Réttur


Réttur - 01.06.1942, Page 49

Réttur - 01.06.1942, Page 49
landaaukning Araba; aðrar landvinningar Islams voru verk Tyrkja. Ekki verður annað sagt, en að mikil þáttaskipti hafi orðið í sögu Evrópu með þessu arabíska heims- veldi. Kirkjan og hinn kristni heimur hafði beðið mikið afhroð, en fékk ekki rönd við reist. Kóraninn og arabísan réðu nú ríkjum þar, seni Biblían og latínan höfðu verið einráð áður. En það var gifta heimsins, að þessir vígreifu arabísku trúboðar fóru ekki eldi um þá menningu, sem orðin var gróin í Miöjarðarhafslöndunum. Þaö var sérstaklega á tveim sviðum, að Arabar héldu uppi sögulegum erfðum hinnar grísk-rómversku menningar: í verzlun og vísindum. Þessar aldir, sem hér um ræðir, eru venju- lega kallaöar myrkuraldir sögunnar. 1 hinum ungu þjóðlöndum Evrópu hokruðu menn á sinni torfu, verzlun og viðskipti voru lítil, peningaverzlun enn sjaldséðari. En í ríki Araba eru stórvirki unnin í vega- og brúargerð, áveitur gerðar, garðrækt í mikl- um blóma, þeir grafa fyrir brunnum í eyöimörkun- um og skipuleggja karavanaflutninga. Kaupmenn þeirra eru allsstaðar á ferli, á Rauöáhafi, Persaflóa og Indlandshafi. Þeir eru á öllum verzlunarleiðum Mið-Asíu og Indlands, í Kanton eiga þeir arabíska verzlunarnýlendu. í Kína kynnast þeir áttavitanum og flytja hann til Evrópu, þar læra þeir einnig pappírsgerð, en fullkoma hana og búa fyrstir manna pappír úr líni. Þeir reka einnig verzlun upp um allt Rússland og til Eystrasalts, þáðan fá þeir skinna- vöru, vax og hunang. Á Gotlandi hafa fundizt þús- undir arabískra mynta, sem eru glöggur vottur um verzlun þeirra við Noröurlönd. í borgum Miðjaröar- hafslandanna er iðnáður í miklum uppgangi, vís- indi Grikkja eru til vor komin um hendur Araba. Þetta er hinn glæsilegi heimur Arabaríkis- ins, sem hvílir í þrautræktaðri menningu Miðjarð- 113

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.