Réttur


Réttur - 01.05.1964, Qupperneq 50

Réttur - 01.05.1964, Qupperneq 50
HJALTI KRISTGEIRSSON: Um pólitíska hagfræSi marxismans I. Vinnugildi og gildisauki Þegar Eva kom Adam til að eta af skilningstré góðs og ills, voru þau hjúin rekin burt úr Edens fögrum Iund og sagt að fara og vinna í sveita síns andlits. Seinna voru Adams börnum fleiri boðorð gefin að frásögji Biblíunnar, og sífellt bætast fleiri við. Hver öld hefur sín fyrirmæli um hegðun og hugsun. En svo mörg sem þau eru orðin boðorðin, sem maðurinn hefur gefið sjálfum sér og kennt við drottin á himnum, kónginn í Kaupinhöfn, samvizkuna í brjósti sér eða þingið við Austurvöll, þá hefur hið gamla vinnuboðorð Adams og Evu reynzt lífseigast og raunar allra boðorða æðst. Hjá því boðorði kemst mannlegt samfélag aldrei. En annað mál er það, að mjög er vinnunni misskipt milli einstaklinganna, bæði að magni og gæðum, ef svo má segja. Það er misjafnt, hve þeir þurfa mikið á sig að leggja, en störfin einnig svo ólík, að menn geta ekki nema að takmörkuðu leyti komið hver í annars stað. Ekki verður hér farið að þeim fræðimennskusið að útlista frá heimspekilegum sjónarmiðum og djúpri speki, hverjar ástæður vinnunnar séu, m. ö. o. hvers vegna maðurinn sé að leggja það á sig að vinna. Það verður látið nægja að slá því föstu, að hverjum manni sé — að öðru jöfnu — nauðsynlegt að vinna til þess að geta séð fyrir margvíslegum þörfum sínum: fæði, klæðum, húsaskjóli, andlegri dægradvöl. En við athugun kemur í ljós, að ekki býr hver og einn til matinn, er hann neytir, ekki vefur hann klæðin, er hann gengur í, né saumar þau saman, ekki steypir hann upp húsið né smíð- ar það þak, er veita skal honum skjól (og þó! Furðulegt skipulags- og samtakaleysi veldur því, að á íslandi verða margar fjölskyldur að leggja það á sig að reisa sér þak með eigin höndum svo að segja, án nýtízkulegra vinnuaðferða og tæknistigs þeirra). En yfirleitt hlasir það hvarvetna við augum í nútímaþjóðfélagi, að hver ein- staklingur um sig vinnur ekki beinlínis að fullnægingu eigin þarfa, heldur skipta einstaklingar hvers þjóðfélags með sér verkum við
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.