Réttur - 01.01.1954, Qupperneq 44
44
RÉTTUR
vitund hans um að máttur hans í þjóðfélaginu og afstaða í þróun
mannfélagsins leggi honum þá skyldu á herðar að frelsa eigi
aðeins sjálfan sig, heldur og alla aðra, sem vinna með höndum
og heila, eru arðrændir eða órétti beittir: takast á hendur forustu
þeirra, það er forustu þjóðarinnar gegn auðvaldi og arðræningj-
um innlendum og erlendum. Og það að hann frelsi þjóðina, verður
því um leið skilyrði fyrir því að hann geti frelsað sjálfan sig.
Til þess að geta þetta þarf flokkurinn og verkalýðshreyfingin
ekki aðeins að vera andlega sjálfstæð, pólitískt óháð og óbundin
auðvaldinu og flokkum þess. Flokkurinn og verkalýðshreyfingin
þurfa að vera eins og „ríki í ríkinu“, andlegt stórveldi, sem leiðir
jafnt verkalýðssamtökin sem almenningsálitið í átökunum við
auðvaldið. Það er deginum ljósara hvernig auðvaldið vinnur gegn
því að verkalýðurinn geti rækt þetta hlutverk, hvernig það reynir
að gera hann og samtök hans að taglhnýtingi sínum, hvernig það
reynir að hræða hann frá „afskiptum af pólitík" hvernig það
reynir að beygja hann undir forustu sína og ameríska auðvaldsins.
í baráttunni við þessa viðleitni auðvaldsins, við „erfðasyndir“
sjálfs sín: vanmatið á krafti sjálfs sín, vantraustið á forustuhæfni
sinni, — og í baráttunni fyrir því að öðlast traust annarra alþýðu-
stétta til forustu fyrir þeim, — í þessari baráttu vex verkalýður-
inn og alþýðan öll andlega og verður forustuhlutverki sínu vaxin.
Því er það — í öðru lagi — lífsnauðsyn að flokkur sósíalismans
allur og sem mestur hluti verkalýðs- og alþýðuhreyfingarinnar
verði siðferðilega svo sterk, að verkalýðurinn geti fórnað stundar-
hagsmunum fyrir varanlega hagsmuni sína, ef þess er þörf (t. d.
hætt vinnu fyrir amerískt hervald íslandi til bölvunar, þótt hún
væri m. a. betur borguð, og tekið upp íslenzka framleiðsluvinnu,
— og þetta væri raunverulega það sama og þegar verkamenn
gera verkfall: þ. e. fórna dagkaupi yfirstandandi tíma til að á-
vinna sér kauphækkun framtíðarinnar). Sósíalistisk verkalýðs-
hreyfing íslands verður að verða sterkasta siðferðilega vald þjóð-
arinnar og hafa slíka meðvitund um siðferðilega yfirburði sína
að hún geti talað og breytt út frá því. Sósíalistisk verklýðshreyfing
íslands ber ábyrgð á framtíðinni, ábyrgð á því að bjarga þjóðinni
úr þeim greipum dauðans, sem auðmannastéttin er að hræða hana
í með rússagrýlunni, kaupa hana í með spillingunni, véla hana í
með forheimskunarherferðinni. Slík hreyfing er að bjarga þjóð-
inni frá hinu illa, frá því sem myndi spilla henni siðferðilega og