Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.02.2009, Qupperneq 76

Fréttablaðið - 07.02.2009, Qupperneq 76
44 7. febrúar 2009 LAUGARDAGUR Hvenær varstu hamingjusöm- ust? þegar ég áttaði mig á að fram undan hjá mér eru heimsóknir til ofboðslega margra sólkerfa. Ef þú værir ekki tónlistarmaður, hvað myndirðu þá vera? Ef ekki tónlist þá kvik-myndlist. Hvað er það dýrasta sem þú hefur nokkurn tímann keypt þér? Íbúð er það dýrasta sem ég hef keypt mér. Næstdýrast er sennilega hið valin- kunna SalatMaster-pottasett. Hvað er það versta sem nokkur hefur sagt við þig? Þegar lagt var til að ég færi og léti svæfa Hrafn- kel, yndislegasta kött allra tíma. Ef þú byggir ekki í Reykjavík, hvar myndirðu vilja búa? Í Japan og á Ítalíu. Uppáhaldslistamaður allra tíma og af hverju? Á fullt af uppáhalds- listamönnum. Draumahelgin þín í einni setn- ingu? Draumahelgin er að vera með Birki á Búðum á Snæfellsnesi, fara þar í göngutúr og sofna úti í hrauni eða uppi á fjalli. Hvert er versta starf sem þú hefur nokkurn tímann gegnt? Að strauja í þvottahúsi. Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörð- unni? Ísland er minn uppáhalds- staður. Hvers konar tónlist hefur mest áhrif á þig og hvaða lag hlustarðu mest á í dag? Í þessari viku var Olivier Messiaen og Þuríður Jóns málið, fór á sinfó, og í dag er ég að hlusta á eitt verka hins japanska meistara Takemitsu, Coral Island. Á þriðjudaginn síðasta var Ben meistara Frost smellt á fóninn og nú er maður bara spenntur að upp- götva snillinga á Myrkum músik- dögum. Ef þú ættir tímavél, hvert mynd- urðu fara og af hverju? Mér þætti gaman að vera viðstödd kvik- myndatökur á myndum Charlie Chaplin, City Lights 1931 og Mod- ern times 1935 eða 6, heyra tilsögn meistarans og fylgjast með öllu sem gerðist á „settinu“. Er eitthvað sem heldur fyrir þér vöku á nóttunni? Ég sef vel, eins og köttur. Ef þú gætir breytt einhverju í for- tíð þinni, hvað myndi það vera? Sleppa því að svæfa Hrafnkel, þó svo hann hafi verið orðinn háaldr- aður og slappur. Ég sakna hans svo skelfilega mikið. Hvenær fékkstu síðast hláturskast? Í gærkvöldi – rétt fyrir svefninn. Áttu þér einhverja leynda nautn? Man ekki eftir neinni leyndri nautn akkúrat nú en ef einhver kemur til með að rita ævisögu mína mun sá finna einhverja krassandi nautn og gera hana opinbera. Ég verð þá komin í annað sólkerfi leitandi nýrra nautna. Uppáhaldsbókin þessa stundina? Ljóðasafn Sigurðar Pálssonar sem kom út í fyrra. Hvaða núlifandi manneskju lítur þú mest upp til? Manneskjunn- ar sem ber virðingu fyrir sjálfri sér og þar af leiðandi öllu sem í kringum hana er. Manneskjunnar sem ber þakklæti, kærleik og ást til lífsins. Guðni Gunnars, jóga- kennari í Setrinu, hefur kennt mér margt og hann segir að allt sem við setjum athygli okkar á dafni. En hvaða núlifandi manneskju þol- irðu ekki? Það er engin manneskja sem ég bókstaflega þoli ekki en það eru manneskjur í okkar sam- félagi sem eru sífellt neikvæðar og bera vond ský um svæðin og ég set skjöld um mig í þeirra návist. Uppáhaldsorðið þitt? Ding-dong! Hvaða eitt atriði myndi fullkomna lífsgæði þín? Tónlistarvinnu- stofa. Hvaða einu lagi verður þú að taka „cover“ af áður en þú deyrð? You don´t have to say you love me. Hver verða þín frægu hinstu orð? Kem með þau síðar – nógur er tím- inn. Hvað er næst á dagskrá? Þegar tónleikunum í Salnum næstkom- andi mánudagskvöld er lokið og ég síðan búin að fara á alla tónleik- ana á Myrkum músíkdögum