Réttur - 01.06.1942, Page 41
við verkalýðshreyfinguna, þannig að þeir fái að halda
öllum valdastöðvium sínum, og til þess eru þeir fúsir að
láta af hendi nokkur fríðindi um stund.
Nú ríður á, að verkalýðshreyfingin kunni einnig tökin
á stjórnlist sinni. Að hún sleppi engu tækifæri til að
treysta valdaafstöðu sína og gerir sér ljóst, að ef hún læt-
ur sér nægja ívilnanir og stundarfríðindli, sem aftur verða
tekin jafnskjótt og afturhaldið telur sig þess umkomið, á
hún á hættu að tapa öllu, einnig þsí, sem þegar hefur
unnizt. Að verkalýðurinn geri1 sér ljóst, að markmið hans
er að taka völdin í sínar hendur í nánu bandalagi við
bændur og aðrar vinnandi stéttir til þess að forða
fólkinu frá nýju atvinnuleysi og örbirgð, réttleysi og
lcúgun. Að það er skylda hansi að hafa forustuna fyrir
öllum framfara- og lýðræðisöflum þjóðarinnar, til þess
að stuðla að því, að Islenzka þjóðin leggi að sínu leyti
fram allt, sem hún framast megnar, til þess að fullur
sigur vinnist yfir fasismamun í styrjöldinni, og að það
er hlutverk hans, að standa vörð um sjálfstæði landsins
og vera í fararbroddi í baráttimni fyrir sköpun hins
nýja þjóðfélags að styrjöldinni lokinni.
Þingið telur að leggja beri megináherzlu á a.ð efla
einingu og styrkleika Alþýðusambandsins og sameina öll
stéttarfélög launþega innan þess, jafnframt því sem unn-
ið er að því að koma á náinni samvinnu milli verkalýðs-
samtakaiina og samtaka annarra vinnandi manna. i land-
inu. Þingið skorar því á öll alþýðusamtök í landinu, verka-
lýðssamtök, samvinnufélög og önnur hagsmunasamtök
bænda og fiskimanna, ungmennafélög og önnur æstoulýðs-
félög, menningarfélög og stjómmálafélög þau, sem alþýða
manna er starfandi í, að stofna til bandalags til vemdar
hagsmunum sínum, til samfylkingar liins vinnandi fólks
um ákveðna stefnuskrá í samræmi við þau höfuðmarkmið,
sem felast í skilyrðum þeim um þátttöku Sósíalistaflokks-
ins í ríkisstjóm, sem þingið samþykkir samtimis þessari
ályktun.
105