Réttur - 01.05.1964, Qupperneq 9
R E T T U R
73
einir óskoraö vald á þróun atvinnulífsins og hagnýtingu íslenzkra
auðlinda. Lánamöguleikar þjóðarinnar erlendis verði fyrst og
fremst hagnýttir til framkvæmda á sviði raforku fyrir landsmenn
sjálfa og til uppbyggingar nýrra þátta útflutningsiðnaðar, sem sér-
staklega byggja á framleiðsluvörum sjávarútvegs og landbúnaðar.
Gerð verði sérstök framkvæmdaáætlun til ákveðins tíma um full-
vinnslu íslenzkra hráefna, sérstök lánakjör, vísindalega og tækni-
lega aðstoð og markaðsöflun.
*
Miðstjórn Sósíalistaflokksins lítur svo á, að með heiðarlegri
framkvæmd á framangreindum tillögum mætti á skömmum tíma
leysa þann vanda, sem nú er við að glíma í efnahagsmálum landsins.
Þannig mœtti stöðva dýrlíðarjlóðið, leggja grnndvöll að vinnufriði,
leiðrétta launakjör vinnustéttanna og sleppa út úr þeim vítahring
að ríkisvaldið sé í linnulausu stríði við alla launþega landsins.
Ríkisstjórnin verður að átta sig á því, að áframhaldandi stríð við
meirihluta þjóðarinnar, launþegana í landinu, er dæmt til að mis-
takast.
Hugmyndir skammsýnna afturhaldsmanna um að enn á ný skuli
reynt að binda hendur verkalýðssamtakanna — einmitt nú eftir að
stórfellt verðhækkunarflóð hefur skollið yfir síðustu mánuðina,
milliliðum hefur verið heimilað að hækka álagningu um mörg
himdruð milljónir króna — slíkar hugmyndir, ef reynt yrði að
Jramkvœma þœr, gœtu ekki leilt til annars en nýrra stórátaka á milli
launastéttanna og ríkisvaldsins með augljósu tapi fyrir þjóðar-
heildina.