Réttur - 01.06.1942, Síða 39
*
ingu fyrir friðhelgi þess og algeru sjálfstæði, er friður
verður saminn í styrjaldarlok.
V. Atvinnuf ramvæmdir.
11. Nægilegt fé sé veitt á fjárlögum og aðrar nauðsyn-
legar ráðstafanir gerðar gegn yfirvofandi atvinnuleysi.
Fjármagni þjóðarnnar sé varið eins og kostur er til trygg-
ingar atvinnulífinu, kaupa á atvinnutækjum, vélum til út-
gerðar og landbúnaðar, bátum skipum og byggingarefni.
Framkvæmdir séu hafnar eins fljótt og unnt er á nauð-
synlegum byggingum, verksmiðjum og rafvirkjunarstöðv-
um. Stórfelldar umbætur gerðar á höfnum, þar sem annars
eru góð skilyrði til fiskveiða, hafinn undirbúningur undir
stofnun byggðahverfa í sveitum, þar sem skilyrði eru hag-
kvæmust o. s. frv.
VI. Umbætur á réttarfari og opinberri starfrækslu.
12. Réttarfari og hegningarlöggjöf verði breytt í frjáls
lyndara horf.
13. Einfaldari skipan sé komið á starfsmannakerfi ríkis-
ins, afnumdar aukagreiðslur og óþörf embætti og launa-
lögin endurskoðuð.
VII. Framkvæmd þessarar stefnuskrár tryggð.
14. Nauðsynlegar breytingar gerðar á framkvæmdavald'-
inu, embættis- og starfsmannaliði rikisins og opinberra
stofnana til þess að tryggja framkvæmd þeirrar stefnu
og þeirra verkefnai, sem hér hafa verið talin.
15. Ríkisstjómin styðji sig við og hafi samráð við sam-
tök fólksins og bandalag þeirra samtaka, verkalýðsfélög,
samvinnufélög, menningarfélög, stjórnmálafélög og önnur,
er sameinast vilja um þessa stefnuskrá. Sem víðast á
landinu verði myndaðar sameiginlegar nefndir slíkra sam-
taka, sem ríkisstjómin hafi náið samstarf við.
16. Verði ágreiningur, sem leiðir til samvinnuslita, skuld-
103