Réttur - 01.06.1942, Blaðsíða 32
formsatr:Si heldur stórmál. Nú var ekki lengur um
form heldur um sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar að
tefla.
Sósíalistaflokkui'inn lagði til að hvergi yrði hikaö
i þessu máli jafnframt því sem gætt yrði allrar varúð-
ar og hygginda. Það var tillaga hans að samþykkt
yröi á sumarþinginu lýðveldisstjórnarskrá, er síðan
yrði lögQ' fyrir þjóðfund, er kosið yrði til með almenn-
um kosningum. Áður en þjóðfundurinn kæmi saman,
yrði undirbúin gagngerð endurskoðun stjórnarskrár-
innar. Með samþykki þjóðfundarins yrði hinni nýju
stjórnarskrá veitt sérstök helgi og þungi. Hinsvegar
skyldi vera ákvæði um að Alþingi gæti_ákveðið aö
stjórnskipunarlög þau er samþykkt yrðu 1942 öðl-
uðust gildi,, áður en þau yrði lögð fyrir þjóðfund
til endanlegrar samþykktar.
Sósíalistaflokkurmn lagði einnig til að samtímis
þessum ákvöröunum í sjálfstæðismálunum samþykkti
Alþingl samúðaryfirlýsingu með Bandamönnum í
styrjöldinni.
Alþingl bar ekki giftu til að sameinast um þessa
leið Sósíalistaflokksins. Hitt var þó fyrir öllu að öll
þjóö'n stæði sameinuð um þá leið sem farin yrði.
Var þá tekið það ráð að gera tilraun til að sam-
eina alla þingmenn um heimUdarákvæði það, er
fyrr getur í trausti þsss að málum hefði skipast svo
á næsta þingi, að betur horfði- En Framsóknarflokk-
urinn skarst úr leik. Neitaði hann að eiga nokkurn
þátt í lausn málsins, nema haustkosningarnar og
breytingarnar á kosningafyrirkomulaginu yrðu látn-
ar niður falla, svo að hann fengi aö halda sérréttind-
um sínum. Mun þessi fáheyröa framkoma, á þeirri
stund, er þjóðinni bar hinn mesta vanda áð höndum
lengi í minnum höfð.
Nú hafa gerzt þau stóru tíðindi, að Bandaríkja-
stjórn hefur lýst því yfir aö hún hafi ekkert við það
96