Réttur - 01.06.1942, Blaðsíða 50
arhafsins. Hin kristna Evrópa hataöi auóvitaö þenn-
an heim hins bölvað’a Múhameös, en hún gat ekki
annaö en leitað til hans um flest þau, er snerti
fegurð og fágun andans og líkamans. Krydd, skraut-
klæöi og aörar munaöarvörur riddaranna komu frá
Aröpum, einnig reykelsi hinnar kaþólsku messu. Og
kristnir lærdómsmenn uröu að leggja lykkju á leið
sína og halda til Suöurlanda í menntaleit. Um áriö
1000 sat á páfastóli Sylvester 2. Hann var læröur
suður í háskólum Sevillu og Cordobu.
3.)
Hin arabíska menning, sem draup yfir Evrópu,
æsti upp sultinn i hinni herskáu yfirstétt Ev-
rópu, veraldlegum og kirkjulegum aöila. Það fór aö
vakna sú hugsun í Evrópu, hvort ekki mætti sækja
þau heim, þessi auðugu töfralönd suöursins. Kirkj-
unni var þaö mikiö áhugamál aö fá rétt við hlut
sinn á þessum fornu slóöum frumkristninnar, auk
þess, sem hún gat grátið þaö þurrum tárum, er
hinn ódæli riddaralýður fékk svalað vígalöngun
sinni og honum var tekið blóö í þjónustu, sem
tryggði sjálfum þeim eilíft líf, en kirkjunni nýjar
sálir og biskupsdæmi. En þar við bættist, aö kristn-
ar verzlunarborgir á ítalíu voru nú óöum aö rétta
sig úr kútnum eftir hiö pólitíska og atvinnulega
hrun þjóðflutninganna. Borgir á Suöurítalíu, Gaeta
og Amalfi, Napoli og Salerno höfðu um stund rekið
skæruhernaö viö arabíska víkinga, sem höföu byggt
sér hreiður á ströndum og eyjum Miðjaröarhafsins
og gerðu kristnum siglingum allt til bölvunar, sem
þeir gátu. Frá lokum 10. aldar má því sjá þess
glögg merki, aö baráttan um Miöjaröarhafiö er aö
hefjast á nýjan leik. Baráttan hófst á Sikiley, miö-
depli hafsins. Þar höfðu haldizt nokkrar leifar kust-
urrómverskrar stjórnar, en Arabar voru þar mjög um-
114