í kom- andi viku, geng ég upp á fjall, út í móa, inn í dal og niður í fjöru því fram undan eru tónleikar hjá tón- listarklúbbnum Mikki Músik. ÞRIÐJA GRÁÐAN FULLT NAFN: Ragnhildur Gísladóttir STARFSFERILL Í HNOTSKURN: Hef starfað sem tónlistarmaður um árabil. FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐIST MARKVERÐAST Á ÞVÍ ÁRI: 1956, árið sem fyrsti harði diskurinn fyrir tölvur var kynnt- ur til sögunnar (5MB). Vildi fylgjast með Chaplin Ragnhildur Gísladóttir er ein þekktasta tónlistarkona Íslands. Undanfarin ár hefur hún einbeitt sér að tónsmíðum og næsta mánudag mun hún ásamt kammersveit flytja verk eftir sig á tónlistarhátíð- inni Myrkum músíkdögum. Sigríður Björg Tómasdóttir yfirheyrði Ragnhildi. RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR Væri til í að nota tímavél til að fylgjast með Chaplin að störfum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ■ Á uppleið Loðhúfur Loðhúfur að rússneskum sið eru flottar og eiga líka frábærlega vel við í fimbulkulda eins og verið hefur undanfarið. Karlar sem konur taka sig vel út með loðhúfu á höfði. Kakó Eini rétti drykkurinn til þess að drekka um þessar mundir eru kakó með nóg af heitum rjóma út í. Í frosthörkunum þurfum við að ylja okkur að innan og svo þurfum við á aukahitaeiningunum að halda sem kakó og rjómi gefa okkur. Bragðbætta útgáfan, með rommlögg út í, er svo einkar viðeig- andi að kvöldlagi. Kardemommubærinn Meira að segja ræningjar geta orðið heiðarlegt fólk er fleyg setning úr Kardemommu- bænum sem á að minnsta kosti afar vel við þar, hvað sem segja má um raunveruleikann. Og eftirspurnin eftir þessari sígildu snilld er afar mikil sem marka má af því að nú, nokkrum vikum áður en leikurinn verður frumsýndur, er uppselt á 30 fyrstu sýningarnar. Vodka Febrúardrykkurinn 2009, drukkinn ískaldur í einu skoti. Enga væmni og væl í ár, takk fyrir. ■ Á niðurleið Útreiðartúrar á Tjörninni Þeir voru kannski aldrei inni beinlínis en eru svo ekki á leiðinni þangað eftir uppákomu vikunnar þegar ísinn á Tjörninni gaf sig undan hestafjöld. Alls ekki málið að stefna hestum yfir vötn, jafnvel ekki í frosthörkum eins og núna, það er nefnilega ekki hægt að stóla á að Fjölnir Þorgeirsson sé alltaf skammt undan. Fitulaust megrunarfæði Það er ekkert vit í að borða fitusnautt fæði á þessum árstíma. Selleríkáss- ur og hrís- kökur eru bara ekki vetrarmat- ur. Spikfeitt kjöt gefur miklu meiri orku og orka er það sem við þurfum til þess að komast í gegnum kalda vetrardaga. Yfirvaraskegg Það eru ekki á færi nema einstaka karlmanns að bera yfirvaraskegg svo vel sé – Tom Selleck vitaskuld þeirra fremstur. Almennt fer íslenskum karlmönnum betur að vera með alskegg vilji þeir skarta hári í andliti sínu, þó að því gefnu að skeg- grótin sé ekki gisin mjög, þá er betra að sleppa skegginu algjörlega. Þaulseta Seðlabankastjórar sitja sem fastast þrátt fyrir að ný ríkisstjórn hafi það að sínu helsta markmiði að losna við þá. Hvernig væri að skilja skilaboðin og bara drífa sig á braut? MÆLISTIKAN SENDU SMS ESL DVD Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ERU IGOR Á DVD, TÖLVULEIKIR, AÐRAR DVD MYNDIR, PEPSI OG MARGT FLEIRA. HANN ER MEÐ RISAVAXIÐ VANDAMÁL MEÐÍSLENSKUTALI 9. HVERVINNUR! LENDIR Í ELKO5. FEBRÚAR Vin nin ga r v er ða af he nd ir h já EL KO Li nd um – Sk óg ar lin d 2 . M eð þv í a ð t ak a þ át t e rtu ko m inn í S M S k lúb b. 14 9 k r/s ke yt ið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.