Réttur


Réttur - 01.06.1942, Page 97

Réttur - 01.06.1942, Page 97
hann kom því fram, at fé allt var virt með svar- dögum, þat er á íslandi var, ok landit sjálft ok tí- undir af gervar — —Grannþjóðir komu ekki á tíund svo fljótt og friösamlega og sízt svo róttækri sem hér. Erlendis var hún 10% tekjuskattur á fram- leiðslu bænda og fleiri vinnandi stétta, en til eigna efnamanna náði hún víðast miklu minna (helzt sem höfuðtíund eigna einu sinni á ævi manns). Tíund Gissur var (skiptitíundin) 1% af hVer kyns eign- um, skartgripum jafnt sem óöalseignum, „ok undra ek mik“, mælti Loöinn leppur hinn norski síðar um hana, „hví landsbýit þolir yðr slíkar óhæfur ok gerit eigi norræna tíund aðeins, þá sem gengr um allan heiminn ok einsaman er rétt lögtekin“. Einn fjórð- ungur tíundar hvarf til biskups (m. ai. til mennta- skóláhalds), annar til kirkna, þriðji til prestanna, fjórði til þurfamannaframfæris innan hvers hrepps- Astæðan til þess, að höfðingjar féllust á tíundina, var sú, aö þeir áttu flestir kirkjur og annaðhvort þjónuðu þeim sjálfir eða höfðu til þess kauplágan, réttindalítinn prest og hirtu sjálfir fyrir þetta helm- ing allrar tívmdar. Hún varð þeim geysileg auðs- uppspretta, er stundir liðu. Tíundarfrelsi keyptu þeir sér margir með því að gefa kirkjunni jarðir sínar og nokkurn búpening og áskilja. sér og niðjum sínum forræði þess. Enga tíund þurfti að gjalda af „kirkju- eign“ slíkri né af goðorðum, þótt tekjur gæfu. Al- múginn hlaut þessa skattabyrði án hagsbóta nema að því leyti, sem þurfamannaframfærið var skipu- lagt, (merk umbót borin saman við ástand meö grannþjóðum þá). Eigi skyldi ómögum fé ætla og draga þáð frá tíundinni, og innheimta mátti hana með hörku mikilli. Tíundarlögin 1096 voru, í fám orðum sagt, samningur háklerka og höfðingja um sameiginlega, lögbundna arðnýting þeirra á þjóö- inni og um skipting þess arðs milli sín til að halda 161

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.