hálfleik enda afar jafnt á
með liðunum. Þegar 30 sekúndur lifðu leiks jafn-
aði Grótta, 26-26, og allt að verða vitlaust. Selfossi
tókst ekki að skora í lokasókninni og því varð að
framlengja. Selfoss leiddi eftir fyrri hluta framleng-
ingarinnar, 29-28. Gróttumenn gáfust ekki upp,
sýndu mikla baráttu og seiglu og kreistu fram eins
marks dramatískan sigur, 30-31.
„Þetta var stórkostlegur leikur af beggja hálfu og synd að Rúv hafi
ekki sýnt þennan leik í beinni útsendingu,“ sagði himinlifandi þjálfari
Gróttu, Ágúst Jóhannsson. „Við sýndum gríðarlegan karakter í þess-
um leik. Vorum í raun búnir að tapa þessum leik tvisvar eða þrisvar
sinnum en menn neituðu að gefast upp og virkilega vildu vinna,“
sagði Ágúst kátur.
Grótta hefur verið að byggja upp nýtt lið og setti mikinn
kraft í starfið fyrir veturinn. Uppskeran er góð enda komn-
ir í úrslit bikarsins og á hraðleið upp í úrvalsdeildina.
„Það er náttúrulega frábært að vera komnir í úrslit
bikarsins í fyrsta skipti. Ánægjulegt fyrir félagið og ekki
síst stuðningsmennina sem fjölmenntu hingað og
voru frábærir. Það er mikill metnaður í Gróttu og við
höfum byggt upp nýtt lið. Þetta hefur gengið vonum
framar í vetur verð ég að viðurkenna og við ætlum
að njóta okkar áfram,“ sagði Ágúst og bætti við að
ekki væri leiðinlegt að fá Val í úrslitum enda er hann
fyrrum þjálfari Vals og nokkrir fyrrum leikmenn Vals í
Gróttuliðinu.
EIMSKIPSBIKAR KARLA: HÁSPENNTÍMAMÓTALEIKUR Á SELFOSSI Í GÆRKVÖLD ÞAR SEM VAR FRAMLENGT
Grótta í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta skipti