Fréttablaðið - 07.02.2009, Blaðsíða 84
52 7. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
Fjallabræður elska systur sínar og
bræður í Færeyjum, eru stoltir af
að verða fyrst íslenskra hljómsveita
skráð á G-festival í ár og hafa gefið
Færeyingum lag.
„Rokk og ról. Þetta er „on“. Við erum fyrsta
íslenska bandið bókað á G-festival í ár sem er
seinnipartinn í júlí,“ segir Halldór Gunnar Páls-
son, stofnandi og kórstjóri Fjallabræðra.
Fjallabræður hafa vakið mikla athygli að und-
anförnu fyrir kröftugan kórsöng við rokkað und-
irspil. Og nú hefur stefnan verið tekin á Færeyj-
ar á tónleikahátíðina G-festival. Fjallabræður
tóku nýverið upp lag sem þeir gáfu Færeyingum
sem þakklætisvott fyrir fjárframlög Færeyinga
til Íslendinga þegar bankahrunið var í október á
síðasta ári. Halldór segir þá Fjallabræður, sem
kenndir eru við Flateyri, tengjast Færeyingum
órofa böndum. Eftir snjóflóðið á Flateyri árið
1995 gáfu Færeyingar þorpinu leikskóla – hafa
reyndar alltaf boðið fram aðstoð sína fyrstir
þjóða þegar á bjátar svo sem eftir gos í Eyjum
og snjóflóð í Súðavík. „Þetta er ekki frændþjóð
heldur bræðraþjóð. Alltaf tilbúin án skuldbind-
inga að hjálpa til. Ef ég sé Færeying í vanda þarf
ég ekki að hugsa mig um. Þetta kemur frá hjart-
anu, þannig er það,“ segir Halldór.
Fjallabræður skunduðu að Færeyjarstofu í
gær og kyrjuðu braginn, lagið sem þeir gefa nú
Færeyingum en viðstaddur var meðal annars
Elís Poulsen frá færeyska ríkisútvarpinu. Lagið
verður til niðurhals á vefsíðu þess. Minni Fær-
eyinga. Átta mínútna langt. „Borgaraleg skylda
að þakka Færeyingum með lagi.“
Fjallabræður urðu til árið 2006 þegar Halldór
krafðist þess að karlakór myndi syngja í afmæl-
inu hans. Síðan hafa margir bæst við en kjarn-
inn er frá Flateyri. „Nokkrir Reykvíkingar hafa
fengið að vera með en þeir eiga það sameigin-
legt að þekkja fjöllin fyrir vestan með nafni og/
eða hafa drukkið sig undir borðið á þorrablóti
á Vestfjörðum,“ segir Halldór. Fjallabræður er
hreyfing ungra manna ekki síður en hljómsveit.
„Við erum sveitalubbar sem þykir vænt um land-
ið okkar og erum kurteisir, auðmjúkir og berum
takmarkalausa virðingu fyrir kvenfólki. Stefna
kórsins er ekki önnur en að „vera í lagi“.“
Kórinn er langt kominn með að taka upp
fyrstu plötuna sína. „Við erum alveg að verða til-
búnir með hana og hún verður gefin út fljótlega.
Lögin eru öll eftir mig með textum eftir Ásgeir
Guðmundsson, Geira Rokk, sem er í bandinu.
Svo eru tvö tökulög, afi minn syngur forsöng í
öðru þeirra, „Afadreng“ eftir Sigfús Halldórs-
son. Það er mikið af afa mínum í þessu bandi.“
jbg/drg
Fjallabræður sigla til Færeyja
FLOTTIR FJALLABRÆÐUR Á MÖLINNI Tónleikar á síðustu menningarnótt en nú eru það Færeyjar sem bíða, G-festi-
val í sumar.
> LANGAR AÐ LEIKSTÝRA
Leikkonuna Jennifer Aniston
langar að spreyta sig á leikstjórn
í framtíðinni. „Ég hef áhuga á
leikstjórn. Ég leikstýrði stutt-
mynd fyrir nokkrum árum og
hafði mjög gaman af því,“ sagði
Aniston.
Hvað er að frétta? Ég hætti við að fara
í ræktina og fór frekar í apótekið. Það er
nýjasta ákvörðunin mín.
Augnlitur: Grænn.
Starf: Dagskrárgerðarmaður.
Fjölskylduhagir: Þeir eru bara fínir. Ég á
þrjú börn.
Hvaðan ertu? Ég er úr Húnavatnssýslu,
austan undan Eyjafjöllum, Önundarfirði og
Breiðholti.
Ertu hjátrúarfull? Já, ég ræð í öll merki
sem ég sé.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Fawlty
Towers er frábært sjónvarpsefni.
Uppáhaldsmaturinn: Það myndi vera
kaffi og ristað brauð með osti.
