Réttur


Réttur - 01.01.1954, Page 23

Réttur - 01.01.1954, Page 23
RÉTTUR 23 Það sýnir að sjálf virðingin fyrir lýðræðinu er litlu meiri þar. En sá er munurinn, að slík þingmeirihluta stjórn íhaldsins yrði þjóð- inni stórhættuleg, því allt vald auðs og Ameríkana væri á bak við hana, — en stjórn Framsóknar og hægri Alþýðuflokks yrði, — auk þess sem vonlaust væri um að hún næði þeim þingmeirihluta, sem þyrfti til að mynda hana, — máttlaus jafnt til góðra verka sem illra, ef hún þættist ætla að reyna að stjórna íslandi bæði gegn auðvaldi og verkalýðssamtökunum. Hættan á einræði íhaldsins, alræði harðsvíraðasta hluta auð- mannastéttarinnar íslenzku og amerísku, er hætta, sem alþýðan verður að horfast í augu við og afstýra. Þessi árás auðvaldsins ógnar öllu lýðfrelsi, sem áunnizt hefur í heillar aldar sókn íslenzkrar alþýðu, — öllu því lýðræði, sem íslenzk bændastétt sótti í greipar erlends valds, — öllum þeim lýðréttindum, sem íslenzk verklýðshreyfing hefur með harðri hendi heimt úr greipum íslenzks afturhalds. Afstaða alþýðunnar og einkum hins sósíalistiska verkalýðs gagn- vart ríkisvaldinu hlýtur því að verða tvíþætt á næstunni: Ann- arsvegar verður alþýðan að einbeita sér að því að hindra að ríkisvaldið haldi áfram að vera það ráns- og spillingartæki, sem það nú er yfirstéttinni, og koma í veg fyrir að það verði það í enn miklu ríkari mæli sem einkatæki íhaldsins til alræðis auð- valdsins yfir alþýðunni. En hinsvegar verður alþýðan jöfnum höndum að beita öllu atfylgi sínu til þess að orka á ríkisvaldið, til að sveigja það til lýðræðis, en skapa samtímis skilyrði til þess að ná því úr höndum auðvaldsins. Höfuð atriðið í þeirri viðleitni verður að skapa sem víðtækast samstarf milli verkalýðs, bænda, fiskimanna, menntamanna og millistétta, samstarf, er einnig nái til þeirra atvinnurekenda, sem efla vilja heilbrigðan íslenzkan atvinnurekstur. Slík þjóðareining vinnandi stéttanna gæti þegar hún væri á komin, náð meirihluta með þingi og þjóð í almennum kosningum og myndað á grundvelli slíks sigurs framsækna lýð- ræðisstjórn, er endurheimti þjóðfrelsi íslendinga, verndaði og efldi lýðræði í landinu og stjórnaði þjóðfélaginu með hag og heill alþjóðar fyrir augum. Sköpun kosningabandalags þeirra flokka og samtaka, er að slíku vildu vinna, er hið næsta mikla hlutverk alþýðunnar. Slíkt kosningabandalag og ríkisstjórn þess ættu víst atfylgi og hollustu verkalýðssamtakanna, sterkasta valdsins í landinu. Þegar slík stjórn væri mynduð, myndu aftur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.