Réttur - 01.06.1942, Blaðsíða 81
laust mörg fleiri, sem enn hafa ekki borizt eintök
af út fyrir landamæri Frakklands.
Á hverjum degi ögra þessi blöð Gestapo, sem með
engu móti getur hindrað útgáfu þeirra. Leynilegar
prentsmiðjur eru fundnar, fjölritarar geröir upptæk-
ir, dreifendur blaðanna teknú’ og skotnir, en hin
bönnuðu blöö Frakklands halda áfram að koma út
og flytja lesendum sigurvonir, fréttir af baráttunni
gegn fasistunum, frá stríði Bandamanna og nákvæm-
ar skipulagningarleiöbeiningar um það, hvernig
auðveldast sé að eyðileggja áform nazistanna og
V ichyst j órnarinnar.
Þessi blöð eru rödd hins raunverulega Frakklands
— hin eina rödd þess. Og á síöum þeirra lifir hinn
stríðandi andi Gabriels Peris.
Hvílíka sigurvissu, baráttuþrótt og gætni, þarf tiJ*
þess að gefa þessi blöð út! Fréttanna varður aö
afla hjá áreiðanlegum andfasistum og búa þær unSt-
ir prentun á algerlega leynilegum stöðum. Síöan
hefst útgáfa blaðanna sjálfra, sem sennilega fer
fram um nætur, í leyniherbergjum við erfið skilyrði.
Rómantískir menn skyldu minnast þess, að slíku
verki fylgir enginn töfraljómi, heldur hin blákald-
asta alvara og gerhygli. Hin minnstu mistök geta
kostað lif einhvers félaga.
Því næst hefst dreyfing blaðsins, erfiðasta verk-
ið. Gestapo er með nefið niðri í öllu, njósnarar
Gestapo og útsendarar dyljast á hinum ólíklegustu
stöðum. Blaðið er lesið og afhent þeim næsta. Að-
eins beztu úrvalsmönnum er treystandi til dreifing-
arinnar.
Hin leynilegu blöð Frakklands eru sldpuleggjendur frels-
isbaráttu allrar þjóðarinnar gegn nazistunum. Hver lína
er hárbeitt vopn. Og nazistarnir vita það vel.
145