Réttur - 01.01.1954, Side 100
100
RÉTTUR
kjörum og verið viðbúin að gera gagnráðstafanir gegn
nýjum álögum af hendi valdhafanna. Seinast í maí tókst
samkomulag um að samningar skyldu uppsegjanlegir með
mánaðarfyrirvara, en ella framlengjast um þrjá mánuði.
Brýnasta verkefnið var að bæta kjör togarasjómanna,
sem voru orðin svo bágborin að mjög erfitt reyndist að
manna skipin. 1 byrjun ágúst héldu sjómannafélögin ráð-
stefnu til þess að ræða kaupgjaldsmálin og var þar gengið
frá samningsuppkasti og samninganefnd sett á laggirnar,
skipuð fulltrúum hinna ýmsu félaga. Gerði nú hvorki að
reka né ganga fram í september. 9. september afhenti
samninganefnd sjómannafélaganna atvinnurekendum til-
kynningu um verkfall frá og með 21. sept. Samningar tók-
ust 20. september, sem fólu í sér kjarabætur er námu um
30% hækkun á vinnutekjum togarasjómanna.
Mörg önnur félög og vinnuhópar náðu allverulegri kaup-
hækkun á árinu 1954. Þar á meðal ýmsir vinnuflokkar
Dagsbrúnar í Reykjavík. Námu þær hækkanir 12—20%.
Iðja, félag verksmiðjufólks, gerði nýjan kjarasamning, en
samkvæmt honum hækkar kaup mikils þorra starfsfólks-
ins um 9% auk annara veigamikilla kjarabóta. Ennfremur
hafa jámsmiðir og skipasmiðir samið um nokkura kaup-
hækkun. Seint í janúar þ. á. sömdu Verkakvennafél. Fram-
sókn í Reykjavík og Verkakvennafélagið Framtíðin í Hafn-
arfirði um kauphækkun án uppsagnar og nam hún 64
aurum til kr. 2.69 á klukkustund. Hinsvegar bundu félögin
samninga sína til 1. júní.
Sjómenn í Vestmannaeyjum gerðu kröfu til að fá sama
verð fyrir fisk sinn og útgerðarmenn, að meðtalinni þeirri
hækkun á fiskverðinu, sem stafar af bátagjaldeyrishlunn-
indunum. Höfðu þeir unnið mál fyrir Hæstarétti um að
útgerðarmönnum væri skylt að greiða þetta verð, en síð-
astliðið ár höfðu þeir hinsvegar orðið að semja til bráða-
birgða um fast fiskverð sem reyndist allmiklu lægra, vegna
þess að útgerðarmenn neituðu að greiða það verð, sem
þeim bar. Útgerðarmenn svöruðu nú kröfum sjómanna