Réttur - 01.06.1942, Side 68
svikafullu sendiþý. Nazistamir buðu honum auS
og metorö, ef hann vildi auömýkja sig fyrir þeim
og aðhyllast þeirra stefnu. Útsendarar nazistanna
voru látnir í sama klefa og hann í þeim tilgangi,
aö þeir veiktu andlegan þrótt hans og kæmu hon-
um til þess aö gefast upp. Þegar nazistarnir fengu
engu umþokað með klækjabrögðum, gripu þeir til
miskunnarlausra misþyi’minga. Það bar engan árang-
ur. Nazistamir reyndu allt til að yfirbuga hann, en
skósveinar þeirra, leiguþý og böðlar unnu engan
bilbug á Gabriel Peri.
Eftir þjáningar margra mánaða dó Gabriel Peri
hetjudauða. Til hinztu stundar bar þetta franska
mikilmenni ægishjálm yfir kúgara sína. Hinar frels-
isxmnandi þjóðir heimsins mxrnu aldrei gleyma hin-
um göfugu, drengilegu orðum í siöasta bréfi hans.
Hið mikla andans þrek þessa stórfenglega franska
föðurlandsvinar, táknið um kjark hinna frönsku
píslarvotta, stendur enn gegn áformum þeirra glæpa-.
manna, sem nú misþyrma heilli þjóð og tortíma
beztu sonum hennar og dætmm.
Gabriel, Peri talaöi fyrir munni frönsku þjóðarinn-
ar. Með blóði sínu treysti hann einingu hennar.
Með blóði sínu ritaöi hann dóminn yfir fasisman-
um. Skömmu eftir aftöku hans gáfu franskir föð-
urlandsvinir út flugrit, sem var dreift á laun í París
og öðrum hlutum Frakklands. í því var tilkynnt,
að þjóðfylkingin franska væri grundvölluð á einu
sameiginlegu takmarki: frelsi Frakklands, af mörm-
um, er aðhylltust hinar ólíkustu lífs og stjórnmála-
skoðanir.
Franska þjóðfrelsisfylkingin er mynduð af fylgj-
endum de Gaulle, kaþólskum mönnum, kommún-
istum, bændum, verkamörmum, listamönnum, rit-
höfxmdum — mönnxim úr öllxim stéttum hins vinn-
andi fólks. Lokasigur hennar er tryggðxu.
132