Réttur


Réttur - 01.05.1964, Qupperneq 21

Réttur - 01.05.1964, Qupperneq 21
R E T T U R 85 staðreynd, að hún felur í sér bæði nákvæmni og varúð. Það eru fram- leiðsluafstæðurnar í lieild sem hin hugmyndafræðilega yfirbygging hvílir á. Ejrialegar umbreytingar þjóðfélagsins er hægt að greina „með vísindalegri nákvæmni", en það á ekki við um andstæðuna: hæga eða hraða umbreytingu hinnar hugmyndafræðilegu yfirbygg- ingar. Framleiðsluhættir efnalífsins ákvarða ekki aðeins feril sam- iélags og stjórnmála, heldur og vitsmunaferil lífsins, en þrátt fyrir það — eins og Marx og Engels bentu oft á — verkar vitsmunafer- illinn á þann efnalega: það er ekki til neitt mekanískt orsakasam- hengi, aðeins díalektísk, gagnverkandi víxláhrif, og aðeins „þegar öllu er á botninn hvolft“w) eru efnahagsafstæðurnar ákvarðandi. Vér skulum því standa á verði gegn allri einföldun, ekki sízt i listum og bókmenntum. 011 einföldun á því sviði ummyndar auð- legð veruleikans í fátækt bláþrykk. Það er til nokkurs konar „sér- lakastefna“ (abstraktionism“) í viðhorfi til lista, er skilgreinir ekki hlutbundin listaverk, eða lifandi listamenn, í ljósi vaxtarferils þeirra, en hugsar sér í upphafi dilka og dregur með gerræði listamenn og verk þeirra í þessa dilka. Nómínalistar(* * myndu segja: Guð skapaði heiminn, djöfullinn dilkana. Ósjaldan er mikill raun- tæismálari dreginn í sama dilk og akademískur glansmyndamálari, eða jafn mikilhæfir listamenn og Picasso, Léger, Moore, Neizvestni ílokkaðir með konfektöskjumálurum kramaralistarinnar. Fullyrð- ingar sem þessar: „Expressjónistar endurspegla hugmyndafræði- lega yfirbyggingu úrkynjaðrar borgarastéttar“ eða afstrakt mál- arar eru fulltrúar hugmyndafræðilegrar yfirbyggingar heims- valdastefnunnar“, eru alltof handhægar bláþrykkskreddur. Séu bókmenntir og listir aðeins hugmyndafræðileg yfirbygging á- kveðinna samfélagsafstæðna efnahagslífsins, þá myndi listin falla í gleymsku með þeim, þá myndum vér ekki skynja Iifandi list i hinum fornu hellamálverkum, kviðum Hómers, gotneskum róðum né sköpunarverkum renisansans. Það sem í raun og veru á sér stað er það, að miðlungs listamenn er játast aðeins ríkjandi hugmynd- um samtíðar sinnar — og verk þeirra eru þar af leiðandi ekkert nema hugmyndafræðileg yfirbygging — eru dauðir og gleymdir (eða þegar bezt lætur nothæfur efniviður í doktorsritgerðir); en öll *) „in the last analyses" („in letzter Instanz"). Sbr. bréf Engels til J. Bloch, skrifuð í London 21. sept. 1890. Þýð. *) Nómínalistar halda því fram að almenn hugtök séu aðeins nöfn. Þýð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.