Fréttablaðið - 07.02.2009, Page 58
● heimili&hönnun
Odd Stefán ljósmyndari keypti
húsið árið 2003 og hefur gert það
upp frá grunni. Húsið býr yfir
langri sögu og góðum anda en það
var byggt árið 1904.
„Hér bjuggu 24 manneskjur
þegar mest var í kringum 1940,“
segir Odd. „Húsið er 184 fermetr-
ar á þremur hæðum en stigi, sval-
ir og salerni voru byggð við húsið
árið 1940. Áður var bara útikam-
ar. Ég reif alla innveggi niður og
loft og braut upp gólfin. þá komu
í ljós dagblöð frá þessum tíma og
alls konar efni eins og gamlar fjalir
og umbúðir sem notuð höfðu verið
í einangrun. Einnig hafði sandur
verið notaður sem hljóðeinangr-
un milli gólfa. Markmiðið var að
ná upprunalegum stíl og ég gerði
húsið alveg fokhelt. Ég lét smíða út
í Danmörku glugga og hurðir eftir
ljósmyndum af gömlu gluggunum.
Bæði gluggarnir og hurðirnar eru
svo litlar að smiðurinn spurði hvort
það byggju dvergar á Íslandi.“
Vinnan við húsið vatt upp á
sig en skipta þurfti einnig um
allar lagnir og rafmagn. Hlaðinn
skorsteinn í miðju húsi kom í ljós
undan múrhúð sem Odd braut burt
og lét skorsteininn halda sér. Eins
braut hann burt múrklæðningu af
hlöðnum útveggjunum.
„Bitarnir í loftinu sáust held-
ur ekki en svo heppilega vildi til
að ástand hússins var mjög gott
og enginn raki hafði komist að,“
segir Odd. „Ég vildi láta gömlu
bitana og veggina sjást því þetta
eru svo falleg efni. Allir sem koma
hingað inn segja góðan anda í hús-
inu. Þetta er fyrsta húsið sem ég
geri svona upp, en þetta er meiri
vinna en ég gerði mér grein fyrir.
Það væri minni vinna að rífa húsið
alveg niður og byggja nýtt. En
þetta hús var samt þess virði og
gaman að standa í þessu.“ - rat
Allir sem inn koma
segja húsið með sál
● Í miðbæ Reykjavíkur svífur andi liðinnar aldar yfir vötnum og mörg húsin með sál. Á
Grettisgötunni stendur fallegt gult timburhús sem eigandinn gerði upp á nokkrum árum.
Gamla húsið á Grettisgötunni er reisulegt en það var byggt árið 1904. Þegar mest var
bjuggu 24 manneskjur í húsinu sem er um 184 fermetrar á þremur hæðum.
Hlaðinn skorsteinninn er fyrir miðju
hússins sem byggt var í kringum hann.
Klætt hafði verið milli bitanna í loftinu
og fyllt með sandi til hljóðeinangrunar.
Odd Stefán ljósmyndari er hrifinn af gömlum stíl og eru húsgögnin í stofunni dönsk
frá í kringum 1950. Fjóra sterka menn þurfti til að bera sófann upp. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Múrað hafði verið yfir
hlaðna út veggina en Odd
vildi að hleðslan nyti sín.
Þ essi apaherðatré eru frá fyrirtækinu Our Children‘s Gorilla og eru hönnun
frá OCG. Í raun er þetta bæði herðatré
og fallegt skraut. Apinn hangir, sprækur
og kátur, og fötin eru síðan sett á lapp-
irnar. Herðatrén eru úr umhverfisvænu
valchromat-efni og eru 35 sinnum 35
sentimetrar að stærð. Þau fást í versluninni
Litla kistan sem flytur brátt á
Bergstaðastræti 13 en verslunin
er líka á netinu. Slóðin er www.
litlakistan.is og eru herðatrén á
tilboði þessa dagana. Áður kost-
uðu þau 2.320 krónur en
kosta nú 1.390 krónur
og fást í ýmsum litum.
● GLING GLÓ Sumar vekjara-
klukkur eru fullkomnari en aðrar.
Þessa klukku rákumst við á í versl-
un Gilberts úrsmiðs á Laugavegi.
Hún er góðum kostum búin, eink-
um fyrir þá sem farnir eru að
tapa sjón. Hún er með díóðuljós
í skermi sem loga í nokkrar sekúndur. Hún sendir síðan ljóstölur
á vegg eða loft sem sýna hvað tímanum líður. Klukkan gengur
bæði fyrir rafmagni og rafhlöðum og er á 8.500 krónur.
M
YN
D
IR
/O
D
D
S
TE
FÁ
N
Barnaföt á fjörugum öpum
www.jswatch.com / www.gilbert.is
Ég er gull og gersemi,
gimsteinn elskuríkur.
Ég er djásn og dýrmæti,
Dro ni sjálfum líkur.
- Solon Islandus 1820-1895
Auglýsingasími
– Mest lesið
7. FEBRÚAR 2009 LAUGARDAGUR6