Réttur


Réttur - 01.01.1954, Page 22

Réttur - 01.01.1954, Page 22
22 RÉTTUR skipulag kommúnismans er undanskilið. Það eru braskarar, sem ráða Sjálfstæðisflokknum, og þeir myndu nota valda- aðstöðuna án minnstu miskunnar og tillitssemi. Það eru fávíslegar hugmyndir, sem ýmsir Þjóðvarnarmenn nota til að réttlæta hjálp sína við íhaldið, að það myndi ekki geta haldið völdum, nema í eitt kjörtímabil, þá myndu vinstri öflin sameinast o. s. frv. íhaldið myndi vissulega misbeita þannig valdinu, ef það fengi það einsamalt, að eftir það yrði ekki til lýðræði á íslandi nema að nafninu til. Og ekki myndi horft í það að þiggja erlenda aðstoð, ef völdin yrðu ekki tryggð með öðrum hætti.“ (Leturbr. Tímans). Tíminn lýsir því síðan yfir að Sjálfstæðisflokkurinn sé ,,ekki lýðræðissinnaður íhaldsflokkur", heldur „valdatæki ófyrirleitinna braskara eins og íhaldsflokkarnir í Suður-Ameríku eru.“ Framsóknarflokkurinn lýsir því yfir með þessu að, ef íhaldið nái meirihluta á þingi, muni raunverulega komast hér á harð- stjórn, einskonar fasismi, sem breytzt getur í erlenda hervalds- stjórn, ef þörf þyki. Og þessi hætta er raunveruleg. Ekki svo að skilja að Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann er sé fasistaflokkur. Því fer fjarri. En innan hans er starfandi fasistisk klíka, sem ræður áróðri hans, eins og hinn andkommúnistiski Hitlers-stíll Morgunblaðsins ber með sér, og þessi klíka grefur um sig í dóms-og lögreglumálum, ræður flokkstækinu og myndi, ef flokkurinn væri einráður í landinu, með frekju sinni, ógnunum og amerískri aðstoð gera pólitík þeirrar ríkisstjórnar að samfelldri ofsókn og ofbeldi gegn öllu lýðræði og frjálsri hugsun, sem auð- vitað allt yrði kallað kommúnismi samkvæmt beztu fyrirmynd- um. Sú „þróun“ er þegar alllangt komin innan Sjálfstæðisflokks- ins að gera suma að andlegum .skoðanalausum aumingjum og aðra að innihaldslausum leikbrúðum, sem sterk, loðin krumla kippir í og stjómar. Bollaleggingar Sj álfstæðisflokksins um að ná þingmeirihluta með minnihluta kjósenda á bak við sig sýna hve rik tilhneiging þessa flokks, sem alltaf er með „lýðræðið“ á vörunum, er til þess að hnekkja lýðræðinu og jafnvel afmá það með þingræðið að tæki. Það sýnir hve grunnt lýðræðisástin ristir. Að visu er Framsókn með sömu bollaleggingar: að ná þingmeirihluta með aðstoð hægra arms Alþýðuflokksins, en með minnihluta kjósenda á bak við sig.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.