Réttur - 01.01.1954, Blaðsíða 79
RÉTTUR
79
því að grundvalla vestræna siðmenningu og kristindóm á atóm-
sprengjum, þá verða Vesturlönd ósigrandi. Þegar hætt er að
ausa yfir fólk kennslukvikmyndum í morðum, ránum, pynd-
ingum og nauðgunum, en á hverju kvikmyndahúsi Vesturlanda
verða stöðugt sýndar myndir, sem gera menn kærleiksríkari og
sannari, auðugri af skilningi á mönnum og samfélaginu, gera
þá glaðari og ánægðari, þá getur ekkert ógnað vestrænni sið-
menningu. Þegar stjórnvitringar Vesturlanda sitja með sveittan
skallann yfir stjórnarskrám landanna til þess að tryggja frelsi
einstaklingsins fyrir hvers konar ánauð og arðráni, þar á með-
al hárri húsaleigu, tryggja jafnrétti hans til auðlinda jarðarinnar
og bræðralag manna með því að eyða öllum hagsmunaandstæð-
um, — en hætta að liggja yfir þessum plöggum í því skyni að
svipta menn með ákveðnar skoðanir áhrifavaldi í stjórnmálum,
þá mun vestrænt lýðræði glæða þjóðfélagsþegnana þeim eld-
móði, sem ekkert fær staðizt, þá mun enginn ágreiningur verða
uppi um það, að slíkt lýðræði þurfi að verja, þá verður enginn
kurr í liðinu.
Vandlætarar og krossfarar þurfa
að hafa lireinan skjöld
Við tölum um austrænt og vestrænt lýðræði, en eitt af því sem
skilur þessi stjórnform er það, að ráðstjórnarþjóðirnar urðu
fyrstar til að gera það að stjórnarskráratriði, að atvinna væri
eitt af frumstæðustu réttindum hvers einstaklings og allt arð-
rán skyldi útilokað. Það er stór hópur manna á Vesturlöndum,
sem fær ekki skilið, að þessi stjórnarskráratriði Sovét-Rússa
séu svo syndsamleg, að þeirra vegna þurfi að afmá þá af jörð-
inni í nafni kristinnar siðmenningar. Þó allt væri satt, sem auð-
valdsblöðin segja um stjórnarhætti í Sovétríkjunum og alþýðu-
lýðveldunum, þá er ómögulegt að fá mig og mína líka til þess
að fyllast eldmóði vandlætarans og siðabótamannsins í samfélagi
við Frankó hinn spánverska og nýlendukúgara Vesturlanda, sem
lifa á því að halda hundruðum milljóna manna í vanþekkingu
og vesaldómi og hafa breytt heilli heimsálfu eins og Afríku í eins