Réttur - 01.06.1942, Qupperneq 28
ast herkostnaöinn af þessum veröhækkunum. Um
sama leyti auglýsti dómnefnd í verðlagsmálum gíf-
urlega hækkun á öllum innlendirm neyzluvörum
og leyfði hækkun á allri smásöluálagningu úr 25%
í 30%. Úr því að hún hafði ekki lengur vald tii
þess að kveöa upp dóma um kauplækkanir verka-
manna, notaði hún óspart vald sitt til að kveöa upp
dóma um hækkun vöruverös. í september komst
vísitalan npp í 250 stig.
Vitaskuld var hér ekki um neina tilviljun að ræða,
heldur pólitískt fyrirbrigði. Það var skipulögð og fyr-
irfram ákveðin sókn gegn launastéttum landsins, sem
hafði ákveðið pólitískt markmið. Jafnframt því, sem
dýrtíðin var aukin svo gífurlega, meö ráðnum hug
meö opinberum ráðstöfunum, sem allar stefndu að
sama marki, voru blöð Framsóknarflokksins og Sjálf-
stæöisflokksins látin hefja móðursjúk óp um þær
skelfingar og ógnir, sem yfir þjóðinni vofðu af völd-
um „verðbólgunnar“. Allt átti þetta, aö vera verka-
lýðssamtökimum og Sósíalistaflokknum að kenna.
Tilgangurinn var að plægja jarðveginn fyrir nýja
samstjórn afturhaldsins og nýjar þvingunarráðstaf-
anir í því augnamiði að gera að engu þá árangra,
sem verkalýðurinn haföi náö með baráttu sinni.
Dýrtíðartillögur Sósíalistaflokksins.
Sósíalistaflokkurinn afhjúpaði rækilega allt þetta
ráðabrugg, og sýndi fram á með skýrum rökum, að
þjóðstjórnin og þjóðstjórnarflokkamir hafa búið til
dýrtíðina, að svo miklu leyti, sem það er á valdi
íslendinga að hafa áhrif á hana. Jafnframt lagði
flokkurinn fram ýtarlegar tillögur um ráðstafanir
til að reisa rönd við vexti dýrtíðarinnar. Fyrir þess-
ari stefnu hefur flokkurinn barizt undanfarin ár, án
þess að fá nokkru um þokað, vegna andstööu hinna
92