Fréttablaðið - 07.02.2009, Side 78
46 7. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
Halla Kristín Einarsdóttir hefur verið
með heimildarmyndina Konur á rauð-
um sokkum í smíðum um nokkurt skeið
en hún var ein þeirra sem fékk úthlut-
að styrk úr Hlaðvarpanum, menning-
arsjóði kvenna, á dögunum.
Myndin segir frá þróun Rauðsokka-
hreyfingarinnar, sem barðist fyrir
réttindum kvenna, frá árinu 1970 til
1980 og verður sýnd í Regnboganum
hinn 28. febrúar næstkomandi. Þar
koma sextán konur úr hreyfingunni við
sögu ásamt því sem hinum ýmsu svip-
myndum frá þessum tíma er brugðið
upp.
Halla segist hafa fengið hugmynd-
ina að myndinni í hagnýtri menn-
ingarmiðlun við Háskóla Íslands.
„Þar rakst ég á auglýsingu frá Mið-
stöð munnlegrar sögu sem leitaði að
fólki til að taka viðtöl við konur sem
voru virkar í kvennabaráttu frá 1960
til 1980. Ég var ákveðin í því að gera
kvikmynd sem lokaverkefni og fannst
þetta spennandi viðfangsefni.“ Halla
setti sig í samband við miðstöðina og
tóku hún og Fríða Rós Valdimarsdóttir
mannfræðingur rúmlega tuttugu við-
töl. Miðstöð munnlegrar sögu vann úr
þeim með hefðbundnum hætti en Halla
fékk leyfi til að nota efnið í heimildar-
myndina. Hún ákvað svo að einskorða
það við Rauðsokkahreyfinguna.
Í myndinni varpar hún ljósi á sögu
hreyfingarinnar, tíðarandann og bar-
áttumálin með ýmsum hætti. Hún fékk
meðal annars til liðs við sig Unu Lor-
enzen, sem er að læra hreyfimynda-
gerð í Los Angeles, og er hluti mynd-
arinnar teiknaður. „Þetta er nokkuð
umdeild aðferð en mér fannst hún eiga
vel við þar sem mikið var um teikning-
ar og útklipptar myndir í helsta mál-
gagni Rauðsokkahreyfingarinnar, For-
vitin rauð.“
En er eitthvað líkt með baráttu
Rauðsokkahreyfingarinnar og þeim
atburðum sem hafa átt sér stað undan-
farnar vikur? „Algerlega. Mér fannst
mjög spennandi að vera að klippa þessa
mynd um leið og ég heyrði bergmál-
ið í mótmælendum allt í kringum mig
og gat drukkið í mig baráttuandann.
Á áttunda áratugnum voru aktívist-
ar áberandi en ég man varla til þess
að það hafi verið mótmælt síðan þá,“
segir Halla. Henni finnst þó sorglega
lítið hafa breyst. „Það er helst ásýnd-
in sem hefur batnað en undir yfirborð-
inu viðgengst enn þá mikið misrétti. Á
sínum tíma héldu konur að með því að
mennta sig myndi staða þeirra breyt-
ast af sjálfu sér en sú er ekki alltaf
raunin.“
Halla er ánægð með að hafa kynnst
hinum dulúðugu rauðsokkum sem jafn-
vel hefur verið talað um sem verstu
tröllkonur. „Það sem þær eiga sam-
eiginlegt er að þora að opna munninn
þegar þeim misbýður misrétti í sam-
félaginu en annars eru þær jafn ólíkar
og þær eru margar,“ segir Halla, sem
ætlar að fylgja myndinni eftir á kvik-
myndahátíðir og jafnvel í sjónvarp.
vera@frettabladid.is
HALLA KRISTÍN EINARSDÓTTIR: FRUMSÝNIR KONUR Á RAUÐUM SOKKUM
KONUR SEM OPNA MUNNINN
DRAKK Í SIG BARÁTTUANDANN Halla segir margt líkt með baráttu Rauðsokkahreyfingarinnar og þeim atburðum sem hafa átt sér stað undan-
farnar vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
CHARLES DICKENS FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1812.
„Ég hefði aldrei afrekað
neitt hefði ég ekki tamið
mér stundvísi, reglusemi
og dugnað og einbeitt mér
að einu atriði í einu.“
Breski rithöfundurinn Charl-
es Dickens var uppi á Vikt-
oríutímabilinu. Hann skrif-
aði fjölda bóka og ljóða, þar
á meðal Oliver Twist.
