Réttur - 01.01.1954, Side 61
RÉTTUR
61
skýrslur ávaxtahringsins sjálfs sýnt 100 millj. dollara hreinan
gróða hin síðustu ár, tekið af jafn lítilli þjóð.
Svipað þessu var ástandið í löndum Suðaustur-Evrópu allt
fram að lokum styrjaldarinnar, er alþýðustjórnir þeirra tóku við
völdum. Mestallur hlutinn af hinum geysiauðugu olíunámum
Rúmeníu var t. d. í höndum brezkra og bandarískra auðhringa.
Þá er okkur í fersku minni deilan sem hinn íranski þjóðarleiðtogi
Mossadehg háði við brezka olíuhringinn Anglo-Persían og brezku
stjómina út af því að vilja þjóðnýta olíunámurnar. Þegar þannig
er ástatt í löndum sem eiga þá að heita sjálfstæð ríki, þá getum
við gert okkur í hugarlund hvernig það muni vera í löndum
sem teljast hálfnýlendur eða nýlendur, enda skortir ekki dæmin
um það.
Sú heimsálfan sem einna mest er áberandi nú í augnablikinu
hvað hreina nýlendukúgun snertir er Afríka. Þar búa um 200
milljónir þeldökkra manna, annað tveggja undir yfirráðum til-
tölulega mjög fámennrar hvítkynjaðrar yfirstéttar eins og í Suður-
Afríku, eða sem hreinar nýlenduþjóðir á valdi Evrópustórvelda
s. s. t. d. Kenyaþjóðin, og loks einstaka ríki sem eiga að heita að
hafa allmikla sjálfsstjórn, eins og t. d. Egyptaland, sem fyrir
nokkrum áratugum hlaut þau ömurlegu örlög að vera hreinlega
tekið upp í skuld, sem gerspillt yfirstétt hafði stofnað þjóðinni í.
Þannig mætti halda áfram að telja hvert landið og þjóðina af
öðru. Hollenzku Indónesíu í Asíu, Franska Indókína, Brezka
Guiana, Suður-Ameríku o. fl. að ógleymdum Malakkaskaganum.
Verðmætustu náttúruauðæfi þessara landa eru undantekningarlítið
a. m. k., komin í eigu auðhringa Evrópu og Ameríku. Þannig er
með auðugustu olíulindirnar, þannig er með gúmmíið og tinið á
Malakkaskaganum. Þannig er með járnið, koparinn og úraníum.
Og þannig er með verðmætustu landbúnaðarframleiðsluna, eins
og kaffiræktina í Mið-Ameríku, bananaræktina í Guatemala og
þannig má endalaust telja. Og það eru ekki nema fá ár síðan að
sjálft risastórveldið Kína var að verulegu leyti í þessari aðstöðu
sem brezk-bandarískt áhrifasvæði eða hálfnýlenda. í von um
að svona ástand megi skapa þar aftur er af hálfu Bandaríkjanna
haldið uppi fasistiskri landflótta stjórn á Formósu, svo hún geti
orðið stökkpallur fyrirhugaðrar innrásar á meginland Kína.
Þannig er ennþá, meirihluti. mannkynsins í fjötrum nýlendu-
arðránsins dæmdur til að snúa gróttakvörn auðsins í þágu einok-
unarhringa auðmagnsins í nýlendustórveldum Ameríku og Ev-
rópu til að mala þeim gull, gull sem aftur krefur meira vaxtar-
rýmis, meiri þenslumöguleika, ef ekki á allt að lenda í kreppu