Réttur


Réttur - 01.01.1954, Side 26

Réttur - 01.01.1954, Side 26
26 RÉTTUR Alþýðan mun setja stolt sitt í það að sýna víðsýni og um- burðarlyndi, þegar Alþingi, skipað fulltrúum hennar að meiri- hluta, myndar alþýðustjórn á íslandi. Alþýða fslands gerir sér fyllilega ljóst, að veröldin öll eigi síður en ísland eitt, þarfnast friðar og friðsamlegrar þróunar hvers þjóðfélags. Alþýða fslands mun líta á það sem eitt hlutverk Einbúans í Atfantsál að bera sáttarorð á alþjóðavettvangi, og hún mun einnig kappkosta að skapa sætt innanlands, án afsláttar á hugsjónum og hagsmunum alþýðu, en með virðingu fyrir mannréttindum þeirra, er öðru- vísi hugsa. Alþýða íslands mun vissulega gera sér ljóst, hve dygg varðstaða hennar verður að vera um lýðræði sitt og mannréttindi öll, hvernig hún verður í sífellu að halda vöku sinni gagnvart aftur- haldi og einræði og aldrei láta koma sér að óvörum. En þrátt fyrir alla þá hörku, sem óhjákvæmilega verður í úrslitabaráttu alþýðustétta við ríkt og harðsvírað auðvald, út- lent og innlent, þá mun íslenzk alþýða ætíð minnast þess, að þá reis Alþingi íslendinga hæst, er því tókst að skapa sætt og frið milli mannanna, er bárust á banaspjót. En þegar sú alþýða, er órétt hefur þolað um aldir, auðsýnir mildi, samfara festu, sátt- arhug, samfara hugsjónatryggð, þá er yfirstéttinni nauðsynlegt að læra það í tíma að sætta sig við ósigur sinn, missi valda og arð- ránsaðstöðu, án þess að grípa til þeirra óyndisúrræða, sem ein- kennt hafa amerískt hugsandi yfirstéttir Suður-Ameríku. ★ Sú leið, sem liggur til alþýðuvalda á íslandi við núverandi að- stæður, myndi vissulega verða skrykkjótt. Vonbrigði myndu vafalaust oft koma á eftir fögnuði fólksins, aðiljar, sem á var treyst í atrennu kosninga, myndu bogna er á hólminn kæmu, einstaklingar, sem á var treyst, falla fyrir freistingum auðs og valda, sem enn héldust í umhverfinu. En út úr hverri raun mun alþýðan koma, reynslunni ríkari, sterkari og samhentari en fyrr. Og alltaf verður haldið aftur af stað „unz brautin er brotin til enda“. Leiðin sú verður nú ekki eins skáldleg og fögur, ekki eins svipmikil og hetjuleg og sú braut, er verkamenn hugðust „brjótast beint“ í byrjun þessarar aldar. En hún verður affarasælust íslandi — og sú eina, sem er fær, ef heimsfriður helzt.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.