Réttur - 01.06.1942, Page 27
eftirvinna greiðlst með 50% álagi á grunnkaup og
simnudaga- og næturvinna með 100% álagi. Hefgi-
dagakaup er greitt frá hádegi á laugardögum yfir
sumarmánuðina. Verkamenn fá sumarleyfi og ýms-
ar aðrar umbætur á kjörum sínum. Önnur verka-
lýðsfélög sigldu síðan í kjölfarið. Víöast var samið
um átta stunda vinnudag og grunnkaupshækkun frá
25—60%. .— Allir þessir samnipgar miðuðu mjög
að því að samræma kjör verkamanna víðsvegar um
land.
Eitt af helztu stefnumálum verkalýðsstéttarinnar
frá því samtök hennar hófust hefur verið að koma á
átta stunda vinnudegi. Þessu marki er nú náð. Siðan
verkalýðsfélögin voru hneppt í fjötra þvingunarlaga.
með samkomulagi þjóöstjórnarflokkanna 1939, hefur
barátta þeirra fyrst og fremst snúizt um það megin-
mál að endurheimta samtakafrelsi sitt og samnings-
rétt. Þessu marki er nú einnig náð.
Vegna þessara sigra verkalýðssamtakanna mun
ársins 1942 lengi minnst.
Gagnsókn.
Jafnskjótt og gerðardómslögin voru afnumin, var
vísitala látin hækka skyndilega, enda þótt hún hefði
verið látin haldast óbreytt frá áramótum. Allar flóð-
gáttir voru opnáðar fyrir dýrtíðinni. Mjólkin var
hækkuö svo í veröi, aö hún er nú meira er ferfalt
dýrari en fyrir stríð, ogkjötveröiö fimmfaldaö. Þaö var
tvöfaldað í verði á einu ári. Aörar landbúnaðaraf-
urðir voru hækkaðar að sama skapi. Milljónir króna
voru veittar úr ríkissjóði, ekki til aö lækka vöruverö-
ið, heldur til að gefa með útfluttu kjöti, til þess að
toyggja þaö, aö hægt væri að hækka kjötverðiö svona
geypilega án þess að stórtjón hlytist af vegna
minnkandi sölu innanlands. Ríkissjóður var þannig
látinn leggja fram milljónir króna til þess að stand-
91