Réttur - 01.01.1954, Qupperneq 67
RÉTTUR
67
um og her japanskra sjálfboðaliSa, þegar sóknin til norðurs hæfist.
Hann var öruggur að vinna sigur í slíkum átökum. Þess vegna
fyrirskipaði Syngman Rhee hershöfðingjunum Sek Wong og Tsai
Ben Dek að hefja árásina á Norður-Kóreu í dagrenningu 25. júní.“
Og samkvæmt enn nánari frásögn þessa ráðherra var áætlunin
sú að sækja fram frá Ongjin, taka Kaisu og Pyngjang og styðja
þessa sókn almennri árás yfir allan 38. breiddarbauginn.
Ein staðreynd enn. Þrátt fyrir margítrekaðar kröfur um að full-
trúar frá norðurkóresku stjórninni fengju að mæta fyrir Öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna til að skýra þar hennar málstað, var
það aldrei leyft. E. t. v. hefir Bandaríkjastjórn, sem flestum at-
kvæðum hefir ráðið þar, ekki þótt fýsilegt að fá þá til að fletta
þar slíkum skjölum og öðrum, sem fundust í Seul eftir flóttann.
En ég minnist á þetta vegna þess, að sannleikurinn í þessu máli
varðar íslenzku þjóðina alveg sérstaklega, vegna þess að fullyrð-
ingin um að Norður-Kóreumenn hefðu hafið styrjöldina var ein-
mitt notuð til að hernema ísland. Bandaríkin festa nú mikið fé á
íslandi. Hvaða varðhundur verður settur til að gæta þess?
Glöggur skilningur á þessum málum er höfuð-
skilyrði þess að sltilja eigin aðstöðu
Þegar þetta er borið saman við Guatemala, þá er munurinn auð-
sær, og eðli hans einnig. í krafti fjármagns síns hefir Bandaríkj-
unum tekizt að ná tangarhaldi á fulltrúum meiri hluta á þingi
Sameinuðu þjóðanna. Marshallaðstoðin var þénugt áhald. Og
nú þegar Evrópuríkin virðast ætla að leyfa sér sjálfstæða stefnu
í einstöku málum, eins og t. d. nú á Genfarráðstefnunni, og þegar
Anthony Eden leggur til að Austur-Asíuríki þ. á. m. Kína geri með
sér griðasáttmála, þ. e. samning um að hefja ekki styrjöld hvert
gegn öðru, þá samþykkir Bandaríkjaþing lög um stórar fjárfúlgur
til aðstoðar við önnur ríki, en auglýsir um leið fyrir öllum heimi,
að það skilyrði fylgi, að hver sem geri griðasáttmála við komm-
únistaríkið Kína, skuli allri aðstoð sviptur. Enn fremur sú kveðja
til Frakklands og Ítalíu að þau fái enga aðstoð fyrr en þau full-
gildi samningana um Vestur-Evrópuherinn. M. ö. o. Féð er mútur
en ekki aðstoð. Haldið þið nú virkilega að kommúnistarnir í þess-
um löndum séu hinir einu, er eiga svo heilbrigða þjóðerniskend
að undan þessu klóri?
Þetta gerðist núna á miðvikudaginn var 30. júní. Á þetta stig
er pólitík peningavaldsins að komast nú innan hins kapítalistiska
heims, og maður verður ekki hissa þótt maður sjái þeldökkum