Réttur - 01.01.1954, Qupperneq 38
38
RÉTTUR
sviðiriu. Því þar yrði hafizt handa við að umskapa þær aðstæður,
sem verkalýðssamtökin og önnur samtök vinnandi stétta hafa bú-
ið við til þessa. Samtök fólksins myndu í vaxandi mæli fara að
njóta þeirra aðstæðna til félagsmenningar, er sósíalisminn myndi
veita til fulls, er hann væri kominn á. Vér sjáum nú þegar 1 anda
þá byltingu í félagsmenningu hins vinnandi fólks, er sósíalisminn
veitir, það ástand, þegar menningarhallir verkalýðssamtakanna
og annarra samtaka vinnandi stéttanna, væri orðnar fleiri en ,;bar-
-arnir" nú, þegar hvert þorp og hver sveit ætti sína menningarhöll,
þegar skák- og söngfélög og önnur menningarfélög væru ekki
lengur á hrakhólum, þegar góðir lestrarsalir löðuðu til sín æsk-
una, þegar fögur málverk, glæsilegar höggmyndir listamanna
vorra skreyttu þessar sameiginlegu vistarverur alþýðunnar til
sjávar og sveita, þegar úrvals kvikmyndir væru alltaf í boði,
þegar fundafrelsi verkalýðssamtakanna væri tryggt með stórum
og fögrum, listrænt skreyttum fundarsölum, þegar sumardvalar-
hallir og orlofsheimili alþýðusamtakanna opnuðu íslenzku
verkafólki leiðina til þess að njóta fegurðar síns eigin lands og
orlofsferðir alþýðufólks til annarra landa yrðu regla en ekki und-
antekning. — Og þá myndi margur spyrja sjálfan sig, hvernig
fórum við að því að lifa þar sem amerískar bíó-myndir og ,,bar-
ar“ voru aðal-„skemmti“-atriðin, og braggar eða léleg samkomu-
hús eina athvarfið um samkomur, sem drógu þá dám af umhverf-
inu og gróðatilganginum með þeim.
„Skýjaborgir, skýjaborgir", mun afturhaldið hrópa, en því er
verkalýðurinn orðinn of vanur, til að skeyta því nokkru.
Menningarbyltingin er einn þýðingarmesti þáttur þeirrar miklu
byltingar, sem alþýðan er að framkvæma. Því hún berst ekki að-
eins fyrir því að stórvirkustu framleiðslutækin verði sameign,
heldur og að menningin, öll sú fegurð og list, sem ísland og ís-
lendingar hafa skapað að fornu og nýju, verði sameign, samnautn
alþýðunnar, allra landsins barna.
Hugleiðingai um flokk og hreyfingu
verkalýðsins
Hvernig þarf flokkur verkalýðsins og verkalýðshreyfingin sjálf
að vera til þess að vera því hlutverki vaxin að umbreyta þannig
hinu borgaralega þjóðfélagi í mannfélag sósíalismans, umskapa