Fallegasti staðurinn: Hann er nú bara
inni í augunum á fólki.
iPod eða geislaspilari: Geislaspilari.
Hvað er skemmtilegast? Þegar fólk
gerir mistök sem hafa ekki alvarlegar
og langvinnar afleiðingar en eru
óplönuð og geta verið vandræða-
leg.
Hvað er leiðinlegast? Þegar
fólk getur ekki viðurkennt
mistök sín.
Helsti veikleiki: Of hörð.
Helsti kostur: Hvað ég get
verið mjúk.
Helsta afrek: Þriðja
barnsfæðingin af því að
hún var heima og gekk
svo ótrúlega vel.
Mestu vonbrigðin: Ég er
eitthvað svo vongóð að úr
öllu sem hafa verið vonbrigði
hingað til trúi ég að muni rætast.
Hver er draumurinn? Að verða
eins og Magni og Steinunn,
eiginkona hans, þegar ég er komin
á áttræðisaldur.
Hver er fyndnastur/fyndn-
ust? Börn eru fyndnust.
Hvað fer mest í taug-
arnar á þér? Þegar fólk
stingur höfðinu ofan í
sandinn.
Hvað er mikil-
vægast? Að segja
alltaf satt þótt það
sé ljótt sem maður
segir.
HIN HLIÐIN EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR DAGSKRÁRGERÐARMAÐUR Á RÚV
Augun í fólki fallegasti staðurinn
folk@frettabladid.is
FLÍS, Félag íslenskra leiklistar-
nema, heldur heljarinnar flóa-
markað í gamla Sirkusportinu
í dag milli 11 og 20. Þar verður
bókstaflega allt til sölu, meðal
annars bækur, tónlist, DVD-
myndir, húsgögn og listmunir.
Einnig verður þar kökubasar af
gamla skólanum.
„Við erum á leiðinni til Akur-
eyrar í árlega ferð í lok febrúar
og okkur fannst flóamarkaður
vera eitthvað fyrir okkur,“ segir
leiklistarneminn Halldór Hall-
dórsson, eða Dóri DNA. Í ferðinni
ætlar hópurinn meðal annars að
heimsækja Leikfélag Akureyrar
og kynna sér starfsemi þess.
Dóri á von á múgi og marg-
menni á markaðinn í dag enda
eftir miklu að slægjast fyrir
áhugasama kaupendur. „Fólk er
að selja þarna hluti sem því þykir
mjög vænt um og vill eiginlega
ekki selja en þetta er allt gert í
þágu flóamarkaðarins. Við viljum
líka leggja okkar af mörkum til
samfélagsins,“ segir hann.
Ágóðinn verður notaður til að
fjármagna ferðina norður, enda
hefur FLÍS ekki úr miklum pen-
ing að moða. „Við viljum samt ekk-
ert láta vorkenna okkur. Þetta er
fyrst og fremst markaðstorg gleði
og tónlistarhamingju,“ segir Dóri.
Hann ætlar að taka gestum dags-
ins með opnum örmum, rétt eins
og þekktir aðilar úr leiklistar-
lífinu á borð við Lilju Nótt Þór-
arinsdóttur úr Reykjavík Rot-
terdam, Snorra Engilbertsson úr
Astrópíu og Ævar Þór Benedikts-
son, hommann úr Dagvaktinni.
Einnig verða á svæðinu nemend-
ur Verslunarskólans. Þeir munir
sem seljast ekki á markaðinum
verða gefnir til Rauða krossins.
- fb
Flóamarkaður
leiklistarnema
DÓRI DNA Halldór Halldórsson segir að
leiklistarnemar vilji leggja sitt af mörk-
um til samfélagsins með flóamarkaðin-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Um fimmtán ár eru liðin síðan
hip hop-þátturinn Kronik fór
fyrst í loftið og af því tilefni verð-
ur slegið til veislu á Tunglinu
28. febrúar. Taktsmiðurinn Pete
Rock stígur þar á svið en hann
á langan feril að baki í hip hop-
bransanum.
Rock kom fyrst fram á sjónar-
sviðið ásamt félaga sínum CL
Smooth og saman gáfu þeir út
plötuna Mecca and the Soul
Brother um miðjan tíunda ára-
tuginn. Rock hefur einnig unnið
með listamönnum á borð við Nas,
Notorous B.I.G., Wu Tang Clan
og Mary J. Blige. Upphitun verð-
ur í höndum Forgotten Lores, Dj
Intro og Dj B-Ruff. Miðasala á
viðburðinn hefst á mánudag.
Rock spilar
fyrir Kronik
PETE ROCK Plötusnúðurinn knái stígur
á svið á fimmtán ára afmæli hip hop-
þáttarins Kronik.
26.04.71