Réttur


Réttur - 01.01.1954, Page 45

Réttur - 01.01.1954, Page 45
RÉTTUR 45 tortíma henni líkamlega. Slík hreyfing hefur rétt og skyldu til að tala á „háum tónum“, en hún verður líka að hafa siðferðislegt þrek og þor til þess að segja sannleikann, líka þegar það er óvinsælt og hættulegt, en þjóðinni nauðsynlegt. ,(Æ, gef oss þrek, ef verja varð, að vernda æ inn lægri garð og styrk til þess að standa ei hjá, ef stórsannindum níðst er á“. Svo bað Stephan G. Stephansson 1923,, er eitt ofsóknaræðið gekk yfir auðvaldsþjóðir Ameríku. Og það verður alltaf bæn góðs sósíalistisks flokks. „Hin dauðtrygga varðstaða ár eftir ár“ hefur verið saga hins ókunna hermanns sósíalismans, eins og Jóhannes úr Kötlum kemst svo fallega að orði í „Þegnum þagnarinnar". Og þessi dauð- trygga varðstaða verður ekki siður en fyrr eldraun fyrir siðgæðis- þrek sósíalistiskrar hreyfingar, þegar sú hreyfing er orðin svo vold- ug, að hún er alltaf öðru hvoru við völd eða máske að staðaldri, en í þjóðfélagi, sem er hægt og skrykkjótt að þróast frá borgara- legu þjóðfélagi til sósíalisma og býr yfir öllum þeim spillingar- hættum, sem því fylgja. Stephan G. Stephansson segir af sinni miklu mannþekkingu: ,,Minna reynir styrk hins sterka stuttur dauði og þyrnikrans, heldur en margra ára æfi eydd í stríð við hjátrú lands, róg og illvild“. Og þá reynir heldur ekki minna á styrk hins sterka, þegar í senn eða til skiptis verður að berjast við „hjátrú lands“ og spillingarhættuna af valdastöðum í meira eða minna borgara- legu þjóðfélagi. Við þurfum ekki nema að renna huganum að einu atriði til þess að sjá hvílíkar kröfur verða gerðar til forustuflokks verkalýðsins á þessu skeiði: Áratugum saman verður flokkur sósíalismans forusta fyrir þjóðfylkingu, þar sem eru verkamenn, bændur, fiskimenn, menntamenn, atvinnurekendur o. fl. Þessar stéttir hafa mismunandi hagsmuni og innan þeirra eru hópar með ólíka hagsmuni að nokkru, fagmenn og ófaglærðir o. s. frv., og allan tímann verður að líkindum ekkert atvinnuleysi, heldur sífelld eftirspurn eftir vinnuafli, m. ö. o.: aðstaða fyrir hvern hóp til að ota sínum tota, ef hann vill. Það þýðir að flokkur sósíal- ismans verður að hafa slíka dómgreind og réttlætiskennd til að bera, að hann skipi hagsmunamálum hvers hóps svo vel að allir megi þar vel við una, og slíkt trúnaðartraust almennings að allir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.