Réttur - 01.01.1954, Qupperneq 7
RÉTTUR
7
ríkjunum. Eitt blaðið NEW YORK POST komst m. a. svo
að orði, að þegar Dulles fór frá Caracas, hefði hann látið
að baki sér „byrjandi samfylkingu gegn stefnu Banda-
ríkjanna“.
Var nú hert á undirróðrinum gegn stjórn Guatemala.
Vopn voru flutt í stríðum straumum til grannríkja þess og
sendiherra Bandaríkjanna 1 Guatemala herti róðurinn að
tryggja sér svikara innan hers og stjórnar. Og loks sendi
svo Bandaríkjastjórn hóp æfintýra- og misyndismanna inn
yfir suðurlandamæri Guatemala, búna öllum nýtízku vopn-
um, þ. á m. flugvélum. Þessum óþjóðalýð varð þó lítið
ágengt, að öðru leyti en því, að í bænum Morales, sem er
skammt frá landamærunum tóku þeir höndum leiðtoga 4
þúsund plantekruverkamanna, sem nýlega höfðu háð sig-
ursælt verkfall gegn United Fruit og voru 45 þeirra skotnir
án dóms og laga.
En Mr. John Puerifoy, sendiherra Bandaríkjanna, varð
þeim mun meira ágengt. Með frekju og undirferli tókst
honum að fá háttsetta herforingja til að gerast svikara,
steypa löglegri stjórn landsins og ganga til samninga við
innrásarseggina. Fólu þeir samningar í sér fullkomna upp-
gjöf fyrir yfirgangi Bandaríkjanna og endalok lýðræðis-
legra stjórnarhátta. Eru þessir atburðir mönnum svo í
fersku minni, að ekki er þörf að rekja þá nánar.
Viðbrögð og veikleikar stjórnar Arbenz forseta á úr-
slitastundum sýndu glöggt, eins og athafnir hennar höfðu
sýnt áður, að hún var ekki kommúnistísk stjórn. Hún var
aðeins að eðli til venjuleg borgaraleg umbótastjórn. Ekk-
ert í stjórnarathöfnum hennar braut í bág við stefnuskrá
flokka á borð við Framsóknarf lokkinn og Alþýðuflokkinn,
enda komu fram hjá henni samskonar veikleikar og ein-
kenna slíkar stjórnir, þegar þær mæta ofbeldisárásum.
Það sem gerði stjórn Guatemala óvenjulega var hugrekki
hennar. Hún hafði hugrekki til að taka hagsmuni lands
síns fram yfir hagsmuni bandarískra auðhringa. Það sem
gerði hana óvenjulega var það, hve óvenjulegt er nú á