Réttur - 01.01.1954, Síða 17
RÉTTUR
17
hélt að það væru eintómar kvarnir í höfðum íslendinga og hann
hefði tjóðrað þá á marshall-klafann til eilífðar.
En vetrarverkfallið mikla 1952, allsherjarverkfall 20.000 verka-
manna og verkakvenna, sýndi yfirstéttinni og ameríska hervald-
inu hvar það vald var, sem gat boðið þeim byrginn og þorði það.
Þjóðin sá að til var vald, sem ameríski herinn varð að beygja
sig fyrir. Alþýðan sá, að hún átti sjálf krafta í köglum, að sam-
takamáttur hennar gat frelsað hana, ef hún beitti honum rétt.
Stolt hennar óx. Undanhald amerísks hervalds og íslenzkrar yfir-
stéttar byrjaði.
Og þegar friðaröflin samtímis unnu á úti í heimi: Friður knúinn
fram í Kóreu, friði komið á í Indó-Kína gegn vilja Ameríkana,
þá gripu jafnvel þeir, sem gerst höfðu sekir um hernámið 1951,
til þeirrar átyllu „að nú liti friðsamlegar út í heiminum", til þess
að geta mælt með því að hernáminu lyki.
Andúðin á hernámi amerísks valds á íslandi er nú orðin svo
mikil að það er raunverulega aðeins spurningin, hve fljótt þjóð-
inni gengur að losna við innrásarherinn. Jafnvel amerískir stjórn-
málamenn eru farnir að gera sér það ljóst.
En þótt amerískt auðvald verði knúið til undanhalds á einu
sviði, mun það reyna að ná tökum sínum á þjóðinni á öðrum
sviðum. Það mun jafnhliða því, sem það reynir að halda herstöðv-
unum undir einhverskonar grímu^ þótt hernámssamningnum sé
sagt upp, reyna að ná fótfestu á íslandi meff auðmagni sínu. Og
það er ekki síður hættulegt en herstöðvarnar.
íslenzk verklýðshreyfing verður að hindra það að amerísku auð-
hringarnir nái fótfestu á íslandi. Hættan vofir þegar yfir. Þeir
flokkar, sem verið hafa hlýðnastir amerísku hervaldi á undan-
förnum árum, hafa þegar hafið áróður fyrir því að amerískum
auðfélögum séu veitt sérréttindi hér um atvinnurekstur. En það
er vitað að fái amerískir auðhringar einu sinni slík ítök hér,
t. d. til aluminíumframleiðslu eða annars slíks, þá eru þeir orðnir
ríki í ríkinu og halda áfram að sölsa undir sig auð og völd. Til
þess eru vítin að varast þau: Vér íslendingar höfum séð hvernig
amerískir auðhringar haga sér í þeim löndum þar sem þeir ná
tökum. Guatemala er gleggsta raunin. Þeir skirrast ekki við að
skipuleggja uppreisn gegn löglegri stjórn landsins eða vopnaða
innrás, til að þurrka út lýðræði, lög og rétt, ef þeir álíta hags-
2