MERKISATBURÐIR
1900 Verkamannaflokkurinn er
stofnaður í Bretlandi.
1914 Charlie Chaplin birtist í
fyrsta sinn sem litli flæk-
ingurinn.
1940 Walt Disney frumsýnir
teiknimyndina um Gosa.
1942 Húsmæðraskóli Reykja-
víkur tekur til starfa undir
stjórn Huldu Á. Stefáns-
dóttur.
1962 Bandaríkin banna inn- og
útflutning frá Kúbu.
1964 Bítlarnir koma til Banda-
ríkjanna í fyrsta skipti.
1974 Concorde-þota lenti á
Keflavíkurflugvelli í fyrsta
sinn.
1999 Abdullah prins tekur við
krúnunni í Jórdaníu eftir
dauða föður síns, Huss-
eins konungs.
Þennan dag árið 1992 var Evrópusambandið
(ESB) stofnað með undirritun Maastrichtsamn-
ingsins í Maastricht í
Hollandi. Evrópusam-
bandið er stjórnmála-
og efnahagsamband
27 Evrópuríkja með
höfuðstöðvar í Brus-
sel. Nærri 500 millj-
ónir borgara búa
innan sambandsins.
Í ESB er sameigin-
legur markaður sem
er staðlaður með lög-
gjöf sem öll aðild-
arríki eru skyldug
til að setja. Lögin
snúa að hinu svokallaða fjórfrelsi sem tryggir
frjálsa för fólks, varnings, þjónustu og fjármagns
um landamæri ríkjanna. Þá má nefna sameig-
inlega viðskiptastefnu, landbúnaðarstefnu og
sjávarútvegsstefnu
auk svæðisbundinn-
ar þróunarstefnu. ESB
hefur einnig hlut-
verki að gegna í utan-
ríkismálum en sam-
eiginlegur fulltrúi að-
ildarríkjanna semur
um kjör og kosti í Al-
þjóðaviðskiptastofn-
uninni, á fundum G8-
ríkjanna og hjá Sam-
einuðu þjóðunum.
Fimmtán af
aðildarríkjunum hafa
tekið upp sameiginlegan gjaldmiðil, evru, og 21
ríki er í NATO.
ÞETTA GERÐIST: 7. FEBRÚAR 1992
Evrópusambandið stofnað
90 ára afmæli
Þorbjörg
Pálsdóttir
myndhöggvari er níræð þriðjudaginn
10. febrúar. Í tilefni afmælisins er
vinum og ætting jum boðið í kaffi
að Sjafnargötu 14 milli kl. 16 og 18
sunnudaginn 8. feb. nk. Þorbjörg er
heiðursfélagi og einn af stofnfélögum
Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafað-
ir og afi,
Baldur Bergsteinsson
Beykihlíð 29, Reykjavík,
andaðist föstudaginn 30. janúar. Útför hans fer fram
frá Dómkirkjunni mánudaginn 9. febrúar kl. 15. Blóm
og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem
vildu minnast hans er bent á styrktarsjóð Göngum
saman til stuðnings rannsóknum á brjóstakrabba-
meini, í síma 540 1990 eða á heimsíðu: www.gongum-
saman.is.
Guðrún Guðmundsdóttir
Sigríður Baldursdóttir Gunnar Hjartarson
Kristín Baldursdóttir Kristján Frímann Kristjánsson
Margrét Baldursdóttir Þórólfur Árnason
Bergþóra Baldursdóttir Hjörleifur Þórarinsson
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Sigurður Einarsson
frá Hvalnesi í Lóni,
Ásvallagötu 17, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum Landakoti fimmtudaginn
29. janúar, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 13. febrúar kl. 13.00.
Guðný Egilsdóttir
dætur, tengdasynir
og barnabörn.
Hjartans þakkir til hinna fjölmörgu sem
sýndu okkur vináttu, samúð og virðingu í
veikindum og við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföð-
ur og afa,
Freys Magnússonar
Ljárskógum 12, Reykjavík,
og heiðruðu þannig minningu hans. Sérstakar þakk-
ir til Guðmundar Rúnarssonar læknis, Kristínar
Skúladóttur hjúkrunarfræðings og alls annars starfs-
fólks á deildum 11B og 11G á Landspítala fyrir einstaka
umönnun, stuðning og alúð. Guð blessi ykkur öll.
Soffía Jensdóttir
Jóna Freysdóttir Ásmundur Eiríksson
Ásta Sóllilja Freysdóttir Michael Johnston
Stefán Freyr Michaelsson.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.